Þjóðmál - 01.03.2016, Page 10
MargrétTryggvadóttir, fyrrverandiþingmaður, hefurlýst
samskiptum sínum við Birgittu Jónsdóttur.
III.
MargrétTryggvadóttir sat á alþingi í hópi
með Birgittu Jónsdóttur, núverandi pírata,
á kjörtímabilinu 2009 til 2013. í bók sinni
Útistöðum frá árinu 2014 lýsir Margrét sam-
skiptum sínum við Birgittu. Af þeim má ráða
að Birgitta hafi ekki komið fram af heilindum.
Birgitta tilkynnti Margréti og Þór Saari í þing-
hópnum bréflega 17.júlí 2012 áform sín um
að ganga til liðs við þá sem undirbjuggu stofn-
un Pírata-flokks á íslandi. Ákvörðun Birgittu
um að hverfa úr þinghópnum og segja skilið
við Margréti má rekja til þess að hún komst
ekki á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
undir merkjum þinghópsins.
Margrét segir um Birgittu:
„Hún vildi gjarnan vera allt í öllu og visst
formleysi, þar sem hver getur gengið í
nánast öll störf án þess að hafa verið falin
þau sérstaklega, hentaði henni mjög vel.
[bls.457]
Nú fær Birgitta mótbyr innan flokks pírata
og er sökuð um valdabrölt og minna lýsingar
á því á reynslu MargrétarTryggvadótturá
það sem nú gerist meðal pírata. Mánudaginn
22. febrúar birti Erna Ýr Öldudóttir, formaður
framkvæmdaráðs Pírata, eftirfarandi lýsingu
á Birgittu á svonefndu Pírataspjalli:
„Það er gjörsamlega óþolandi að þing-
maður láti endurtekið titla sig sem leiðtoga
eða formann eða kaptein flokksins án þess
að vera það. Koma svo með yfirlýsingar í
fjölmiðlum um hitt eða þetta án þess að
hafa til þess umboð frá félagsmönnum.
Svona sólóplay og röng framsetning á
sannleikanum er óheiðarleg, bæði gagn-
vart flokknum, félagsmönnum, kjósendum
og þeim reglum og ferlum sem Píratar
notast við."
í fyrstu brást Birgitta illa við þessum
ummælum og krafðist þess að Erna Ýr bæði
sig afsökunar á þeim sem hún gerði ekki.
Birgitta sagði síðan annars staðar á FB-þræði
pírata:
„Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að
hafa þykkan skráp að þá er þetta eilífa
niðurrif að byrja að hafa djúpstæð áhrif."
Á mbl.is birtust þriðjudaginn 23. febrúar
viðbrögð Helga Hrafns Gunnarssonar, þing-
manns og varaþingflokksformanns pírata,
sem taldi eðlilegt, augljóst og sjálfsagt mál
að klofningur gæti orðið í flokknum.„Ég kýs
að hafa ekki áhyggjur af því," sagði Helgi og
bætti við um Birgittu:
„Mér finnst það skjóta skökku við að
manneskja í valdastöðu, sem í þokkabót
hefur opinberlega rægt aðra, þónokkuð oft
og mikið, taki þessu svona og upplifi sjálfa
sig ífórnarlambshlutverki."
í orrahríðinni vógu þessi orð Helga Hrafns
þungt enda sneri Birgitta við blaðinu miðviku-
daginn 24. febrúar í opnu bréfi til pírata og
sýndi meðal annars þá auðmýkt að biðjast
afsökunar á að hafa óttast um að kosninga-
kerfi innan flokks pírata yrði misnotað
af þeim er aðhylltust frjálshyggju í anda
frjálshyggjufélagsins. Á einu stigi málsins
notaði Birgitta óttann við frjálshyggjumenn
8 ÞJÓÐMÁL