Verktækni - 2015, Síða 79
TÆKNI- OG vísINdaGreINar
verktækni 2015/20 79
Af þessum útreikningum má sjá að með einangrun sem skilgreind
var í samræmi við deili arkitekta, má gera ráð fyrir að hljóðstig innan
kennslurýmisins muni lækka um allt að 5-6 dB með notkun á steinull.
Niðurstaða þessarar greiningar var að koma því magni af steinull
umhverfis búnaðinn eins og lagt var til í upphafi.
Lokaorð
Hér hefur hljóðhönnun framhaldsskólans í Mosfellsbæ verið lýst. Þau
atriði sem skoðuð voru, varða hönnunarmarkmið, hávaðaáraun frá
umferð, hljóðeinangrun útveggja, hljóðvist innan rýma sem og grein-
ing á hljóðstigi innandyra frá tæknibúnaði. Þá hefur aðgerðum og
útreikningum verið gerð skil. Ljóst er að markmið fyrir hljóðhönnun
skólans hafa verið uppfyllt í flestum tilfellum og hafa nemendur og
kennarar lýst yfir ánægju sinni með hana. Í skólanum voru nýttar
hljóðísogslausnir sem eru auk þess listskreyting í skólabyggingunni, og
hefur það ekki síst vakið athygli á þessum málaflokki. Athyglisvert er
að samtvinna þessa þætti þverfaglega þannig að þeir geti stutt hvorn
annan. Á næstunni verða framkvæmdar hljóðmælingar í skólanum til
þess að sannreyna niðurstöðurnar og meta þannig hljóðhönnunina
enn frekar og hvernig til hefur tekist. Þannig verður gerður saman-
burður á hönnun og niðurstöðum mælinga. Þessi nálgun er gríðarlega
mikilvæg við að meta ávinning, nákvæmni líkangerðar og útreikninga,
leggja mat á endanlega vinnu sem og veita aðhald við framkvæmd og
eftirlit.
Hljóð er óáþreifanlegt fyrirbæri og gjarnan getur verið erfitt leggja
mat á hvað skiptir mestu máli varðandi hljóðhönnun og hvað ekki.
Mikilvægt er fyrir greinina að stuðla að upplýsingagjöf og vinna mark-
visst að því að notendur mannvirkja upplifi hvað góð hljóðvist sé og
af hverju hún skipti máli. Þó er algengt að ráðgjafar séu kallaðir til
þegar ákveðnir þættir eru komnir í óefni og þarfnast lagfæringar.
Útilokað er að koma alfarið í veg fyrir slíkt, en með aukinni upplýs-
ingagjöf og ekki síst með lögum sem Mannvirkjastofnun vinnur eftir,
þar sem gerð er sú krafa að hljóðhönnun sé hluti af hönnun nýbygginga
sem og ábyrgðalýsingu hönnuða, þá mun hljóðvist í byggingum með
tíð og tíma færast í betra horf.
Án hljóðísogs – X(50)=50,1 dB Með hljóðísogi – X(50)= 45,9 dB
Hljóðgjafi skilgreindur 60 dB.