Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Riga miðaldaborg frá 12. öld.
Gamli tíminn og nýi mætast í borg sem ekki
á sinn líka. Miðstöð menningar og lista við
Eystrsaltið.
Vissir þú að Riga er ein mesta Jólaborg Evrópu ?
Fyrsta jólatréð í heiminum sem var skreytt, var í
Riga fyrir rúmum 500 árum eða árið 1510.
Aðventutíminn er svo sannarlega rétti tíminn til
að heimsækja Riga þar sem stór hluti borgar-
innar hefur verið skreyttur og skapar einstakt
andrúmsloft sem fangar alla sem þangað koma á
þessum tíma ársins.
Jólamarkaðir eru í gamla sögulega hluta borgar-
innar en sá hluti er á minjaskrá UNESCO.
Síðast en ekki síst má nefna allar verslunar-
miðstöðvarnar og aðrar verslanirnar sem kaup-
þyrstir íslendingar ættu ekki að láta fram hjá
sér fara. Þar má finna gæðavörur, merkjavörur,
allt það sem fólk er vant frá Íslandi og meira til.
Gerðu góð kaup fyrir jólin
Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900
info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
.
Aðventuferð tilRiga
Innifalið: Flug ásamt
öllum sköttum og
gjöldum, hótel með
morgunmat, akstur
til og frá flugvelli,
innlendur farastjóri.
95.600
á mann í 2ja manna
herbergi
27. til 30. nóvember og
4. til 7. desember 2021
Jólahátíðin í Riga
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR JÓNAS Í SÍMA 865 6346
EÐA Á NETFANGINU RAKANG@RAKANG.IS
Starfsmenn Suðurverks eru langt
komnir með að aka út landfyllingu á
eystri hluta Þorskafjarðar. Vest-
fjarðavegur mun fara yfir vegfyll-
ingu og brú í stað þess að fara fyrir
fjörðinn. Styttir þetta leiðina um 10
kílómetra.
Suðurverk bauð rúma tvo millj-
arða í verkið og var lægstbjóðandi.
Framkvæmdir hófust í vor. Dofri
Eysteinsson, framkvæmdastjóri
Suðurverks, segir að fyllingin sé
komin út í dýpsta álinn, þar sem brú-
in verður byggð. Þar er jafnframt
mesta sigið. Fyllingarnar verði látn-
ar síga og síðar verði grjótvörn rað-
að utan á. Lendingin að vestanverðu
er rétt sunnan við raflínumastrið
sem sést á mynd. Ekki er hægt að
byrja að aka út fyllingu þeim megin
fyrr en brúin hefur verið byggð og
vatni hleypt undir hana. Vegagerðin
vill tryggja að næg vatnsskipti geti
orðið til þess að vernda marhálm á
svæðinu og til þess að takmarka
straumhraða og botnrof. Auk þess
kemur fyllingarefnið að mestu leyti
úr skeringum við vegstæðið upp úr
Þorskafirði að austanverðu.
Fyrir utan vegfyllinguna og 260
metra steinsteypta brú þarf að
leggja veg að firðinum frá Kinnar-
stöðum að vestanverðu og frá Þóris-
stöðum að austanverðu. Vegurinn er
í heildina um 2,7 kílómetrar að
lengd. Dofri reiknar með að hefja
vinnu við brúna í haust, þegar sig-
kaflanum verður lokið, og brúin
verði tilbúin haustið 2022. Verktak-
inn á að skila af sér í júní 2024.
Vinnuflokkur Suðurverks fékk inni í
Hótel Bjarkalundi í vor. Þar verður
hann með ferðafólki í sumar og tekur
síðan yfir staðinn í haust, að ferða-
tímabilinu loknu.
Vegfylling út
í miðjan fjörð
- Framkvæmdir í Þorskafirði ganga vel
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Þorskafjörður Vegfyllingin er komin út í miðjan fjörð. Þar verður byggð 260 m steinsteypt brú yfir dýpsta álinn.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
leiðir nú í kvöld göngu um Þingvelli
sem ber yfirskriftina „Fjármál á
þjóðveldisöld“.
Gangan hefst
klukkan átta og
gengið verður frá
gestastofunni á
Hakinu á Þing-
völlum og endar
gangan við Þing-
vallakirkju. Ás-
geir segist í sam-
tali við
Morgunblaðið
lengi hafa haft
áhuga á fornsögunum og telur að
efnahagssjónarhornið verði oft und-
ir í umtali og kennslu um þessar sög-
ur.
Seldu sneið af sínu landi
Ásgeir telur líkur á að þeir sem
fyrst námu Ísland hafi sölsað undir
sig gífurlega stór landsvæði og selt
síðar sneiðar af sínu landi, og þannig
auðgast verulega. Almennt er þó svo
á litið að hluti landsvæðis þeirra sem
fyrst námu land hafi verið gefinn til
þeirra sem síðar komu, stundum til
þess að verðlauna þá eða til þess að
tryggja öryggi sitt gagnvart ná-
grönnum. Ásgeir hefur að undan-
förnu skrifað pistla um efnahags-
sjónarhorn fornsagnanna og birt þá
á Facebook-síðu sinni. Hann hefur
til dæmis skrifað um fjármál feðg-
anna Egils og Skallagríms, en einnig
um lánshæfi Gunnars á Hlíðarenda
og hvernig peninga- og lánavand-
ræði Gunnars hafa áhrif á atburða-
rás Njálu.
Spurður hvers vegna hann sé að
skrifa og tjá sig um þessi mál segir
Ásgeir: „Það fylgir því að vera seðla-
bankastjóri að ég get ekki mikið ver-
ið að tjá mig um hluti án þess að það
sé í nafni embættisins. Ég hef því
verið að skrifa þessa pistla um pen-
ingamálin á þjóðveldisöld, en það er
einn af þeim hlutum sem ég get enn
tjáð mig um á opinberum vettvangi.“
Lánshæfi Gunnars á
Hlíðarenda og silfur Egils
- Seðlabankastjóri leiðir sögugöngu um Þingvelli í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útsýni Gengið verður um Þingvelli og efnahagsmál fornsagnanna rædd.ÁsgeirJónsson
Staða og framvinda samstarfs-
verkefna, samstarfið við Bandarík-
in, fjölþáttaógnir og horfur í al-
þjóðamálum voru efst á baugi
ráðherrafundar í norræna varn-
arsamstarfinu (NORDEFCO) sem
lauk í gær.
„Norðurlöndin hafa verið að
þétta raðirnar í öryggis- og varn-
armálum á undanförnum árum og
norræna varnarsamstarfið hefur
vaxið og sannað gildi sitt. Fund-
urinn sýndi glöggt hversu þétt
samstarfið er og hve mikla sam-
leið ríkin eiga í öryggis- og varn-
armálum,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, utanríkis- og þróunar-
samvinnuráðherra, í fréttatilkynn-
ingu á vef utanríkisráðuneytisins.
Á fundinum undirrituðu Finn-
land og Noregur nýtt tvíhliða
samkomulag um varnarsamstarf
ríkjanna, en í því sambandi má
nefna að í fyrra undirrituðu Finn-
land, Noregur og Svíþjóð sam-
komulag sín á milli á vettvangi
samstarfsins, um að auka sam-
vinnuna í nyrstu hlutum ríkjanna.
Ræddu varnarsam-
starf norrænna ríkja