Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 1
F I M M T U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 152. tölublað . 109. árgangur .
UPPISTANDS-
SÝNINGAR
HVERT KVÖLD UNGIR OG EFNILEGIR
HÁLEITAR
HUGMYNDIR
HÚSAMEISTARA
N1-MÓTIÐ Á AKUREYRI 14 GUÐJÓN SAMÚELSSON 28REYKJAVÍK FRINGE FESTIVAL 64
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélags-
ins Play, segir félagið hafa selt tug-
þúsundir flugsæta. Búið sé að selja í
annað hvert flugsæti í júlí en síðan sé
þéttbókað í ágúst og í haust.
Play hefur áætlanaflug til Berlín-
ar í dag og á næstu þremur vikum
bætast við fjórir nýir áfangastaðir.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair Group, segir félagið verða
með 30 áfangastaði í júlí. Þar af 20 í
Evrópu og 10 í Norður-Ameríku.
Svo bætist við þrír áfangastaðir í
Evrópu í ágúst og einn í Norður-Am-
eríku. Með því verði samtals 34
áfangastaðir í boði innan nokkurra
vikna. Með auknu framboði sé
brugðist við aukinni eftirspurn.
Haustið farið að líta vel út
„Bókunarflæðið hefur verið nokk-
uð sterkt, sérstaklega Bandaríkja-
megin, síðustu vikur. Við erum að sjá
ágætis teikn inn á haustið og vet-
urinn. Við gerum ráð fyrir að vera
með metnaðarfulla flugáætlun í
haust og vetur. Staðan er nokkuð
góð og bókunarflæðið endurspeglar
það,“ segir Bogi Nils.
Þetta sé ekki síst að þakka góðri
eftirspurn frá Bandaríkjunum. Þá sé
eftirspurn að taka við sér frá megin-
landi Evrópu og Skandinavíu en hins
vegar sé komið hik á Bretana.
„Bretar opnuðu á ferðalög til
Portúgal og því fylgdi mikið framboð
flugsæta. Síðan var lokað fyrir ferðir
þangað aftur og tók það svolítið
sjálfstraustið af ferðaþjónustunni í
Bretlandi; ferðaviljinn og bókunar-
viljinn minnkaði aftur,“ segir Bogi
Nils. Þrátt fyrir að aðstæður séu
mismunandi eftir löndum sé góð
eftirspurn á mörgum lykilmörkuðum
félagsins. „Þannig að við höldum
ótrauð áfram og aukum flugið í
hverri viku sem líður,“ segir Bogi
Nils um ganginn hjá félaginu. »34
Þéttbókað hjá Play
- Hefur selt tugþúsundir sæta - Fyrsta Berlínarflugið í dag
- Icelandair verður með samtals 34 áfangastaði í ágúst
Miklir vatnavextir eiga sér nú stað
vegna leysinga á norðanverðu land-
inu. Á vef Veðurstofunnar í gær var
greint frá því að rennsli í Bægisá
hafi farið langt yfir 200-ára flóð, og
rennsli í Hörgá er á við 25-ára flóð,
en áin flæddi í gær yfir bakka sína á
nærliggjandi tún. Þá flæddi Fnjóská
yfir bakka sína á tjaldsvæðið í
Vaglaskógi, sem og Eyjafjarðará.
Segir í tilkynningu Veðurstof-
unnar að búast megi við áframhald-
andi vatnavöxtum vegna leysinga
þar sem hlýtt er í veðri og snjór til
fjalla, t.d. á Tröllaskaga og á Aust-
fjörðum. Íbúum á þessum svæðum
er ráðlagt að huga að eignum og
dýrum með þetta í huga. »2
Ljósmynd/Hulda Sigurðardóttir
Vatnavextir Eyjafjarðará flæddi
yfir bakka sína og upp á veg.
Varað við
frekari
leysingum
Glampandi sólskin var í gær á Norður- og Aust-
urlandi og nutu þessir íbúar í Neskaupstað veð-
urblíðunnar til fulls í gær, en þar var hitinn á
bilinu 22-23 °C þegar best lét. Á Egilsstöðum
náði hitinn mest 25,8 gráðum og sagði Björn
Ingimarsson, sveitarstjóri í Múlaþingi, í samtali
við mbl.is í gærkvöldi, að hitinn stæði yfir allan
sólarhringinn. Þá væru öll tjaldsvæði í sveitarfé-
laginu meira og minna full.
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Tjaldsvæðin full í veðurblíðunni fyrir austan
_ Gera má ráð
fyrir að borgar-
hagkerfið verði
þrjú til fimm ár
að ná jafnvægi
eftir kórónuveir-
una. Þetta segir
Dagur B. Egg-
ertsson borgar-
stjóri. Tekjur
borgarinnar
drógust saman,
miðað við áætlanir, um 11,4 millj-
arða kr. á veirutímanum og mikil
útgjöld féllu til.
„Við viljum vaxa út úr vandan-
um. Slá í og flýta framkvæmdum,“
segir borgarstjóri og nefnir þar
fjárfestingaætlunina Græna planið
sem nú er starfað eftir. Samkvæmt
því verða fjárfestingar borgarinnar
2021-2023 alls 175 milljarðar kr.
Dagur B. Eggertsson segist ekki
hafa ákveðið hvort hann haldi
áfram í stjórnmálum, en kosið verð-
ur til borgarstjórnar á næsta ári.
Borgin og þróun hennar til fram-
tíðar eigi þó hug hans allan. »16
Jafnvægi í rekstri
náist á 3-5 árum
Dagur B.
Eggertsson
Lægra verð - léttari innkaup
GOTT Á GRILLIÐ
Í NÆSTU NETTÓ
TILBOÐ GILDA 1. ! 4. JÚLÍ
Grillsneiðar
Fjallalamb
1.129KR/KG
ÁÐUR: 1.889 KR/KG
Nautamínútusteik
í cayennepipar marineringu
2.279KR/KG
ÁÐUR: 3.799 KR/KG
40%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
Ananas
199KR/KG
ÁÐUR: 398 KR/KG
50%
AFSLÁTTUR
FLUG TIL TENERIFE
09. - 14. JÚLÍ
VERÐ FRÁ 39.900 KR.
WWW.UU.IS | INFO@UU.IS