Þjóðmál - 01.03.2016, Page 9
lagaþingi og svipta með því alþingi valdi til
stjórnlagabreytinga.
Jóhanna flutti árið 1995 þingmanna-
frumvarp um stjórnlagaþing. Þetta var á
þeim árum sem hún starfaði í eigin flokki,
Þjóðvaka, eftir að hafa orðið undir innan
Alþýðuflokksins. Framsóknarmenn aðhyllt-
ust síðar skoðanir um sérstakt stjórnlaga-
þing. Hugmyndin um slíkt þing var ein af
málefnalegum ástæðum þess að Fram-
sóknarmenn veittu minnihlutastjórn Jóhönnu
brautargengi í mars 2009. í framsöguræðu
Jóhönnu fyrir stjórnarskrárbreytingunum 6.
mars 2009 sagði hún meðal annars:
„Aldrei fyrr hefur jafnsterk krafa komið
fram um nauðsyn þess að íslendingar setji
sér nýja stjórnarskrá frá grunni. Þar hefur
einkum verið rætt um þörf á að breyta
skipulagi löggjafarvalds og framkvæmdar-
valds og aðskilnaði milli þessara tveggja
valdþátta, reglum um ábyrgð handhafa
framkvæmdarvaldsins og eftirliti þingsins
með starfi stjórnvalda og ekki síst um
möguleika þjóðarinnar á að taka beinan
þátt í ákvörðunum með þjóðaratkvæða-
greiðslu.
í þeirri umræðu hefur sjónum verið beint
að uppruna íslensku stjórnarskrárinnar
og þeirri staðreynd að stór hluti ákvæða
hennar stendur óbreyttur frá árinu 1874.
Þessi ákvæði endurspegla því hvorki þann
veruleika sem er uppi varðandi meðferð
framkvæmdarvaldsins nétryggja nægilega
aðskilnað framkvæmdarvalds og löggjafar-
valds og nauðsynlegt aðhald þings með
framkvæmdarvaldi.
í Ijósi þess að stjórnmálaflokkum hefur
ekki tekist að ná samstöðu um nauðsyn-
legar breytingar á nokkrum meginþáttum í
núgildandi stjórnarskrá, þráttfyrir ítrekaðar
tilraunir, viljum við nú freista þess að stofna
til sérstaks stjórnlagaþings með þjóðkjörn-
um fulltrúum sem verði falið þetta mikil-
væga verkefni."
Til þessara orða er vitnað til að minna á
áróðurinn sem Jóhanna og félagar mögnuðu
upp gegn stjórnarskránni á valdatíma hennar.
Látið var í veðri vaka að stjórnarskráin hefði
Látið var í veðri vaka að stjórnarskráin
hefði átt einhverja sök á banka-
hruninu og síðan var höfðað til frum-
stæðra þjóðernistilfinninga með því
að kenna lýðveldisstjórnarskrána við
Danakonung. Mátti skilja þetta svo
að til stæði að finna upp eitthvert
séríslenskt stjórnlagakerfi samhliða
því sem vegið var að stjórnmála-
kerfinu með yfirlýsingum um að því
væri um megn að laga stjórnarskrána
að breyttum aðstæðum.
átt einhverja söká bankahruninu og síðan
var höfðað til frumstæðra þjóðernistilfinninga
með því að kenna lýðveldisstjórnarskrána
við Danakonung. Mátti skilja þetta svo að
til stæði að finna upp eitthvert séríslenskt
stjórnlagakerfi samhliða því sem vegið var að
stjórnmálakerfinu með yfirlýsingum um að
því væri um megn að laga stjórnarskrána að
þreyttum aðstæðum.
Kreddufestan sem birtist í málflutningi
Jóhönnu setti svip sinn á afstöðu hennartil
stjórnaskrármálsins þar til yfir lauk fyrir kosn-
ingar 2013. Þá náðist sátt um meðferð stjórn-
arskrármálsins á alþingi með nýju ákvæði
um stundarsakir sem fól í sér undantekningu
frá reglu 1. mgr. 79. gr. um stjórnarskrárbreyt-
ingar. Samþykki alþingi sem nú situr tillögur
stjórnarskrárnefndarinnar með minnst 2/3
hlutum greiddra atkvæða skulu þær bornar
undiratkvæði allra kosningarbærra manna í
landinu til samþykktar eða synjunar. Heimildin
er tímabundin til 30. apríl 2017.
Öfgasinnaðir áhugamenn um að kollvarpa
lýðveldisstjórnarskránni snúast að líkindum
gegn breytingartillögunum sem hafa verið
kynntar. Fylgi almennings við skoðanir þessa
hóps hefur hins vegar jafnan reynst lítið. Er
auðvelt að færa rök gegn þeirri skoðun að
stjórnarskráin standi íslensku þjóðlífi fyrir
þrifum.
VORHEFTI2016 7