Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Körfur
frá 25.000 kr.
Startpakkar
frá 5.500 kr.
og margt
fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Töskur
frá 3.990 kr.
Diskar
frá 2.500 kr.
Fjarlægðarmælir
24.990 kr.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýlega fundust í geymslum á bæjar-
skrifstofunni í Bolungarvík teikn-
ingar að heildstæðu bæjarskipulagi
staðarins sem Guðjón Samúelsson
húsameistari ríkisins gerði árið 1924.
Engar af þeim tillögum sem finna má
í skipulagsdrögunum komust nokkru
sinni í framkvæmd, en eftir standa þó
spurningar um hvernig byggðarlagið
hefði orðið og mál þróast hefðu hug-
myndirnar orðið veruleika.
Áhrifamikill arkitekt
„Mér þetta einstaklega skemmti-
legar teikningar. Tel líka þarft að
gera þær sýnilegar, svo mikill áhugi
er á öllu því sem Guðjón gerði sem
áhrifamikill arkitekt,“ segir Jón Páll
Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungar-
vík, í samtali við Morgunblaðið.
Á síðasta ári var Finnbogi Bjarna-
son ráðinn byggingafulltrúi Bolung-
arvíkurkaupstaðar. Til þess að setja
sig sem best inn í byggingasögu bæj-
arins fór hann að leita að gömlum og
óskráðum teikningum. Í kjallara ráð-
húss bæjarins fann hann fljótlega
ýmis gögn og í geymslum í barna-
skólanum leyndist sitthvað fleira
bæjarskipulaginu viðvíkjandi. „Þetta
eru mjög merkilegar teikningar og
lýsa háleitum hugmyndum sem Guð-
jón setti fram fyrir tæplega einni
öld,“ segir Finnbogi.
Skipulag fyrir fjölda bæja
Teikningarnar að bæjarskipulag-
inu sýna byggð upp frá inngrafinni
höfn eða kví, sem siglt hefði verið inn
í eftir ljósmerkjum úr turni kirkju á
hafnarbakka. Íbúðarhúsin eru mörg
sambyggð, standa í röðum og mynda
ramma utan um bæ með margvís-
legri starfsemi. Einnig eru á teikn-
ingunum hugmyndir um fiskvinnslu-
hús og bæjarbú, hvar framleiddar
hefðu verið landbúnaðarvörur fyrir
fólk í byggð þar sem fiskurinn er
annars allt.
Ítarlega er sagt frá skipulagsvinn-
unni í Bolungarvík og víðar í bókinni
Guðjón Samúelsson húsameistari
sem kom út á síðasta ári, skráð af
Pétri Ármannssyni arkitekt. Fyrsti
staðurinn þar sem Guðjón gerði
skissur að bæjarskipulagi var Ísa-
fjörður. Sjúkrahúsið gamla, sem er í
miðju bæjarins og hýsir nú bókasafn
bæjarins, var reist þar árið 1925, ná-
kvæmlega á þeim stað sem Guðjón
sagði fyrir um. Annað komst ekki í
framkvæmd, og fæstar af þeim hug-
myndum sem hann setti fram í skipu-
lagshugmyndum sem hann vann upp
úr 1920. Þær voru, að Ísafirði og Bol-
ungarvík meðtöldum, fyrir Seyð-
isfjörð, Akureyri, Vestmannaeyjar
og Hafnarfjörð.
Fimleikasalur,
skóli og sjúkrahús
Í Bolungarvík var tillaga Guðjóns
að bæjarskipulagi að staðsetja
byggðina ofar í landinu en var gert.
Auk atvinnufyrirtækja átti svo að
reisa ráðhús, skóla, fimleikasal, lækn-
isbústað og sjúkrahús ofan við reisu-
lega kirkju, segir í bók Péturs Ár-
mannssonar. Allar teikningarnar
reyndust þó vera skýjaborgirnar.
Svo fór að menn, sem hreppsnefnd
Bolungarvíkur fól að rýna í tillög-
urnar, höfðu þær að engu, en þökk-
uðu fyrir.
„Mér finnst augljóst af teikning-
unum að dæma að Guðjón hefur kom-
ið hingað til Bolungarvíkur með skipi
utan af hafi,“ segir Finnbogi. „Slíkt
sést kannski á því að hann horfir upp
í brekkur frá fjöru, þar sem gert var
ráð fyrir inngrafinni höfn. Allar
byggingarnar sem tillagan gerir ráð
fyrir eru mjög reisulegar og stíl-
hreinar, sem helst í hendur við hug-
myndir húsameistarans um að bygg-
ingar ættu að bæta samfélagið og ala
á því góða í mannfólkinu.“
Hefði orðið glæsileg
Án þess að neitt hafi verið ákveðið
telja þeir Finnbogi og Jón Páll
bæjarstjóri verðugt að skipulags-
uppdrættir Guðjóns Samúelssonar
sem eru á snjáðum og gulnuðum
blöðum verði settir í aðgengilegt
form. Gerðir tölvutækir svo hægt
verði til dæmis að skoða þá í þrívídd
og stafrænu umhverfi.
„Mér finnst umhugsunarvert að
aldrei hafi neitt verið byggt sam-
kvæmt þessum teikningum. Ef til vill
voru þær þó óraunhæfar og sam-
félagið fyrir einni öld allt öðruvísi nú
en þá. En glæsileg hefði Bolungar-
víkin orðið hefði þetta náð fram að
ganga, segir Jón Páll Hreinsson.
Teikningar Guðjóns leyndust í geymslu
- Bæjarskipulag Bolungarvíkur frá 1924 fannst óvænt - Háleitar hugmyndir húsameistara ríkisins
- Inngrafin höfn og ljósviti í kirkjuturni - Öðruvísi bær - Skýjaborgir verði gerðar aðgengilegar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skissur Fyrir tæpri öld sá Guðjón Samúelsson fyrir sér að svona yrði
Bolungarvík. Ekki reyndist hljómgrunnur í Víkinni fyrir hugmyndunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áhugasamir Finnbogi Bjarnason byggingafulltrúi, til vinstri, og Jón Páll
Hreinsson bæjarstjóri rýna í teikningarnar sem fundust svo óvænt nýlega.
Íbúar í Bolungarvík eru nú alls um 960 og hefur fjölgað jafnt og þétt síð-
ustu árin. Flestir voru Bolvíkingar um 1.300 í kringum 1990, en þá tók við
langt samdráttarskeið sem varði næstu 20 árin eða svo. Fæstir urðu Bol-
víkingar um 900, sem var fyrir um áratug.
„Nýir bátar hafa verið keyptir og hingað fengist meiri aflaheimildir.
Hér er nóg að gera í sjávarútveginum og á fleiri sviðum atvinnulífsins,“
segir Jón Páll Hreinsson. Þannig er nú verið að byggja eða standsetja alls
25 nýjar íbúðir í Bolungarvík; einbýlishús og parhús. Þarna m.a. er verið
að breyta skrifstofu- og safnabyggingu í fjölbýlishús.
„Hingað hefur flutt fólk í sérfræðistörfum, svo sem í verkfræði, vís-
indum og tölvuleikjahönnun. Eftir kórónuveiruna er meiri skilningur á því
að fólk sinni störfum sínum hvaðan sem er,“ segir bæjarstjórinn.
Mikið er byggt í bænum
JAFN STÍGANDI Í ÍBÚAFJÖLDA Í BOLUNGARVÍK
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjávarpláss Meiri fjölbreytni í atvinnulífi og sóknarhugur er meðal íbúanna.
Tveimur upplýsingaskiltum hefur
verið bætt við spilið af togaranum
Clyne Castle, sem komið hefur ver-
ið fyrir í landi Hnappavalla vestan
Kvíár í Öræfasveit.
Clyne Castle strandaði við sand-
rif á Bakkafjöru við Kvíá 17. apríl
1919. Flakið er enn á sama stað, en
hefur látið mikið á sjá vegna veð-
urs. Í lok september á síðasta ári
var spili togarans komið fyrir við
hliðina á upplýsingaskilti um togar-
ann og öðru um skipströnd á suð-
austurströndinni. Nú hefur upplýs-
ingaskiltum um spilið sjálft verið
komið fyrir og eru þau bæði á ís-
lensku og ensku.
Félagið Bóasson/Clyne Castle
undir forystu Ólafíu Herborgar Jó-
hannesdóttur stóð fyrir fram-
kvæmdunum. Hún sá um hönnun og
samdi textana á skiltin, sem tengj-
ast togaranum, en skiltið um skip-
ströndin er verk Kvískerjabræðra,
sem nutu aðstoðar Sigurgeirs
Skúlasonar kortagerðarmanns og
Ragnars Franks Kristjánssonar,
fyrrverandi þjóðgarðsvarðar.
Upplýsingaskilti sett
upp við spil úr togara
Minjar Spilið úr togaranum Clyne Castle og nýju upplýsingaskiltin.