Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Frumgerð flugbílsins AirCar hefur lokið 35 mínútna fyrsta þróunarflugi milli flugvalla, en hann flaug sem leiðin lá milli borganna Nitra og Bratislava. Í bílnum er 160 hestafla BMW-vél sem gengur fyrir venju- legu bílabensíni og tengist hún skrúfu með óbreytanlegum skurði. Tveggja manna farartækið Air- Car er sköpunarverk slóvakísks verkfræðings að nafni Stefan Klein, sem segir flugdrægi fararskjótans um 1.000 kílómetrar í 8.000 feta hæð. Hann hefur lokið um 40 stund- um í þróunarflugi, en hámarksflug- hraðinn er 190 km/klst. Aðeins tek- ur rúmar tvær mínútur að breyta flugvélinni í bíl. Hún getur flutt tvo farþega. SLÓVAKÍA Flugbíll upp til skýja Ljósmynd/Klein Vision Flug og bíll Flugbíllinn flaug milli al- þjóðaflugvallanna í Nitra og Bratislava. Yfirvöld í París hótuðu í gær að banna rafskutlur í borginni nema öryggi þeirra verði stóraukið, hraði takmark- aður við 10 km/ klst í stað 50 km og að þær haldi sig frá gang- stéttum. Ástæðan er banaslys þar sem 31 árs kona lést er tvímennt rafskutla ók á hana. Ökumaðurinn, ung hjúkrunarkona, hefur verið ákærð fyrir manndráp af gáleysi. Það þyngir sekt hennar að hún flúði af vettvangi. Bannað er að fjölmenna á skutlu í Frakklandi og óheimilt er að aka þeim yfir 20 km/klst. þótt hægt sé. Um 15.000 leiguskutlur munu vera í umferð í París. Til að aka skutlu verður ökumaður að vera minnst 12 ára. Bannað er að aka þeim á gangstéttum. FRAKKLAND Hóta að banna rafskutlur í París París Maður á ferð á rafskutlu. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Milljónir manna í Vestur-Kanada og norðvesturríkjum Bandaríkjanna hafa verið varaðir við afleiðingum óvæginnar og banvænnar hitabylgju sem þrúgað hefur íbúa á svæðinu langleiðina í viku. Hvert hitametið á fætur öðru hefur fallið. Mjög hefur reynt á viðbragðs- sveitir frá því sl. föstudag en að sögn kanadísku lögreglunnar hafa minnst 134 manns dáið skyndilega á Van- couver-svæðinu á þeim tíma. Í borg- inni Seattle skýrðu læknar frá flóði fórnarlamba hitaslags. Vegna hækkandi skraufþurrs loft- hita í Kaliforníu er óttast að gróð- ureldar kunni að brjótast út. Veð- urstofa Bandaríkjanna varaði í gær við þurrum lofteldum sem auka hættuna á skógareldum. Embættis- menn segja eldatímabilið í ár þegar orðið skæðara en í fyrra sem var hið skaðlegasta frá upphafi. Þriðja daginn í röð náðu kvikasilf- ursúlur hitamæla kanadískra veður- stöðva hitamet í fyrradag, þriðjudag. Mældust 49,5°C í bænum Lytton í Bresku-Kólumbíu, sem er 250 km austur af Vancouver. Sumir íbúar borgarinnar sögðust aldrei hafa upp- lifað aðra eins hita. „Svona slæmt var það aldrei, annað eins hef ég aldrei séð. Vonandi verður ekki svona heitt aftur. Þetta er yfrið nóg,“ sagði kona að nafni Rosa. Tíðari hitabylgjur og vaxandi loft- hiti er skrifaður á breytingar í loft- hjúpi jarðar. Á heimsvísu var ára- tugur til ársloka 2019 sá heitasti sem mælst hefur frá upphafi hitamæl- inga. Þá eru síðustu fimm ár öll þau heitustu sem mælst hafa. Hitabylgjan nær allt norður í heimskautahéruð Kanada en orsök hennar er „hitabunga“, háþrýsti- svæði sem situr fast og lokar heita loftið inni. Methiti hefur líka mælst í bandarísku borgunum Portland (46,1°C) og Seattle (42,2°C). Þá hefur hitinn verið yfir 30°C marga daga röð í Vancouver við Kyrrahafs- ströndina eða um 7°C yfir meðalhita. Þar hafa mun fleiri en í meðalári lát- ið lífið, mestmegnis vegna hitanna, að sögn yfirvalda. Óvægin og banvæn hitabylgja - Mannfellir í methita í Kanada og Bandaríkjunum - Óttast að kvikni í gróðri AFP Hitabylgja Börn leita sér kælingar í fossandi vatni í garði í höfuð- borginni Washington DC. Bóndanum sem brynnir vísundum í ánni Ravi í Lahore í Pakistan er kórónuveiran og smit af hennar völdum tæpast ofarlega í huga, því heilsa skepnanna er framar öllu. Pakistanar eiga á morgun von á 2,5 milljónum skammta af bóluefn- inu Moderna að gjöf frá bandarískum stjórnvöld- um. Þau sendu og tvær milljónir skammta af bóluefninu Pfizer til Perú og 2,5 milljónir til Kól- umbíu. agas@mbl.is Buffallinn þarf sitt vatn AFP www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Vinsælu leikföngin fást hjá okkur Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Hlaupahjól My First Frozen Hlaupahjól My First Paw Patrol Squeeze boltar ColorChang 90 mm Plop up fidget JUMBO - Rainbow (12/72) Dimple Pimble-fidget leikur 14x13 cm Fidget-Hand Snapper Displ 36 Puffer-Caterpillar 26 cm 4 teg. Disp 12 Woof Strech-Hundur 4 lit Disp 12 Pufferz-Superglitter Bolti 12 cm Displ 12 Dimple Pimble Unicorn 17x15 cm Stressbolti XXL 10 cm 6 teg. Disp-6 Bolti MEGA BALL 6 litir 45 cm (10/60) Ferðaskrifstofa til sölu með gilt ferðaskrifstofuleyfi Lítil ferðaskrifstofa sem hefur sérhæft sig í móttöku ferðamanna frá Bandaríkjunum er til sölu. Engar skuld- ir fylgja kaupunum en tilbúin heimasíða, viðskiptasam- bönd og ferðaskrifstofuleyfi fylgja með í kaupverðinu. Fyrirtækið er hægt að yfirtaka strax þar sem kennitala og bankareikningar eru til staðar. Áhugasamir geta haft samband í síma 821-9997 eða sent fyrirspurnir á netfangið skk@london.is og fengið frekari upplýsingar. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.