Morgunblaðið - 25.06.2021, Page 21

Morgunblaðið - 25.06.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021 Útför í kirkju Allt um útfarir utforikirkju.is ✝ Gunnlaugur Björnsson var fæddur að Hrapps- stöðum í Víðidal 24. mars 1937. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnuninni á Akranesi 9. júní 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, sem ætt- uð var frá Gröf í Lundarreykjadal, f. 1892, d. 1972, og Björn Jósefsson, bóndi að Hrappsstöðum, f. 1896, d. 1971. Systkini Gunnlaugs eru: Tryggvi, f. 1919, d. 2001, Guðrún Ingveldur, f. 1921, d. 2001, óskírð stúlka, f. 1922, d. 1923, Jósefína, f. 1924, d. 2017, Ásgeir Bjarni, f. 1925, d. 2009, Sig- urvaldi, f. 1927, d. 2009, Stein- björn, f. 1929, d. 2019, Guðmund- ína Unnur, f. 1931, Álfheiður, f. 1931, d. 2012 og Sigrún Jóney, f. 1933, d. 2021. Uppeldisbróðir Gunnlaugs var Ásgeir Jóhanns- son Meldal, f. 1940, d. 2004. Árið 1966 kvæntist Gunn- laugur eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Þórisdóttur, f. 15. ágúst 1945. Foreldrar hennar voru hjónin Eva Karlsdóttir og Þórir Magnússon Syðri Brekku. vinna við brúarsmíði á sumrin. Árið 1963 festi Gunnlaugur kaup á jörðinni Nípukoti í Víði- dal og bjó þar síðan með fé og hross. Búskapurinn var honum hugleikinn og var í senn atvinna hans og áhugamál. Meðfram bú- skapnum stundaði hann aðra vinnu; vann á jarðýtu á sumrin og í sláturhúsinu á Hvamms- tanga á haustin. Árið 2011 tók Þórir Óli, sonur hans, jörðina á leigu, en áfram starfaði Gulli að búskapnum eftir því sem starfs- kraftar leyfðu. Þátttaka í félagsstörfum var Gunnlaugi eðlislæg. Hann tók þátt í enduruppbyggingu Víði- hlíðar, var lengi í skemmtinefnd Ungmennafélagsins Víðis og í einnig í húsnefnd Víðihlíðar. Hann var í sóknarnefnd Víði- dalstungukirkju 1985-1989. Gulli var einn af stofnendum Hrossaræktarfélags Þorkels- hólshrepps og sat í stjórn þess félags. Einnig var hann í Hesta- mannafélaginu Þyt. Frá unga aldri fór Gunnlaug- ur í göngur. Hann var um árabil leitarstjóri í stóðsmölun, gangnastjóri í seinni göngum og á árunum 1988-2008 var hann gangnastjóri fyrri gangna á Víðidalstunguheiði. Gulli var áhugasamur um ástand og nýt- ingu heiðarinnar og átti góðar stundir fram til heiða í göngum, heiðaferðum og veiðiferðum. Útför Gunnlaugs fer fram frá Víðidalstungukirkju í dag, 25. júní 2021, kl. 14. Börn Gunnlaugs og Sigrúnar eru: 1. Eva, f. 3. apríl 1969. Maki Sverrir Berg, f. 16. sept- ember 1969. Börn þeirra eru a) Gunn- laugur, f. 12. apríl 1995 og b) Heiðrún, f. 9. janúar 1999. 2. Sigurður Björn, f. 5. nóvember 1976. Fyrrverandi eigin- kona er Hrefna Samúelsdóttir, f. 15. maí 1976. Börn þeirra eru a) Ingvar Óli, f. 30. október 2002, b) Einar Örn, f. 2 mars 2006, og c) Hafþór Ingi, f. 26. október 2010. 3. Þórir Óli, f. 14. ágúst 1980. Gunnlaugur ólst upp á Hrappsstöðum til tíu ára aldurs, en flutti þá til Akraness með for- eldrum sínum. Hann var í barna- skóla á Akranesi, en á unglings- árunum tók vinnan við af skóla- göngunni. Hann vann við að beita og var á sjónum nokkrar vertíðir. Eftir að hann flutti suður kom hann norður í Víðidal á vorin og var sumarlangt hjá Ínu, systur sinni, og Hannesi, manni hennar, sem bjuggu í Galtanesi. Þegar Galta- nesárunum lauk fór Gulli að Kveðja frá Einari til afa. Ég var oft í Nípukoti og gerði þá ýmislegt með afa. Þegar ég var lítill fékk ég að vera í rúllu- vélinni þegar afi var að rúlla. Mér fannst mjög gaman að fylgjast með hvernig afi stjórn- aði tækjunum og rúllurnar urðu til. Ég var stundum að hjálpa afa í girðingarvinnu við að bera staura og rúlla niður neti og gaddavír. Svo vorum við oft saman að vinna í fjárhúsunum. Þegar afi var orðinn lasinn og gat ekki gert mjög mikið langaði hann samt til að fara í fjárhúsin. Þá gat hann merkt kindurnar þegar verið var að gera eitthvað í fjárhúsunum. Stundum þurfti hann að vera með hækjur og þá var ég að hjálpa honum. Afa fannst líka gaman að fara í rétt- irnar til að sjá kindurnar þegar þær komu af heiðinni. Einu sinni var hann á fullu að draga kindurnar, seinna stóð hann við hliðið á dilknum, fylgdist með okkur draga og hleypti kindun- um inn. Afi kom alltaf til okkar á gamlárskvöld og þá fannst okk- ur báðum gaman að horfa á brennuna og flugeldana. Takk fyrir samveruna, afi minn, Einar Örn Sigurðsson. Þá hefur Gulli frændi í Nípu- koti, föðurbróðir minn, kvatt þessa jarðvist en síðustu árin voru honum erfið þegar líkam- legt þrek hans var þrotið. Hann eins og öll systkinin frá Hrapps- stöðum, þekktu ekki annað en að vinna og þau skiluðu öll miklu ævistarfi. Þegar Gulli lést voru ekki liðnar nema nokkrar vikur frá því að Jóney systir hans lést og nú er einungis Unnur á lífi af þeim systkinum frá Hrappsstöð- um. Gulli er einn af eftirminni- legustu og skemmtilegustu mönnum sem ég hef kynnst og umgengist um ævina. Ég var svo heppinn að eiga margar ánægjustundir með Gulla en reyndar voru allar stundir með honum ánægjustundir og það var aldrei leiðinlegt þar sem Gulli var. Stundirnar með Gulla tengdust nær allar búskap og þá aðallega göngum á Víðidals- tunguheiði en ég var svo hepp- inn að fara í margar göngur, bæði fyrri og seinni göngur, með Gulla og var hann gangnastjóri í mörgum þeirra. Ég fullyrði að hverjar göngur með Gulla voru á við marga sálfræðitíma þó þeir geti verið góðir. Gulli vildi að menn kláruðu sína göngu og ef menn gerðu það var hann ánægður. Hann þoldi það hins vegar mjög illa ef menn stóðu sig ekki vel og hann gat ekki fyrirgefið það ef menn skildu eftir skepnur nema gildar ástæður væru fyrir því. Þegar Gulli var fyrst gagnastjóri voru ekki margar konur í göngum en þeim fjölgaði með árunum en það breytti engu hjá Gulla því hann ávarpaði gangnamenn ávallt með því að segja piltar mínir. Konurnar tóku þessu ekki illa enda tók því enginn illa sem Gulli sagði enda ekki hans háttur að tala illa til fólks eða um fólk. Gulli var mikill húm- oristi og mörg gullkornin komu frá honum. Ég man eitt sinn þegar við vorum að koma úr göngum og stoppað var til að borða nesti að einn úr hópnum var að borða hrökkkex og ég sá að Gulli horfði á manninn og þótti greinilega undarlegt að menn væru að borða slíka fæðu í göngum og síðan sagði hann sjáið hvað maðurinn er að éta og þótti greinilega ekki mikið til fæðunnar koma. Enda held ég að Gulli hafi verið einn af þeim sem töldu að íslenskur þjóðlegur matur væri það eina sem menn ættu yfirleitt að leggja sér til munns. Þegar eitt- hvað gekk ekki eins og það átti að ganga sagði Gulli gjarnan Guð minn almáttugur og það orðatiltæki held ég að margir sem hafa umgengist Gulla noti enn þá og þar á meðal ég með Gulla frænda í huga. En það er gert með góðum huga eins og allt annað sem tengist Gulla. Ég var einnig svo heppinn að vera í heyskap með Gulla tvö sumur í Nípukoti fyrir um 40 árum. Þetta voru ein bestu sumur sem ég hef átt um ævina. Þá var aldrei lognmolla og aldr- ei leiðinlegt enda var návist við Gulla þá eins og alltaf sálarbót. Góðar minningar um Gulla frænda munu lifa í mínum huga og fjölda annarra um ókomna framtíð. Það léttir öllum lund- ina að rifja upp skemmtilegar sögur af Gulla enda eru það bara góðar sögur. Ég sendi Sigrúnu, Evu, Sig- urði Birni, Þóri Óla og barna- börnum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu Gulla frænda. Ingi Tryggvason. Í dag verður nágranni minn Gunnlaugur Björnsson í Nípu- koti jarðsunginn. Gulli hefur staðið mér næst alla mína ævi utan fjölskyldu. Það er stutt á milli bæjanna í „Aldingarðin- um“ og var því ávallt mikill samgangur. Á meðan mjólkur- framleiðsla var heima var alltaf komið af hinum bæjunum til að ná í mjólkurvörurnar sem komu með mjólkurbílnum og var þá oftast komið inn í kaffi og farið yfir það helsta sem var á döf- inni og var þá ekki komið að tómum kofunum þar sem Gulli var. Hann fylgdist vel með öllu sem í hans samfélagi var að gerast, hafði metnað til að vel farnaðist og vildi leggja góðum málefnum lið. Gulli keypti ung- ur jörðina Nípukot í Víðidal og kom þar upp mjög myndarlegu búi. Hann helgaði jörðinni lífs- starf sitt, vann þó nokkuð á jarðýtu á yngri árum og fór lengi í sláturvinnu á haustin. Gulli var í raun athafnamaður í orðsins fyllstu merkingu, ekk- ert að tvínóna við hlutina held- ur vildi hann þegar búið var að ákveða að gera eitthvað að í það væri bara gengið og það strax. Hann var sannur ungmenna- félagsmaður, starfaði lengi í skemmtinefnd Umf. Víðis og eins sem formaður húsnefndar félagsheimilisins Víðihlíðar. Á öðrum vettvangi var hann líka mikilvirkur, hann var gangna- stjóri í áratugi í göngum á Víði- dalstunguheiði, sannur foringi og nýttist atorkusemin þar hon- um vel. Sem nágranni reyndist Gulli okkur á Þorkelshóli af- skaplega vel, alltaf boðinn og búinn til að hjálpa ef aðstoðar þurfti við og var það eins og hann fyndi það á sér ef hans væri þörf. Gulli átti það til að rugla orðatiltækjum svolítið saman en var orðheppinn og átti létt með að fá hlátur að launum og hafði raunar mjög gaman af því að fá fólk til að hlæja. Margt áttum við saman að sælda sem ekki verður hér samantekið en við þessi lok okkar samveru er það fyrst og fremst þakklæti sem kemur í hug mér fyrir allt traustið, hjálpina og þægileg samskipti. Minning um góðan félaga lifir. Ykkur, Sigrún, Eva, Sigurður Björn, Þórir Óli og barnabörn- unum, votta ég mína samúð og samhug. Júlíus Guðni Antonsson. Gunnlaugur Björnsson ✝ Guðrún Ágústa Svein- björnsdóttir fædd- ist 12. september 1934 í Litlu-Ávík. Hún lést 26. des- ember 2020 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hólmavík. Foreldrar Guð- rúnar Ágústu voru Þórdís Jóna Guð- jónsdóttir, f. 20.11. 1913, d. 10.7. 2000, og Magnús Svein- björn Guðbrandsson, f. 15.5. 1886, d. 15.4. 1944. Systkini: Halla Kristinna, f. 1932, d. 1988, Sigursteinn, f. 1938, Lýður, f. 1940, d. 2018, Sigríð- við í september 2019 og fór þá til Hólmavíkur. Börn: Þórólfur, f. 25.4. 1955, Sveindís, f 1.6. 1957, gift Háv- arði Brynjari Benediktssyni, þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. Sigurjón, f. 18.10. 1958, d. 8.9. 2000, hann var kvæntur Sigríði Jónu Jóhannsdóttur, börn þeirra eru þrjú og eitt barnabarn. Jóhanna, f. 2.4. 1960, gift Stefáni Sigurðssyni, þau eiga tvö börn og þrjú barnabörn. Margrét, f. 7.4. 1962, gift Kristjáni Kristjánssyni. Mar- grét á tvö börn með fyrri manni, Bjarna Brynjari Ing- ólfssyni, og fimm barnabörn. Guðrún, f. 27.8. 1966, gift Jóhanni Áskeli Gunnarssyni, þau eiga fimm börn og eitt barnabarn. Guðrún Ágústa var jarð- sungin frá Árneskirkju í Tré- kyllisvík þann 19.6. 2021. ur Anna, f. 1943, d. 2015, Svein- björn, f. 1944, d. 2012. Sammæðra: Jón Guðbjörn Guð- jónsson, f. 1952. Guðrún Ágústa giftist Guðfinni Ragnari Þórólfs- syni, f. 4.7. 1926, d. 1.1. 1981, bónda, sparisjóðs- stjóra og landpósti. Þau gift- ust 10.7. 1954 og hófu búskap á Kjörvogi en fluttu svo í Ár- nes. Guðrún Ágústa bjó í Árnesi frá 1956 til 1982 og flutti þá í Kaupfélagshúsið í Norðurfirði þar til hún þurfti umönnunar Elsku Gústa. Ég hef það ekki í mér að skrifa minningargrein en lang- ar að skrifa þér bréf. Ég þakka þér góðu stund- irnar og einnig þær sorglegu. Ég kynntist Sigurjóni, syni þínum, í des. ’88 í Kjallaranum er hann sleit tölu af jakkanum mínum og ég lét hann sauma töluna á fullviss um að hann kynni ekki að festa tölu, en þetta kvöld geymdi ég nál og tvinna í töskunni minni og talan er ennþá föst. Þetta var upp- hafið af okkar kynnum. Þú tókst á móti mér opnum örm- um. Mín fyrsta upplifun við að hitta þig var þessi; brosið, hlát- urinn, glettnin og þú varst ennþá þessi bóndakona sem ég hafði lesið um í bókum, sem settist síðust við matarborðið og byrjaðir ekki sjálf að borða fyrr en allir voru búnir að fá sér. Farið í búrið, sagðirðu, þið verðið að fá ykkur eitthvað, það er nóg til. Já, þar var alltaf nóg til. Allir hlutir voru vel nýttir. Pokar og fleira þvegið, þurrkað og nýtt. Ekki má gleyma jóla- gjafapokunum, þar varstu langt á undan þinni samtíð. Við hringdumst á til að leita frétta af fólkinu okkar. Þú tókst á móti okkur á sumrin fram á haust þegar leitir voru. Svo er það handavinnan, kona góð, þú varst snillingur í höndunum alveg sama hvað þú gerðir, saumaðir, prjónaðir, málaðir á postulín eða bakaðir. Krakkarnir mínir, ég, pabbi, Mæja systir og fjölskylda fengu senda sokka frá þér um jólin. Þú varst eins og ég sagði áðan, svona sögupersóna úr gömlum sögum þar sem húsmóðirin gat allt, gerði allt og allir dáðust að. Þú komst 1-2 sinnum á ári suður að kíkja á okkur og það var alltaf gaman. Hef oft hugsað til þín, Gústa mín, hvernig þú áorkaðir öllu sem þú gerðir, hvort sem þú varst bóndakona eða komin til Norðurfjarðar og vannst í fisk- inum, Sparisjóðnum, sláturtíð- inni og auðvitað með heimili, og öll handavinnan og allt hitt sem þú áorkaðir! Dáist að þér, mín kæra Gústa! Svo kom eitt áfallið þegar Sigurjón dó. Þú misstir mann- inn þinn 20 árum fyrr. Man þú sagðir við mig, að missa mak- ann sinn væri sárt og erfitt en að missa barnið sitt sem ætti að lifa mann það væri annað. Og hvernig þú tókst á þessu skil ég ekki. Þú varst ótrúleg. Þegar við heyrðumst í síman- um, ég grátandi, yfirbuguð og þú þessi sefandi kona í síman- um: já, Sirrý mín, við ráðum þessu ekki, en lífið heldur áfram. Já, lífið hélt áfram og enn héldu símhringingarnar að ber- ast á milli okkar og við upp- lýstum hvor aðra um okkar nánustu. Svo fór nú að bera á krankleika hjá þér, mín kæra. Ef maður spurði þig hvernig þú værir þá sagðir þú aldrei að þér liði illa, en svörin voru kannski á þessa leið: jú, bara svona og svona, þetta er allt í lagi. En veikindin héldu áfram og þú varðst slappari og slapp- ari og best var fyrir þig að vera á sjúkraheimilinu á Hólmavík undir eftirliti. Símtölin okkar urðu færri og færri. Svo kom símtalið að morgni annars í jólum 2020 frá Sveind- ísi, að nú værir þú sofnuð svefninum langa og komin til þíns maka og sonar sem hafa tekið vel á móti þér, trúi ég. Minningin um þig lifir í hjarta mér. Takk fyrir að hafa eignast Sigurjón minn, föður barnanna minna. Takk fyrir allt, elsku Gústa mín! Kveðja Sigríður Jóna (Sirrý). Elsku amma, ég held að ég hafi aldrei sagt þér að mín allra fyrsta minning á sér stað hér, heima í Norð- urfirði, í eldhúsglugganum hjá þér. Litlu, þriggja ára mér, var lyft uppí gluggann til að vinka pabba. Í minningunni ert þú hjá mér, amma, mamma og Ey- rún. Hvern hefði grunað að þetta yrði síðasta sinn sem við sæjum hann á lífi. Mín önnur minning gerist nokkrum klukkustundum síðar. Við sitjum öll inni í herbergi hjá þér, höldum utan um hvert annað og grátum þessar hræði- legu fréttir. Þrátt fyrir þessar tvær sorg- legu minningar, eru allar aðrar minningar mínar héðan, og með þér elsku amma, yndislegar. Alltaf fylltist ég yfirgnæf- andi spennu þegar kom að því að fara í heimsókn til ömmu norður á Strandir. Að keyra inn á Strandinar og sérstaklega inn Norðurfjörðinn, þá finnst mér ég vera komin heim, en stór ástæða þess varst þú. Að sjá þig bíða eftir okkur, stundum í eldhúsglugganum, stundum úti á plani, var æð- islegt. Brosið þitt, hlátur og röddin fylltu mig gleði og ró. Þú áttir alltaf nóg af hinu ýmsa góðgæti og byrjaðir alltaf á því að reka okkur inn í búr eftir bita. Svo sátum við og spjöll- uðum um lífið og tilveruna, spiluðum og lékum okkur. Áhugasöm horfði ég á þig verka fiskinn, sem kom beint af sjónum, í eldhúsvaskinum. Betri fisk hef ég enn þann dag í dag ekki smakkað. Þú gerðir handa okkur alls konar heimaunnið föndur, sokka og vettlinga. Þú gafst okkur jóladiska og könnu, handmálaða af þér, sem eru í uppáhaldi hjá mér. Þú varst full af sögum og fróðleik. Ég elskaði að hlusta á þig segja frá lífinu í sveitinni. Eins og þegar þú sagðir mér frá því þegar þið genguð Naustvíkurskörð að Naustvík þar sem þið tókuð bát inn í Djúpuvík fyrir dansleiki. Síðan þá hefur mig alltaf langað að ganga þar yfir og mun gera einn daginn. Rafn Arnar Guðjónsson deildi viðtali í vikunni sem tek- ið var við þig 2014. Um leið og ég kveikti á því tók á móti mér þinn ljúfi hlátur og þín blíða rödd. Þá yfirtók mig hlýja við að heyra í þér, en um leið sorg þegar ég man að ég fæ ekki að knúsa þig aftur. Í skátahreyfingunni tölum við um að einstaklingur sem farinn er yfir móðuna miklu sé farinn heim. Nú er sál þín farin heim, þangað sem Finnur afi og pabbi hafa eflaust tekið vel á móti þér. Jarðneskar leifar þín- ar eru komnar heim í sveitina. Eftir lifir minning þín og ljós í hjarta okkar sem eftir sitjum. Ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir og minningar sem við eigum saman. Þær lifa áfram í hjarta mér. Elsku amma, takk fyrir mig og velkomin heim. Hafdís Jóna Sigurjónsdóttir. Guðrún Ágústa Sveinbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.