Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
7.30-16.30
Mjög gott úrval af gæðakjöti
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
lls 2.144 keppendur úr 216
liðum eru skráðir til leiks á
N1-mótinu í knattspyrnu
sem hófst á Akureyri í gær
og stendur fram á laugardag, 3. júlí.
Þetta er enn stærsti og umfangs-
mesti íþróttaviðburður ársins, en
mótið er nú haldið í 35. sinn og er fyr-
ir stráka í 5. flokki í fótboltanum.
Grasrótarstarf í knattspyrnu er
grundvöllurinn að framtíð í greininni
sem N1 hefur lengi stutt við með
þessu mótshaldi en framkvæmdin er í
höndum KA.
Setur svip á Akureyri
Einn þáttur í mótinu er svonefnd
Hæfileikamótun N1 og Knattspyrnu-
sambands Íslands. Í ár mætir Lúðvík
Gunnarsson á mótið, en hann stýrir
einmitt Hæfileikamótuninni, og fylg-
ist með þátttakendum og því má
vænta að margir eigi eftir að sýna sitt
besta með hann á hliðarlínunni.
„Það er mikil tilhlökkun hjá okk-
ur í KA fyrir mótinu, rétt eins og fyrri
ár, enda er N1-mótið einn af hápunkt-
um sumarsins hjá félaginu og við
hlökkum til að taka á móti strákunum
og aðstandendum þeirra,“ segir Sæv-
ar Pétursson, framkvæmdastjóri KA.
„Fátt setur sterkari svip á Akureyri
en einmitt þegar mörg hundruð
keppendur á N1-mótinu mæta til
leiks og gleðin og fögnin yfirgnæfa
allt annað. Það eru forréttindi að fá að
hafa umsjón með þessu frábæra móti
og samstarfið við N1, þjálfara, að-
standendur og að sjálfsögðu kepp-
endurna sjálfa er alltaf jafn gott.“
Fyrstu leikir N1-mótsins hófust
á hádegi í gær, miðvikudag. Boltinn
rúllar á mörgum leikvöllum, en alls
verða teknir 1.060 leikir. Eðli
íþróttanna samkvæmt komast þeir
bestu áfram og síðdegis á laugardag
verða úrslitaleikirnir leiknir. Endan-
leg úrslit ættu að ligga fyrir þá um
kvöldið.
„Hér á Akureyri fer vel um fót-
boltastrákana og þá sem þeim fylgja.
Hér er fullur bær af fólki og á götu-
skilti hér er hitinn sýndur vera 22
gráður. Gistingu hafa þátttakendur í
alls fimm skólum í bænum, flestir í
Verkmenntaskólanum og Brekku-
skóla. Svo koma allir í mat hingað í
KA-heimilið, en stóri íþróttasalurinn
hér er mötuneyti meðan á mótinu
stendur. Þegar best lætur eigum við
hingað von á um 2.500 manns í mat
þegar allt er talið – en aðföngin fyrir
mótið eru nærri tólf tonn af mat.“
Góður undirbúningur
„N1-mótið er alltaf eitthvað sem
fyllir okkur hjá N1 stolti, gleði og
ánægju og við vitum að fram undan
eru frábærir dagar,“ segir Þyrí Dröfn
Konráðsdóttir, forstöðumaður mark-
aðsdeildar og stafrænnar þróunar hjá
N1. „Við erum afar ánægð með sam-
starfið við KA, enda undirbúningur
allur og umgjörð mótsins með besta
móti hjá þessu rótgróna félagi. N1
mun halda áfram, sem fyrr, að styðja
grasrótarstarf bæði stráka og stelpna
um land allt og við hlökkum til að sjá
enn eina kynslóðina hefja leik á þessu
frábæra móti.“
Metþátttaka og mikil tilhlökkun
Boltafjör! Efnilegustu
fótboltamenn landsins
eru nú á N1-mótinu
á Akureyri. Meira en
2.000 keppendur og alls
1.060 leikir. Gleðin ríkir
og frábærir dagar eru
fram undan nyrðra,
þar sem sólin skín!
Ljósmyndir/Þórir Tryggvason
Tilþrif Þrumuskot á N1-mótinu á Akureyri sem í hugum leikmannanna ungu sem það sækja er eitt stórt ævintýri.
Áhorfendur Mömmur, pabbar, afar, ömmur, frænkur, frændur og vinir.
Í Skálholts-
dómkirkju er í dag
kl. 11 dagskrárlið-
urinn Óskalögin
við orgelið. Þar
leikur Jón Bjarna-
son, organisti
kirkjunnar, óska-
lög fyrir gesti,
sem geta verið lög
með Abba, Queen
eða Kaleo. Einnig íslensk sönglög og
sálmana. Svo mætti áfram telja. Fólk
mætir í kirkjuna, velur óskalög af lista
sem Jón spilar.
Viðburðurinn er sagður tilvalinn fyr-
ir fólk, fjölskyldur og hópa sem hafa
gaman af því að hlusta á lög og taka
lagið. Viðburðurinn er hluti af fjár-
öflun til fegrunar Skálholtsdómkirkju.
Tekið er á móti frjálsum framlögum. –
Leikurinn er svo endurtekinn 8. og 15.
júlí: fimmtudaga kl. 11.
Stemning í Skálholti
Leikur óskalög
á kirkjuorgelið
Jón Bjarnason
Yfirskrift dagskrár sunnudagsins 4.
júlí á Árbæjarsafni er Sirkus í bæn-
um. Þá á fólk von á kynlegum kvist-
um með magnaða hæfileika. Hægt
verður að berja augum loftfim-
leikafólk, galdramann, trúðinn Silly
Suzy, sem blæs sápukúlur í gríð og
erg, skeggjuðu konuna, ósýnilega
manninn í Suðurgötu og fleiri skraut-
legar persónur. Hjá sterkasta manni
heims má taka á því af öllum lífs og
sálar kröftum og fara í útileiki.
Á þorpstorginu verður hægt að
kaupa sælgæti og poppa. Þá verður
heitt á könnunni í Dillonshúsi og ný-
bakað góðgæti. Aðgangur á safnið
kostar 1.800 kr. en ókeypis er fyrir
börn, öryrkja og menningarkortshafa.
Líf og fjör í Árbæjarsafni
Sirkus í bæ
Árbæjarsafn Kynlegir kvistir mæta.
Rúmar 8,3 millj. kr. söfnuðust í fjár-
öflun Krónunnar og viðskiptavina
hennar, í samstarfi við átak UNICEF á
Íslandi sem bar yfirskrifina Komum
því til skila. Peningarnir fara í söfnun
fyrir dreifingu á bóluefni gegn Co-
vid-19 í efnaminni ríkjum. Upphæðin
nægir fyrir dreifingu 36.280
skammta til fólks í efnaminni ríkjum
heimsins. Í átakinu var viðskipta-
vinum Krónunnar boðið að bæta 459
krónum við upphæðina í viðskiptum.
Samtals gáfu viðskiptavinir Krón-
unnar 9.070 styrki á tveimur vikum.
Krónan gaf síðan krónu á móti hverri
krónu sem safnaðist frá viðskipta-
vinum.
„Við erum stolt af því að geta lagt
þessu verkefni lið og lögðum upp
með að jafna styrkinn sem við-
skiptavinir okkar lögðu til og tvöfalda
þannig upphæðina, “ segir Ásta Sig-
ríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri
Krónunnar. Birna Þórarinsdóttir,
framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
segir mikilvægt að sami árangur ná-
ist í bólusetningum á heimsvísu og
hér á landi. „Veiran spyr ekki um
landamæri og samstaða er mikilvæg.
Í þúsunda tali hafa viðskiptavinir
Krónunnar sýnt það í verki að þeim er
umhugað um að öll ríki heimsins fái
bóluefni,“ segir Birna.
Bóluefnum gegn Covid-19 er mjög
misskipt meðal ríkja heimsins. Ef
efnaminni ríki heimsins eru skilin eft-
ir er hætta á að ný afbrigði veirunnar
breiðist hratt út, bæði innan þeirra
og til annarra ríkja, segir í frétt frá
UNICEF. sbs@mbl.is
Krónan leggur lið í baráttunni við Covid-19
Styðja við dreifingu bóluefnis
Krónan Frá afhendingu styrksins góða sem veittur var UNICEF í vikunni.