Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
+ +
tonna leyfi og framleiddi 30-40 tonn
af regnbogasilungi á ári.
„Við settum okkur strax þau
markmið að eftir tíu ár myndi fyrir-
tækið hafa að lágmarki 20 þúsund
tonna leyfi, framleiða yfir 10 þúsund
tonn á ári og vera skráð á hluta-
bréfamarkað. Öll þessi markmið
hafa náðst og vel það. Arctic Fish er
með yfir 70 starfsmenn, með leyfi til
að framleiða 23 þúsund tonn af laxi
og fer stækkandi. Áætlað er að
framleiðslan fari í um 12 þúsund
tonn á þessu ári. Fyrr á árinu var
Arctic Fish skráð í kauphöllinni í
Ósló og er með um 200 eigendur á
bak við sig,“ segir Sigurður.
Engin bylgja án Norðmanna
Sjálfbærni eldisins er ofarlega í
huga Sigurðar og hann segir að ekki
sé aðeins verið að selja fisk heldur
einnig sögu. Nefnir hann að kaup-
endur frá Asíu falli í stafi þegar þeir
sjá aðstæðurnar á Vestfjörðum.
Hvergi í heiminum er atlantshafslax
alinn í jafn köldum sjó og í Dýra-
firði. Hann segir það einnig einstakt
á heimsvísu að jarðhiti og græn
orka eru notuð til að framleiða seiði
í vatnsendurnýtingarkerfi. Notkun
jarðhitans sparar orku svo fram-
leiðslan er með eitt lægsta kolefnis-
spor landeldis sem þekkist. „Áfram-
eldið í sjó er vissulega við köld
skilyrði en þar er laxinn alinn með
enn minni raforkuþörf og í mjög
litlum þéttleika í samræmi við um-
hverfisvottarnir Arctic Fish.“
Þekkt er að norsk fyrirtæki eiga
meirihlutann í öllum stærstu sjó-
kvíaeldisfyrirtækjum landsins.
Spurður hvernig það hafi atvikast
segir Sigurður að hann hafi í upp-
hafi, eins og sjálfsagt stjórnendur
allra hinna sjóeldisfyrirtækjanna,
leitað til innlendra fjárfesta til að
taka þátt í fjármögnun stækkunar
fyrirtækisins en án mikils árangurs.
Hann segist hafa kynnt málið eins
og það er, fjárfestar þurfi að vera
tilbúnir að leggja fyrirtækinu til
fjármagn í mörg ár og fjármagnið
þurfi að vera þolinmótt, eins og sagt
er. Á upphafsárunum hafi enginn
verið tilbúinn að taka áhættuna.
Sigurður nefnir að saga laxeldis á
Íslandi hafi hrætt menn, þótt hún
hafi verið á allt öðrum grunni, og
vantað hafi þekkingu á þessari at-
vinnustarfsemi meðal fjárfesta.
Sigurður segir að sjávarútvegs-
fyrirtækin hafi sýnt mestan áhuga.
Hann bendir á að útgerðirnar séu
Höfum náð markmiðunum
- Sigurður Pétursson, stofnandi Arctic Fish, lætur af störfum á tíu ára afmæli fyrirtækisins - Kom
heim frá blómlegu fyrirtæki í Frakklandi til að byggja upp atvinnustarfsemi í gömlu heimabyggðinni
Morgunblaðið/Eggert
Á útleið Sigurður Pétursson hefur unnið að uppbyggingu Arctic Fish og telur tímabært að láta nú af störfum. Hann vill snúa sér að frumkvöðlaverkefnum.
Ljósmynd/Gusti Production
Mælingar Starfsmenn Arctic Fish meta fisk og mæla áhrif eldisins á um-
hverfið við sjókvíar. Rannsóknir og vöktun eru mikilvægur þáttur.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Allir þurfa að þekkja sinn vitj-
unartíma, sérstaklega frumkvöðlar.
Ég ætlaði aldrei að starfa svona
lengi við fyrirtækið. Við höfum náð
þeim markmiðum sem við settum
okkur fyrir tíu árum, þegar við
stofnuðum Arctic Fish og rétti tím-
inn til að hætta er á þessum tíma-
mótum,“ segir Sigurður Pétursson,
stofnandi og einn af stjórnendum
fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish á
Vestfjörðum. Hann lætur af störf-
um í dag, á tíu ára afmælisdegi
fyrirtækisins.
Sigurður er á eigin vegum að
koma upp fræðslumiðstöð fiskeldis
sem hann kallar Lax-Inn, við Mýr-
argötu í Reykjavík. Hann ætlar að
einbeita sér að því verkefni á næst-
unni og stefnir að því að opna í
haust.
Vildi byggja upp á Vestfjörðum
„Ég er ættaður að vestan, ólst
upp á Suðureyri. Ég fór vestur fyrir
nokkuð mörgum árum þegar ég bjó
í Frakklandi og fékk þá löngun til
að byggja upp atvinnustarfsemi á
svæðinu,“ segir Sigurður þegar
hann er spurður um tildrög þess að
hann fór út í fiskeldi á Vestfjörðum.
Hann bjó í Frakklandi í allmörg
ár. Fór þangað fyrst á vegum SÍF/
Alfresca, var framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar samstæðunnar og
stýrði meðal annars verkefnum sem
sneru að vinnslu, markaðssetningu
og dreifingu eldisafurða. Dóttur-
félög Alfresca í Frakklandi voru á
þeim tíma með mestu hlutdeild
neytendaafurða á markaðnum sem
er sá stærsti fyrir eldislax. Hann
fór út í eigin rekstur með stofnun
fullvinnslu- og sölufyrirtækisins
Novo Food árið 2006.
Sigurður hafði því mikla þekk-
ingu á markaðsmálum fiskeldis
þegar hann flutti heim til Íslands
með fjölskyldu sinni árið 2010 og
hóf ásamt Ingibjörgu Valgeirs-
dóttur, eiginkonu sinni, undirbún-
ing að stofnun eldisfyrirtækis á
Vestfjörðum. Guðmundur Stef-
ánsson var kominn inn í rekstur
Novo Food í Frakklandi og tók við
stjórnun þess þegar Sigurður flutti
heim. Í nafni Novo ehf. stofnuðu
þeir og eiginkonur þeirra Arctic
Fish 1. júlí 2011. Þá var Sigurður
eini starfsmaður félagsins og í kjöl-
farið festi Arctic Fish kaup á litlu
fiskeldisfyrirtæki, Dýrfiski ehf. á
Þingeyri.
Í upphafi var fyrirtækið með 200