Verktækni - 2015, Blaðsíða 42

Verktækni - 2015, Blaðsíða 42
42 VERKTÆKNI 2015/21 ritrýndar vísindagreinar á mynd 1. Líftíma vegbyggingarinnar er skipt upp í stutt tímabil, Δt, þar sem öll lög vegarins eru með ákveðna efniseiginlega háð umhverf­ is­ og umferðarskilyrðum þess tímabils. Þessar inntaksstærðir eru nýtt­ ar í svörunarlíkani, sem framkvæmir burðarþolsgreiningu á veg­ byggingunni og reiknar spennu, streitu og niðurbeygju, sem byggingin og einstök lög vegarins verða fyrir vegna gefins álags við tiltekin skil­ yrði. Niðurstöður burðarþolsgreiningarinnar eru notaðar sem inntaks­ stærðir inn í frammistöðuspálíkan sem áætlar hversu mikil áhrif við­ komandi tímaskref komi til með að hafa á hrörnun vegarins. Hrörnun vegarins fyrir hvert tímaskref er safnað saman þar til hönnunarlíftíma vegarins er náð (Ahmed og Erlingsson, 2013; Erlingsson, 2007). Aðferðin gefur hönnuðum möguleika á að spá fyrir um niðurbrot/ hrörnun einstakra laga vegbyggingarinnar sem og vegbyggingarinnar allrar sem fall af tíma. Þannig gefur hún hönnuðum möguleika á að velja og bera saman mismunandi gerðir vegsniða með því að skoða frammistöðu þeirra sem fall af tíma. Hönnuður getur þá valið að nota betri og dýrari efni með lágmarkslagþykktum eða veikara og ódýrari efni, sem þó uppfylla þröskuldsgildi um styrk, með auknum lagþykkt­ um að teknu tilliti til staðsetningar þeirra í uppbyggingunni. Með aðferðinni er einnig hægt að spá fyrir um hvernig vegir aflagast og hrörna og þannig auðveldað gerð langtímaáætlana um viðhald og endurbyggingu. Einnig má meta ávinning og kostnað varðandi notkun nagladekkja, tegund dekkja (t.d. breið dekk eða tvöfalt hjólasett), dekkjaþrýsting, hámarksöxulþunga og tegund vegagerðarefnis. Aðferðin nýtist einnig til að meta áhrif breytts veðurfars á líftíma og endingu vega. Þannig er hægt að hámarka arðsemi vegbygginga og skoða heildarkostnað veghaldara við gerð, viðhald og rekstur vega, þ.e. framkvæma vistferilsgreiningu (e. Life Cycle Assessment). Hraðaðar álagsprófanir (APT) Eins og fram kom hér að framan er nauðsynlegt að bera saman niður­ stöður líkana við niðurstöður mælinga á spennum, streitu og niður­ beygjum í vegbyggingum í fullri stærð. Í hröðuðu álagsprófi er hægt að líkja eftir álagi sem vegbygging verður fyrir á líftíma sínum á styttum tíma. Í stað þess að brjóta niður vegbyggingu með raunálagi, sem getur tekið um 20 ár, er álagið (þungaumferð) lagt á með aukinni tíðni og því hægt að fá niðurstöður á um tveimur til þremur mánuðum. Hjólaálaginu er stýrt, fjöldi yfirferða er skráður og hjólinu er beint yfir nema sem mæla svörun vegbyggingarinnar (s.s. spennur og streitur) og umhverfisskilyrði eru ákveðin. Ástand vegbyggingarinnar er síðan metið með ákveðnu millibili ásamt því að svörunarmælingar eru gerð­ ar. Prófið gefur því nákvæm svörunar­ og ástandsgögn yfir allan niður­ brotstímann sem nota má til að sannreyna hin aflfræðilegu hönnunarlíkön. Hröðuð álagspróf hafa aukið mjög þekkingu á niður­ brotsferli vegbygginga en þau eru kostnaðarsöm, sjá mynd 2 (Nokes et al., 2012; du Plessis et al., 2008; NCHRP, 2012; Metcalf, 1996; Kumara, 2005; Korkiala­Tanttu, 2008). Yfirleitt eru hröðuð álagspróf bætt upp með öðrum prófunum eins og til dæmis falllóðsmælingum og þríásaprófum. Í eftirfarandi hröðuðu álagsprófi, sem fjallað er um hér, var þungur bílhermir (e. Heavy Vehicle Simulator; HVS-Nordic) notaður (mynd 3). Hann er staðsettur hjá VTI (sænska vegagerðarstofnunin) í Svíþjóð og framleiddur í Suður Afríku. HVS­Nordic er hreyfanlegur, 23 m langur, 3,5 m breiður, 4,2 m hár og vegur um 46 tonn. Aðrir tæknilegir eigin­ leikar hans eru: Response model Initial condition & structure geometry, design period = Y Accumulate distress Δti i = i + 1 Pavement structure Climate Traffic loading End t = t0, i = 1 ti< Y Yes No ti = ti-1 + Δti Stresses, strains and displacements Subgrade properties Performance prediction models Structural change Material properties Inputs Analysis Viable alternative Modify strategy No Life cycle cost analysis Strategy selection Flexible pavement design Constructability Mynd 1 – Flæðirit af hönnunarferli vegbyggingar samkvæmt aflfræðilegum aðferðum. Mynd 2 – Samband mismunandi verkfræði aðferða sem saman og hvert fyrir sig stuðla að þekkingu (NCHRP, 2004). Mynd 2 – Samband mismunandi verkfræði aðferða sem saman og hver fyrir sig stuðla að þekkingu (NCHRP, 2004).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.