Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð ekki vanar því að þurfa að binda fjármagn í jafn langan tíma og fisk- eldið krefst. Stundum hafi verið hægt að borga bátinn upp á einni vertíð. Það sé meiri skuldbinding að fara inn í fyrirtæki sem sé að fjár- festa í ígildi eins tugs togara. Málin þróðust þannig hjá Arctic Fish að fyrst kom viðskiptafélagi Novo Food, pólski fjárfestirinn Jerzy Malek, inn í fyrirtækið með stofnendunum og fimm árum síðar norska fiskeldisfyrirtækið Norway Royal Salmon (NRS) sem við skrán- ingu á hlutabréfamarkað eignaðist meirihluta hlutafjár. Með fjárfestunum kom ekki að- eins fjármagn til uppbyggingar heldur einnig reynsla og þekking á laxeldi. Nefnir Sigurður að Jerzy hafi fjárfest í eldisfyrirtækjum víða um heim og komið upp tæknibúnaði fyrir fiskeldi og byggt upp vinnslur. NRS hafi komið inn með þekkingu á laxeldi á köldum svæðum. Það hafi hjálpað fyrirtækinu í sinni sókn. Sigurður fullyrðir að ef erlendir fjárfestar hefðu ekki komið að fyr- irtækjunum væri þessi atvinnugrein ekki svipur hjá sjón. Hann viður- kennir þó að vissulega sé það eftir- sjá að hafa ekki getað fengið inn- lenda fjárfesta meira að félaginu. Nú sé félagið á hlutabréfamarkaði og því möguleikar til dreifðara eign- arhalds og meiri þátttöku innlendra fjárfesta. Tímamót í leyfamálum Starfslok Sigurðar hjá Arctic Fish eru að hans eigin frumkvæði. Hann segir að því fylgi vissulegar blendnar tilfinningar enda fyrir- tækið næstum því eins og barnið hans. Í upphafi hafi það verið rekið frá heimili hans og öll fjölskyldan tekið þátt. Velgengni þess sé því persónulegt mál hjá honum og mik- ilvægt að hafa með stuðningi sam- félagsins á Vestfjörðum átt þátt í eflingu atvinnulífs á æskuslóðum hans. Sigurður var framkvæmdastjóri Arctic Fish í mörg ár og seinni árin framkvæmdastjóri viðskiptaþróun- ar. Hann hefur öll tíu árin haft leyfamál á sinni könnu. Nú eru að verða tímamót í þeim efnum. Leyfi til eldis í Ísafjarðardjúpi sem fyrst var sótt um fyrir áratug verða væntanlega í höfn á næstu vikum eða mánuðum og stefnt að því að hefja lífrænt laxeldi þar næsta vor. „Ég ætla að taka mér fyrsta sum- arleyfið í tíu ár þar sem ekki liggja fyrir einhverjir fundir eða verkefni sem ekki þola bið. Ég mun samt hefja fríið á því að vera sjálfboðaliði með flokk í sumarbúðum KFUM og KFUK í Vatnaskógi, eins og ég hef gert í þrjátíu ár,“ segir Sigurður þegar hann er spurður að því hvað taki við. Hann segist ætla að fylgja eftir verkefninu um fræðslumiðstöð fisk- eldis og vonar að hægt verði að gera þann rekstur fljótt að sjálfstæðu verkefni sem geti með dyggum stuðningi félaga sem eru í fiskeldis- tengdum rekstri orðið sjálfbært. Sigurður neitar því ákveðið þegar hann er spurður að því hvort hann hafi hug á því að starfa við sjókvía- eldi hjá öðrum félögum eða að fara aftur inn í gamla fyrirtækið, Novo Food. Hann segir að Novo Food sé stórt fyrirtæki, enn stærra en Arc- tic Fish, og því vegni vel undir stjórn Guðmundar. Arctic Fish sé einnig að komast á lygnari sjó. Eignarhaldsfélag þess, Novo ehf., á 4% hlut í Arctic Fish og er þriðji stærsti hluthafinn. Sigurður segir að eigendur Novo hafi trú á fjárfest- ingunni og hafi engin önnur áform en að halda þeirri eign. „Ég er í eðli mínu frumkvöðull. Það eru ótalmörg tækifæri sem liggja í að nýta auðlindir hafsins betur og rækta í vatni á landi, með nýtingu auðlinda Íslands í jarð- varma og grænni orku. Mig langar að skoða frekari nýsköpun og tæki- færi á því sviði,“ segir Sigurður. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Grunneining Seiðastöð Arctic Fish í Tálknafirði er eina seiðaeldisstöðin hér á landi sem er með endurnýtingarkerfi vatns (RAS). Ákveðið hefur verið að stækka stöðina og með framkvæmdinni tvöfaldast framleiðslugeta hennar. „Í stað þess að vera alltaf að gagn- rýna þá sem búa í 101 Reykjavík og kynna sér ekki fiskeldi sem fyrst og fremst fer fram á landsbyggðinni en telja sig sérfræðinga í því ákvað ég að koma upp fræðslumiðstöð í því póstnúmeri. Tilgangurinn er að kynna fiskeldið og segja hvað það snýst um, allt frá hrogni til tilbú- inna afurða,“ segir Sigurður Pét- ursson um verkefni sitt, Lax-Inn, fræðslumiðstöð fiskeldis. Fræðslumiðstöðin er einka- framtak Sigurðar. Hann hefur ver- ið að ræða hugmyndina í mörg ár og leita eftir styrkjum, en án ár- angurs. Hann ákvað því að kaupa húsnæði sem stóð til boða á Mýrar- götu í Reykjavík og ýta verkefninu úr vör. Hann vonast til þess að önn- ur fiskeldisfyrirtæki og fleiri hagsmunaaðilar komi að því með honum og starfsemin verði sjálfbær áður en allt of langur tími líður. Fiskeldisfyrirtækin á Austfjörðum hafa þegar lýst yfir vilja sínum til að verða bakhjarlar. Ætlunin er að fræðslumiðstöðin verði opnuð í haust. Geti leitað á einn stað Margmiðlunartækni verður not- uð, auk samfélagsmiðla, til að kynna fiskeldið. Ætlunin er að miðla á skjám starfsemi fiskeldis víða á landsbyggðinni. Sigurður segir að fræðslan muni byggjast á þekkingu og reynslu þeirra sem starfa í greininni. „Fá- fræðin er víðar en á kaffihúsum í 101, hún er líka í stjórnkerfinu og víðar um samfélagið.“ Hann segir mikilvægt að fólk sem vilji fræðast um greinina geti leitað á ákveðinn stað. Hann reiknar með að skóla- hópar nýti sér aðstöðuna og ýmsir aðrir hópar. Bætir Sigurður því við að hátt í þúsund bein störf séu við fiskeldið og annar eins fjöldi óbeinna starfa. Þetta fólk þurfi á fræðslu að halda. Fræðslu- miðstöðin verður vettvangur til þess og að kynna hvað fer fram í ólíkum fyrirtækjum og á mismun- andi lausnum til aðlögunar um- hverfisins hér við land. „Umræðan er stundum eins og fiskeldi sé að hefjast á Íslandi en það hefur í raun verið stundað frá landnámi. Ísland er stærsti fram- leiðandi á bleikju í heiminum og í matfiskeldi á laxi í landeldi og á síðustu tveimur árum hefur sjóeldi vaxið hraðar hér en annars stað- ar.“ Sigurður sækir hugmyndir sínar meðal annars til Noregs þar sem finna má fræðslumiðstöðvar um fiskeldi. Ein slík stöð, The Salmon, er nærri miðborg Óslóar. Hún er styrkt af stjórnvöldum og er í rúm- góðu húsnæði fyrir fræðslustarf ásamt einhverjum besta sushi- veitingastað Noregs. Gagnrýnendur leiða umræðuna Sigurður er ekki sáttur við hvernig umræðan um fiskeldið hef- ur þróast. „Við fiskeldisbændur höfum ekki verið að standa okkur í því efni, hefur ekki tekist að koma á framfæri upplýsingum um það hvernig fiskeldið raunverulega er. Við höfum leyft andstæðingum fiskeldis að leiða umræðuna. Til dæmis hefur hugtakið „opnar sjókvíar“ orðið málvenja og mætti halda að þaðan streymi út stroku- fiskur. Þá er fullyrt að undir kvíun- um séu skítafjöll. Engin af þessum fullyrðingum stenst skoðun. Við er- um með vottaða framleiðslu. Arctic Fish hefur til dæmis verið með ASC-vottun á eldissvæðum sínum í fimm ár og nú hefur bæst við lífræn vottun, græna laufblaðið, frá Evr- ópusambandinu. Það eru fáar af- urðir matvæla á heimsvísu sem hafa slíka vottun. Írar standa fremst í lífrænu laxeldi en Íslend- ingar ættu að vera þar í forystu,“ segir Sigurður. Lax-Inn verður fræðslumiðstöð fiskeldis Morgunblaðið/Eggert Lax-Inn Starfsemi fiskeldis verða gerð skil með margmiðlunartækni í fræðslumiðstöðinni við Mýrargötu. Fáfræðin er víðar en á kaffihúsum í 101
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.