Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 76

Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 76
Sumir eru athugulli en aðrir og ungur hagfræðikandídat, Jón Dúason, sendi mann í afgreiðslu íslandsbanka í Austurstræti hinn 12. desember 1919 með 25 þúsund krónur í seðlum bankans og óskaði eftir að þeim yrði skipt út fyrir gull. Bankinn færðist undan og daginn eftir hélt sendill Jóns aftur í bankann og þá með 24 þúsund krónur í seðlum og bar upp sömu beiðni.33 Yfirmönnum bankans mun hafa orðið um og ó og látið sendiboða fara með hraði yfir Lækjartorg og upp í stjórnarráð, þar sem samþykkt voru þráða- birgðalög í flýti sem afnámu innlausnar- skylduna.34 Með bráðabirgðalögunum var innlausnarskyldan endanlega numin úr gildi, sbr. lög nr. 84/1919 um ráðstafanirá gullforða íslandsbanka og heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna útflutning á gulli, sbr. lög nr. 16/1920 um heimild fyrir ríkisstjórnina til að leyfa íslandsbanka að gefa út allt að 12 milljón- um króna í seðlum án aukningar á málm- forðatryggingu þeirri sem hann nú hefir. Jón fékk því ekki gullið, en hélt kröfu sinni til streitu, enda höfðu viðhlítandi ákvæði laga nr. 66/1905 um innlausnarskyldu bankans verið í gildi er óskað var innlausnar. Sáttatil- raunir Jóns og bankastjórnarinnar báru ekki árangur og fór svo að hann höfðaði mál gegn stjórn bankans fyrir bæjarþingi Reykjavíkur í mars 1920 og fór fram á 43.624,80 krónur í skaðaþætur með 5% ársvöxtum frá sátta- kærudegi til þorgunardags og málskostnað að skaðlausu. Bankinn krafðist sýknu og þess að Jón yrði dæmdur til sektar fyrir„óþarfa þrætu". Stefndi mótmælti ekki innlausnar- skyldunni, en hélt því fram að lögleg krafa til innlausnar á gulli hafi ekki verið gerð og þá hafi gullforði bankans verið innsiglaður af ríkisstjórninni og því ekkert handbært gull í bankanum. Dómari taldi þessa síðast- nefndu varnarástæðu bankans ekki nægilega sannaða og of seint fram komna og féllst á að krafan um innlausn hafi verið löglega sett fram dagana 12. og 13. desember 1919. Jóni voru dæmdar 6250 kr. í bætur, sem var mikið fé í þá daga og að auki var málskostn- aðurfelldur niður. Dómara þótti ekki rétt að ákvarða bótafjárhæðina hærri, þar eð örðugt væri að segja til um markaðsverði á gulli hérlendis, meðal annars með tilliti til þess að útflutningur á gulli var bannaður og markaður með það hér innanlands afar takmarkaður. Hagnaðarvon Jóns var því álitin til muna minni en hann hafði byggt á í kröfugerð sinni.35 Á árunum 1927 og 1928 voru sett ný lög um Landsbanka íslands, lög nr. 48/1927 og nr. 10/1928. Með þessum nýju lögum var Landsbankanum fengið það hlutverk að vera seðlabanki og honum falinn einkarétturtil seðlaútgáfu, en um leið var íslandsbanka gert að innkalla sína seðla. Skyldi Landsbankinn fullnægja gjaldmiðilsþörf í innanlands- viðskiptum. í lögunum er kveðið á um að seðlar Landsbankans séu gulltryggðir og inn- leysanlegir í gulli, en tekið er fram að innlausn- arskyldan komi ekki til framkvæmda fyrr en Alþingi ákveði það sérstaklega. Gulltrygging og innlausnarskylda seðla í gulli átti aldrei aftur eftir að líta dagsins Ijós hér á landi. Orsakir erfidleikanna Fyrstu ár íslandsbanka var yfirleitt greiddur út um 5% arður til hluthafa af eigin fé bankans, en á árum ófriðarins hækkaði þetta hlutfall í rúm 20%. Á sama tíma fengu stjórnendur bankans verulegan veltutengdan kaupauka í sinn hlut, eða það sem nú á dögum eru kallaðir„bónusar". Þá hóf bankinn að kaupa víxla af viðskiptamönnum sínum í stórum stíl og hlaut af því talsverðan skammtíma- hagnað, en óveðtryggðir víxlar uxu frá því að nema um 30-40% af lánabók bankans fyrsta áratuginn til þess að verða 60-70% á árum ófriðarins.36 Áhætta í rekstri bankans hafði því margfaldast og það með blessun Alþingis. í þessu sambandi er rétt að gæta þess að erfiðleikar Landsbankans voru ekki minni í lok styrjaldarinnar og má segja að bankinn hafi verið de facto gjaldþrota, enda var allt eigið fé bankans afskrifað og honum lagt til nýtt eiginfjárframlag úr ríkissjóði.37 Hagfræðingur John Maynard Keynes (1883-1946) lýsti yfir vantrú á gullfætinum árið 1924, sem hann sagði„barbarous relic" sem útleggja mætti sem„villimannslegar 74 ÞJÓÐMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.