Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 16

Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 16
VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Allar helstu hagfræðistofnanir heimsins segja að sparnaðarleiðin út úr kreppu, eins farin var eftir banka- kreppuna, sé röng og eiginlega hættuleg. Í samræmi við það hrund- um við af stað fjárfestingarátakinu Græna planið, sem er komið á sigl- ingu. Kolefnishlutleysi, orkuskipti, meiri lífsgæði, átak í viðhaldi skóla- húsnæðis og uppbygging nýrra og grænna hverfa og svæða; þetta er sýnin og endurreisnaráætlunin sem við störfum eftir,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík. Nýir leikskólar, samgöngur og veitingamenn á fullt Reykjavík er komin í sumarfötin. Fólk hefur flykkst út í sólina, eins og sést á grænum svæðum og við veit- ingahús í borginni. Ástæða er til að fagna og þar nefnir borgarstjóri sér- staklega hve vel hafi tekist til að halda starfsemi Reykjavíkurborgar nær órofinni veirumánuðina fimm- tán. Morgunblaðið hitti borgarstjóra nú í byrjun vikunnar hvar farið var vítt yfir stöðu mála í höfuðborginni. Samtöl við rekstraraðila og veit- ingamenn sem eru að fara á fullt að nýju eftir kórónuveiruna og opnun leikskóla við Njarðargötu, við Naut- hólsveg og Vogabyggð. Fram- kvæmdir við byggingu hverfis- miðstöðvar í Úlfarsárdal og frjálsíþróttavallar og íþróttahúss ÍR í Mjódd. Betri þjónusta við börn. Sam- göngu- og loftslagsmálin. Þessi mál eru þau sem Dagur nefnir að séu á sínu borði þessa dagana. En þau eru auðvitað fleiri, enda er í mörg horn að líta nú þegar samkomutakmörkunum vegna kórónuveirunnar hefur verið aflétt og líf að færast aftur í eðlilegt horf. Því má nú slá því föstu, segir borgarstjóri, að Hinsegin dagar og Gleðigangan með hefðbundnu sniði verði aðra helgina í ágúst og Reykja- víkurmaraþon og Menningarnótt 21. ágúst. „Borgarhagkerfið verður senni- lega þrjú til fimm ár að komast að nýju í jafnvægi eftir veiruna. Tölur í rekstri borgarinnar endurspegla mikinn samdrátt; meðan á veirunni stóð fóru tekjur borgarsjóðs og fyrir- tækja hennar niður um 11,4 milljarða króna miðað við áætlanir og mikil ófyrirséð útgjöld komu til,“ segir Dagur. „Við ætlum okkur þó að komast í gegnum þessar þrengingar eins hratt og kostur er. Við viljum vaxa út úr vandanum. Að slá í og flýta fram- kvæmdum við Borgarlínuna og sam- gönguinnviði, sem eiga að hefjast á næsta ári, er eitt af því. Það verkefni er í góðri samvinnu við Vegagerðina og ríkið.“ Borgarstjóri bendir jafnframt á áðurnefnt fjárfestingarátak sem hrundið var af stað í fyrra þegar áhrif faraldursins fóru að koma fram. Skv. því munu borgin og fyrirtæki hennar frá líðandi ári og út árið 2023 fjár- festa fyrir tæpa 175 milljarða króna í fjölbreyttum verkefnum. Nýir valkostir Lægri hámarkshraði í íbúðagötum, fjölgun grænna svæða, gerð hjól- reiðastíga, fækkun bensínstöðva, hlaupahjólavæðing og efling almenn- ingssamgana. Með nokkurri einföld- un má segja að þetta séu áherslumál meirihlutans í Reykjavík og stóra myndin: „Síðustu ár höfum við stigið mikil- væg skref í að takast á við óheillaþró- un í samgöngu- og skipulagsmálum í Reykjavík og breyta stefnunni úr gráum áherslum í grænar. Á sjöunda áratugnum var Reykjavík mörkuð sú stefna að verða hin fullkomna bíla- borg. Afleiðingin hefur orðið sú að fjöldi bíla er farinn að hægja á um- ferðinni, einkum á háannatímum,“ segir Dagur. „Áherslur okkar undan- farinn áratug eða svo hafa fyrst og fremst verið á aukna fjölbreytni og nýja valkosti í samgöngumálum, loftslagsmál, betri og skemmtilegri borg þar sem lífsgæði íbúa og hverfin hafa forgang. Og viljum borg þar sem enginn er út undan. Við verðum að taka loftslagsmálin föstum tökum, stuðla að menntun, velferð sem nær til allra og að allir hafi atvinnu. Þessi atriði tengjast lóðbeint við lífsgæði íbúanna. Ég held reyndar að lang- flestir vilji græna borg. Segja má að Reykvíkingar hafi verið á undan grænni stefnumörkun borgarinnar. Grænir garðar og skógrækt í íbúða- hverfum var langt á undan grænum áherslum borgarinnar.“ Grænu svæðin æ mikilvægari Grænu svæðin verða æ mikilvæg- ari, svo sem Klambratún, Laugar- dalur, Fossvogsdalur. „Hljómskálagarður og strand- lengjan sjálf eru vinsæl útivistar- svæði,“ segir Dagur. „Að ég tali nú ekki um Elliðaárdal sem er eins og þjóðgarður í borg. En við viljum tryggja að allir hafi aðgang að græn- um svæðum og leiksvæðum í sínu hverfi og nærumhverfi. Sýn aðal- skipulagsins er að allir borgarbúar hafi yfir 2.000 fermetra útivistar- svæði innan við 300 m frá heimili sínu. Það markmið næst nú fyrir 92% Reykvíkinga.“ Eftir því sem byggð í borginni verður þéttari og meira mannlíf á götunum verða grænu svæðin mik- ilvægari alls staðar í borginni, segir borgarstjóri. „Við erum einnig að byrja að þróa stór ný útivistarsvæði. Þannig stendur nú fyrir dyrum á næstu árum að gera Austurheiðar, sem liggja upp frá Rauðavatni í átt að Grafarholti og Hólmsheiði, að útivist- arsvæði með aðstöðu fyrir gangandi, hjólreiðafólk og hestamenn. Það er mjög spennandi verkefni.“ Endurlífga gamla hverfakjarna Borgarstjórnarkosningar eru eftir rúmlega eitt ár. Sjálfur kveðst Dagur B. Eggertsson enn ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann haldi áfram eða ekki; slíkt muni hann gera þegar nær dragi kosningum. „Ég hef verið borgarstjóri í sjö ár. Að taka við því embætti var í raun al- veg nýr starfsvettvangur – í svo mörg horn er að líta við stjórn þessa stóra fyrirtækis sem veltir á annað hundrað milljörðum króna á ári og starfsmennirnir eru meira en tíu þús- und. Þróun borgarinnar á hug minn allan. Borgin er síbreytileg í eðli sínu og sömuleiðis það að vera borgar- stjóri. Það eru mörg stór og jákvæð umbreytingarverkefni fram undan. Miklabraut og Sæbraut fara í stokk og umhverfi þeirra stórbatnar. Borg- arlínan verður að veruleika og við er- um að endurlífga gamla hverfakjarna um alla borg. Borgarsamfélagið mót- ast með virkri þátttöku almennings og Reykjavík er borg fjölbreytileik- ans og gleðinnar. Slíkt sjáum við vel nú þegar sólin skín og veiran er að baki.“ Sparnaður úr kreppu er hættulegur - Grænt plan í Reykjavík - Miklar fjárfestingar - Tekjur drógust saman á 12. milljarð kr. - Stór útivistarsvæði í þróun - Þróun borgarinnar á hug minn allan, segir Dagur, óákveðinn um framboð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarstjóri Borgarsamfélagið mótast með virkri þátttöku almennings og Reykjavík er borg fjölbreytileikans og gleðinnar, eins og við sjáum nú þegar sólin skín og veiran er að baki, segir Dagur B. Eggertsson í viðtalinu. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is KERAMÍK KVÖRN Fyrir salt, pipar og allar tegundir kryddjurta KYOTO KVÖRN 10 cm Eik – 8.490,- stk 17 cm Eik – 9.690,- stk MARMARABAKKI fyrir 2. kvarnir – 7.290,- Fyrir þremur til fjórum árum var mikil umræða um vanda á hús- næðismarkaði í Reykjavík, meðal annars vegna þess hve margar íbúðir voru þá í útleigu til ferða- manna. Svo breyttist landslagið. „Ýmsar íbúðir sem voru í útleigu til ferðamanna veit ég að hafa ver- ið seldar og eru komnar í hefð- bundin not. Sjálfur tel ég að hafa eigið opið fyrir að fólk geti að minnsta kosti til skemmri tíma leigt út eignir sína. Íbúðaskipti til dæmis eru alltaf vinsæl. Þegar þetta er hins vegar orðin heils- ársstarfsemi og sumir jafnvel með margar eignir í útleigu eiga að gilda sömu reglur og um aðra gistiþjónustu, hvað varðar örygg- ismál, skatta og fleira,“ segir Dag- ur B. Eggertsson og heldur áfram: Uppbyggingin heldur áfram „Í mörgu tilliti þarf meira jafnvægi í íbúðamarkaði í Reykjavík, eins og borgin hefur reynt að stuðla að með leyfisveitingum, skipulags- vinnu og öðru. Koma þarf í veg fyr- ir þessar miklu sveiflur í framboði húsnæðis og þurfa sveitarfélög, bankarnir og verkatakarnir að vera í sama takti. Sú mikla uppbygging sem verið hefur hér í borginni síð- ustu ár mun halda áfram til að mæta þessu; Reykjavík hefur mik- ið aðdráttarafl en skilyrði til jafns áframhaldandi vaxtar þarf að skapa.“ Skapa þarf meira jafnvægi SÍBREYTILEGAR AÐSTÆÐUR Í HÚSNÆÐISMÁLUM Morgunblaðið/Sigurður Bogi Miðborg Bærinn er fullur af húsum, orti borgarskáldið Tómas Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.