Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum vinnuföt fást einnig í 50 ÁRA Jenný fæddist á sjúkra- húsinu í Keflavík og ólst upp í Njarðvíkunum og gekk í Njarðvík- urskóla. „Þetta var lítið samfélag þar sem allir þekktu alla og það var gott að vera krakki í Njarðvík- unum.“ Eftir skól- ann fór Jenný að vinna á leikskól- anum Gimli í Njarðvík, 17 ára gömul, og var þar í sjö ár. Síðan fór hún að vinna á Hæfingarstöðinni með fötluðu fólki í Keflavík í nokkur ár. Árið 1998 fór hún til Óslóar í Noregi og fór þar í Rudolf Steiner-skóla. „Það var alveg meiriháttar góður tími. Ég var þar í tvö og hálft ár en um áramótin 2001 kom ég heim, og vann um tíma hjá fé- lagsþjónustu Reykjanesbæjar en haustið 2002 fór ég í þroskaþjálf- anám og útskrifaðist 2005. Ég var búin að kynnast Arnari, mann- inum mínum, og eftir útskriftina fór ég að vinna í Hinu Húsinu sem var ofboðslega skemmtileg vinna.“ Næst fór Jenný til MSS á Suð- urnesjum en þá tók fjölskyldan ákvörðun um að flytja til Hvammstanga þar sem Jenný er sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húna- þings vestra. „Ég lifi svolítið eftir mottói frá Astrid Lindgren og það er að gleyma aldrei barninu í sjálf- um sér. Ég reyni að hafa gaman og taka hlutina ekki of alvarlega og að Astrid skyldi segja þetta níræð finnst mér alveg magnað.“ Á mynd- inni er fjölskyldan ásamt skipti- nemanum Telia sem var hjá þeim í eitt ár. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Jenn- ýjar er Arnar Svansson, stuðnings- fulltrúi í Grunnskóla Hvamms- tanga, f. 5.11. 1967, og þau eiga saman Eyrúni Unu, f. 2006, og Sæ- þór Breka, f. 2013. Jenný Þórkatla Magnúsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Settu þér eitthvert markmið og þá fær líf þitt aukið gildi. Þú átt fullt í fangi með félagslífið þessar vikurnar. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú hikar ekki við að taka málstað annarra og færð tækifæri til þess að láta í þér heyra í dag. Ef eitthvað er ekki gam- an, skaltu sleppa því. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Hinn fullkomni maki lætur á sér standa en njóttu samt lífsins, hættu að leita, þá gerast hlutirnir. Taktu þér tak í útihlaupunum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Lánið leikur við þig og þú átt svo sannarlega skilið að njóta árangurs erfiðis þíns. Misstu ekki sjónar á því sem mestu máli skiptir þig í lífinu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Annað fólk gerir ýmsar kröfur til þín og stundum meiri en þú vilt sitja undir. Sýn þín á hluti er oftast allt önnur en annarra og því er leitað til þín í auknum mæli. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Fáðu hlutlausan aðila til aðstoðar því hann sér málið öðrum augum en þú og þitt fólk. Einhver slær þér gullhamra. 23. sept. - 22. okt. k Vog Haltu ró þinni þegar þú tekst á við erfiða einstaklinga. Sem betur fer kemur allt heim og saman hjá þér þegar þú skoðar hlutina ofan í kjölinn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ekki vera feiminn við að út- skýra mál þitt í vinnunni. Ef þú átt lausa stund ættir þú að dvelja í ró og næði úti í náttúrunni. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft að fá útrás fyrir sköpunarþrá þína svo þú kafnir ekki. Ekki láta vanmetakenndina ná tökum á þér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Láttu aðra ráða ferðinni í vinnunni í dag. Frá og með morgundeg- inum liggur leiðin upp á við að nýju. Taktu eitt skref í einu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú getur ekki breytt heiminum og ættir að líta þér nær og koma jafn- vægi á eigið líf. Farðu í ferðalag ef þú átt tök á því. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Nú skiptir öllu að nýta tímann vel og halda sér við efnið svo að þú náir að standa við gefin loforð. Mundu að leynd- armál eiga það til að komast upp. H alldóra Lóa Þorvalds- dóttir fæddist og ólst upp í Reykholti og á Brekkukoti í Reyk- holtsdal. Hún gekk í Kleppjárnsreykjaskóla og lauk þar grunnskólagöngunni. Þaðan lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri þar sem hún varð stúdent af félagsvísinda- braut árið 2001. „Ég hafði alltaf heyrt góðar sögur af MA og vildi prófa að búa á heimavist. Eldri bræður mínir tveir báru skólanum vel söguna og ég sé svo sannarlega ekki eftir þessari ákvörðun. Það myndast alveg gíf- urlega sterk sambönd á svona heima- vist. Svo eru svo sterkar hefðir í MA, eins og að hittast alltaf á fimm ára fresti, og ég hitti t.d. skólafélaga bara fyrir stuttu síðan. Síðan erum við 27 stelpur úr skólanum sem hittumst mjög reglulega yfir árið í stærri og minni hópum og það er alltaf jafn gaman.“ Á meðan Halldóra Lóa var í MA vann hún ýmis störf á sumrin, m.a. sveitastörf heima á bæ foreldranna og í gróðurhúsi eitt sumar og á Hótel Reykholti tvö sumur auk þess að vinna ýmis veitingastörf með skóla á Akureyri. Á Akureyri kynntist hún síðan eiginmanni sínum, Hermanni Daða, sem var við nám í Verkmennta- skóla Akureyrar. Eftir mennta- skólann vann Halldóra Lóa eitt ár á Akureyri en fór síðan suður. Þá um sumarið fór hún að vinna á Reykja- lundi og ákvað í framhaldinu að fara í sjúkraþjálfaranám en fann sig ekki í því og hætti. Árið 2002 hóf hún nám við Kennaraháskóla Íslands og brauðskráðist þaðan 2006 með B. Ed.-gráðu. En alltaf var hún að vinna með og vann t.d. tvö ár í bókhaldi hjá Verði Vátryggingafélagi með fjar- námi í Kennaraháskólanum. Ári síðar innritaðist hún í diplómanám í náms- og starfsráðgjöf sem lauk 2008. Þar sem hún var búin að finna sína hillu í náminu lauk hún við MA-gráðu við sama fag árið 2013. Árið 2005 fluttu Halldóra Lóa og Hermann Daði í Reykholt. „Ég var ekkert að plana að koma heim, þótt mér hafi alltaf liðið ákaflega vel hérna. Það varð bara til hugmynd hjá vinafólki okkar Hermanns um að flytja saman hingað og byggja saman í sveitinni. Við byggðum hlið við hlið en þau eru reyndar flutt núna. Það hefur verið virkilega gaman og gott að vera komin aftur á heima- slóðir. Ég hef alltaf verið svolítil sveitatútta í mér og elska fegurðina og kyrrðina í sveitinni.“ Fyrstu tvo veturna í Reykholti kenndi Halldóra Lóa á Kleppjárns- reykjum en fór svo í Landbúnaðar- háskólann þar sem hún var náms- og starfsráðgjafi til ársins 2014 þegar hún fór yfir til Háskólans á Bifröst. Síðastliðið haust var hún ráðin kennslustjóri á Bifröst. Þrátt fyrir að sinna krefjandi starfi og sinna fjölskyldunni finnur Halldóra Lóa sér alltaf tíma til að sinna félagsmálum. „Ég er alin svona upp. Pabbi er mikill félags- málakarl og hans hugsjón er sú að það þurfa allir að leggja sitt af mörkum til að búa til gott samfélag. Ég fer bara svolítið með það upp- eldi inn í líf mitt og fer í nemenda- félögin og leiklistarfélögin í skóla og hérna heima í ungmenna- félagið.“ Þá fór boltinn að rúlla og farið var að orða við Halldóru að gefa sig að stjórnmálum. Hún seg- ist hafa lesið allt um flokkana og fann sig best hjá Vinstri grænum. „Það er margt, en líklega helst um- hverfismálin, femínisminn og virð- ingin fyrir margbreytileikanum sem heillaði mest.“ Halldóra Lóa gekk til liðs við VG árið 2009 og var Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, kennslustjóri við Háskólann á Bifröst – 40 ára Fjallgöngur Hér er Halldóra Lóa og vinkona hennar Hafrún á Straum- nesfjalli og sést ofan í Rekavík. Elska kyrrðina og fegurðina í sveitinni NBA í Toronto Hér eru Hermann Daði, Skírnir Ingi og Halldóra Lóa á körfuboltaleik í Toronto, en þau hafa alltaf haft mikinn áhuga á körfubolta. Tvíburarnir Hér er mikil gleði því hér er Halldóra Lóa með yngstu börnin sín nýfædd, tvíburana Helgu Laufey og Steinar Orra sem fæddust árið 2011. Fjölskyldan Hérna er fjölskyldan heitum degi á siglingu í ferðalagi á Krít. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.