Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 52
Jóhanna Sigurðardóttir notaði mismunandi mælistikur
á embættisverk manna. Mætistikan var ekki aðeins mis-
munandi eftir þvíhver hlut átti að máli heldur breyttist
hún allt eftirþvíhvernig pólitískir vindar blésu hverju sinni.
Þessu fékkögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, að
kynnast.
komist var að því að Jóhanna Sigurðardóttir
hafi brotið jafnréttislög.
Jóhanna Sigurðardóttir notaði mismunandi
mælistikur á embættisverk manna. Mæli-
stikan var ekki aðeins mismunandi eftir því
hver hlut átti að máli heldur breyttist hún
allt eftir því hvernig pólitískir vindar blésu
hverju sinni. Þessu fékk Ögmundur Jónasson,
innanríkisráðherra, að kynnast. Fróðlegt var
að fylgjast með hvernig sótt var að Ögmundi
eftir að kærunefnd jafnréttismála komst að
þeirri niðurstöðu í ágúst 2012 að sem innan-
ríkisráðherra hefði hann brotið jafnréttislög
þegar hann skipaði í embætti sýslumanns á
Húsavík.
„Það er auðvitað ekki gott og ekki til eftir-
breytni", sagði Jóhanna um embættisfærslu
Ögmundar. Steingrímur J. sagðist ekki ætla
að blanda sér í málið en aldrei sé hægt að
útiloka að menn misstígi sig þó reynt sé að
vanda sig við ráðningar á opinberum starf-
smönnum. Ályktanir og yfirlýsingar nokkurra
félaga innan VG endurspegluðu innan-
flokksátök. Ögmundur skyldi segja af sér eða
a.m.k. biðjast afsökunar.
Á sama tíma ákvað Steingrímur að ráða
ráðuneytisstjóra í sameinað atvinnuvega-
ráðuneyti án auglýsingar. Með því fækkaði
konum í hópi ráðuneytisstjóra um eina. Um
það var ekkert ályktað.
„Óeðlilegt" að leita réttar síns
Fimm árum eftir að Jóhanna og Össur gengu
hart fram í gagnrýni sinni vegna skipunar
hæstaréttardómara, komst héraðsdómur að
þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir
hefði sem félagsmálaráðherra gerst brotleg
við 21. grein stjórnsýslulaga þegar hún vék
einstaklingi úr stjórnarnefnd fatlaðra og
skipaði annan. f viðtali í Kastljósi 16. febrúar
2009 (en þá var Jóhanna orðin forsætis-
ráðherra) sagðist hún ekkert þurfa að læra
af dómi héraðsdóms. Ekki hafi„óeðlilega"
verið staðið að því að víkja viðkomandi úr
stjórnarnefndinni en sér þætti„fullkomlega
óeðlilega hafa verið staðið"að málsókninni.
Með öðrum orðum: Jóhanna taldi óeðlilegt
að einstaklingur leitaði réttar síns ef hún sem
ráðherra bryti stjórnsýslulög.
í febrúar 2011 staðfesti Hæstiréttur
niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands um að
ógilda ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur,
umhverfisráðherra, sem hafði neitað að stað-
festa hluta aðalskipulags Flóahrepps varðandi
Urriðafossvirkjun. Svandís baðst ekki
afsökunar á stjórnsýslu sinni. Hún lýsti því yfir
að endurskoða yrði lagaumhverfi við gerð
skipulags. f frétt Morgunblaðsins sagði:
„Svandís sagði að ráðuneytið þyrfti að fara
yfir dóminn og skoða hvort lagaumhverfi
væri nægilega skýrt fyrir sveitarfélögin sem
bera ábyrgð á skipulagsvinnunni. Eitt af því
sem þyrfti að skoða væri hvort framkvæmda-
aðilar gætu tekið þátt í hverju sem er."
50 ÞJÓÐMÁL