Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
✝
Bjarni Ingimar
Steinarsson
fæddist í Borgar-
nesi 29. maí 1956.
Hann lést í
Straumfirði 17.
júní 2021. For-
eldrar hans eru
Steinar
Ingimundarson, f.
28.10. 1930, og
Sigrún Guðbjarna-
dóttir, f. 27.9.
1936. Systkini Bjarna eru
Svanur, f. 22.1. 1960, og Sig-
urlína Hrönn, f. 18.8. 1968.
Bjarni átti fimm börn. Logi,
f. 22.3. 1978, í sambúð með
Christina Mai, barn hans
Embla Sól og barn þeirra Zoe
Ósk. Móðir hans er Áslaug
Þorvaldsdóttir, f. 3.2. 1957.
Bjarni átti þrjár dætur með
Ragnheiði Gissurardóttur, f.
10.11. 1954, en hann ættleiddi
son hennar Ölver Þráin, f. 5.4.
þeirra eru Sigríður Elín, Íris
Björg og Jón Þór. Sædís Ösp
Runólfsdóttir, f. 28.1. 1987, gift
Sigurgeir Frey Pálmasyni,
börn þeirra eru Alex Máni,
Katla Sól og Elín Rós.
Bjarni var fæddur og upp-
alinn í Borgarnesi. Hann nam
málaraiðn og bílasprautun í
Borgarnesi ásamt því að læra
skiltagerð í Þýskalandi. Hann
sótti meistaranám í málaraiðn í
Reykjavík og starfaði sem mál-
ari og skiltagerðamaður allt
sitt líf. Bjarni var ötull í
félagastarfi á árum áður, bæði
innan Kiwanisklúbbsins og inn-
an körfuknattleiksdeildar
Skallagríms. Hann var meðal
annars sæmdur heiðursmerki
KKÍ árið 2016. Bjarni eyddi
mestum frítíma sínum í
Straumfirði á Mýrum við ýmis
störf.
Útför hans fer fram frá
Borgarneskirkju í dag, 1. júlí
2021, klukkan 14.
Streymt verður frá athöfn-
inni á:
www.kvikborg.is/
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
https://mbl.is/andlat/
1975. Dætur þeirra
eru: Sigrún Vatns-
dal, f. 4.9. 1979, í
sambúð með Birgi
Ólafssyni, börn
þeirra eru Saga
Vatnsdal, Emil Óli
og Dagur Árni. Ás-
rún, f. 17.10. 1985,
barn hennar Stein-
ar Flóki Þorkels-
son. Eyrún, f.
17.10. 1985, í sam-
búð með Ívari Erni Jóhannes-
syni, börn þeirra eru Hrafn-
hildur og Bjarni.
Sambýliskona Bjarna er Elín
Valgarðsdóttir, f. 3.11. 1953.
Börn hennar eru: Bergný Dögg
Sophusdóttir, f. 7.8. 1974, gift
Jóni Brandssyni, börn þeirra
eru Hafdís Ósk, Guðný Rós og
Ásdís Birta, d. 22.6. 2004. Sig-
urður Þór Runólfsson, f. 7.4.
1982, í sambúð með Helgu
Jónu Björgvinsdóttur, börn
Ýmislegt var Bjarnabrall
bjó hann oft í haginn
þannig fór um þennan kall
á Þjóðhátíðardaginn.
Var hann mjög til vinnu fús
víst hann kveð með trega
í Straumfirði nú stendur hús
stolt hans ævinlega.
Það var gott að þekkja hann
þokka góðan baŕann
stórar veislur styggðu hann
stríðnispúki vaŕann.
Núna hér kveð um sinn
farinn traustur strengur
blessi Drottinn Bjarna minn
bara öðlingsdrengur.
(S.V.J)
Margt er að minnast
Margt er að þakka
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast
Margs er að sakna.
Guð þerri trega tárin stríð.
(Valdimar Briem)
Blessuð sé minning þín.
Mamma, pabbi og
Lína systir.
Elsku Bjarni.
Við erum orðlaus og sár en á
sama tíma svo þakklát.
Þakklát fyrir að hafa fengið
þig í líf okkar. Alltaf stóðstu með
okkur og enn þá meira með
börnunum okkar. Öll börnin,
sem þekkja þig sem afa sinn
vegna þess eins að þú hefur unn-
ið þér inn þann titil með góð-
mennsku og mikilli þolinmæði.
Takk fyrir að taka þeim og okk-
ur öllum sem þínum og takk fyr-
ir öll árin þín með mömmu. Allt
sem þið gerðuð saman og allar
ferðirnar sem þið fóruð í, hvort
sem það var hringferð um land-
ið, ferð á Kanarí eða í Straum-
fjörð, uppáhaldsstaðinn ykkar.
Þín er svo sárt saknað. Hvíldu
í friði áhyggjulaus, við pössum
mömmu.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(Bjarni Jónsson frá Gröf)
Bergný, Sigurður og Sædís.
Elsku Bjarni. Ég trúi því
varla að þú sért farinn. Hvernig
má það bara vera? Það er skrítið
að geta ekki hitt þig aftur og tal-
að við þig. Það voru ófáar heim-
sóknirnar á milli bæjanna og
mikið gert grín og hlegið. Ég
mun alltaf muna hlátur þinn. Ég
man ekki eftir því að hafa ekki
þekkt þig, það er því meira en
lítið furðulegt að hafa þig ekki
lengur í nágrenninu. Ávallt
tilbúin að hjálpa ef þú mögulega
gast og tilbúinn með góð ráð ef
eftir þeim var leitað. Það var
gott að tala við þig. Við töluðum
um heima og geima og allt þar á
milli. Það sem þið Andri gátuð
hlegið hátt saman, þú varst svo
góður við Andra bróðurson
minn. Ég er þakklát fyrir það
hvað þið áttuð gott samband. Þú
varst líka svo góður vinur
mömmu og hjálpaðir henni mik-
ið, en hún átti ekki gott með að
biðja um hjálp. Þið Ella voruð
okkur svo mikil hjálp þegar
mamma féll frá. Ég vona að
mamma hafi tekið á móti þér og
þakkað þér fyrir góðvild þína og
hjálpsemi. Það er ómetanlegt að
eiga góða að. Það var ómetan-
legt að eiga þig að.
Það er erfitt að koma því í orð
hvað mér þótti vænt um þig og
hvað ég mun sakna þín mikið.
Mikið innilega vona ég að þú
hafir það gott núna og sért um-
vafinn þeim sem þegar eru farn-
ir.
Ég þakka mikið fyrir að eiga
svo margar minningar með þér
og allar góðar. Ég mun geyma
þær og eiga alla tíð í hjarta
mínu.
Megi ljósið og friðurinn um-
vefja þig.
Nellý Pétursdóttir.
Það var afleit frétt sem Ella
færði okkur á þjóðhátíðardaginn
17. júní. Bjarni er dáinn. Hann
lést af slysförum niðri í Straum-
firði. Hvað getur maður sagt,
hvernig bregst maður við? Einn
af mínum bestu vinum farinn
eins hendi væri veifað.
Í Straumfirði höfðu þau
Bjarni og Ella endurbyggt
gamla íbúðarhúsið og þar fannst
þeim gott að vera hjá sinni „stór-
fjölskyldu“. Leiðir okkar Bjarna
lágu fyrst saman fljótlega eftir
að ég flutti í Borgarnes 1980. Við
höfðum báðir mikinn áhuga á
íþróttum en ekki sams konar
íþróttum, þú á körfunni en ég
fótboltanum. Hver man ekki eft-
ir „kallinum með kústinn“ á
körfuboltaleikjum í íþróttamið-
stöðinni í Borgarnesi, allir sem
þangað sóttu leiki Skallagríms
sáu Bjarna þar á fullu mættan til
að hjálpa sínu félagi til góðs.
Svona liðu árin, hittingur og
stutt spjall á förnum vegi.
Bæjarpólitík og umræða um
framgang Borgarness var alltaf
ofarlega í huga Bjarna enda
fæddur og uppalinn Borgnesing-
ur. Málarameistarinn Bjarni var
lengst af með eigin rekstur,
húsamálun og skiltagerð, vinsæll
á sínu sviði. „Getur þú ekki
skroppið í Hveragerði og málað
húsið hennar mömmu að utan,
Bjarni?“ sagði ég eitt sinn við
hann. „Jú jú, ekkert mál, ég tek
bara Loga með og við reddum
því.“ Þannig þekkti ég Bjarna,
„ekkert mál“.
Í nóvember 1995 stofnuðum
við fjórir vaskir félagar, málari,
rafvirki, bakari og bóndi, Digra-
nes ehf. Tilgangur félagsins var
að kaupa húseignina Brákar-
braut 13, núna Landnámssetrið,
endurgera húsið, opna þar veit-
ingahús og skemmtistað. Þar
hófst samstarf okkar Bjarna á
vettvangi atvinnulífsins. Búðar-
klettur var opnaður eftir gagn-
gerðar lagfæringar, stórglæsi-
legt hús og vinsæll
skemmtistaður. Þetta var frá-
bær tími. Kvöld- og helgarvinna
og ekkert gefið eftir. Eitt var
það sem ákveðið var og sam-
þykkt af okkur öllum og ég verð
að segja frá, „áfengisbann hjá
eigendum þegar þeir voru á
vaktinni“, það stóð. Þarna unn-
um við saman félagarnir og kom
þá fljótt í ljós innri maður hvers
og eins og þakka ég Bjarna frá-
bær samskipti, traustur maður.
Eftir að Búðarklettur var
seldur héldum við vinskapnum
óbreyttum, alltaf spjall og hitt-
ingur. Saman fórum við til Spán-
ar að sumri til í ágætisferð og
reglulega höfum við verið á
sama tíma á Kanarí fyrir vet-
urinn. Ekki má gleyma árlegu
þorrablóti hjá Ellu og Bjarna,
allt heimalagað að hætti Ellu og
Bjarni á tánum í þjónshlutverk-
inu.
Kærar þakkir Bjarni minn
fyrir samfylgdina, sendum for-
eldrum og systkinum, sambýlis-
konu og börnum þínum og
þeirra fjölskyldum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Jakob og Jóhanna (Júdý).
Það var á haustmánuðum
2014 að ungur drengur af Barða-
ströndinni var að hefja skóla-
göngu í Menntaskóla Borgar-
fjarðar og vantaði hann
íverustað fyrir veturinn. Frétt-
um við af herbergi til leigu á
Þorsteinsgötu 5, hjá Ellu og
Bjarna. Gengið var frá því að
drengurinn yrði til húsa þar,
með aðgengi að eldhúsi og skyldi
sjá um sig sjálfur. Eftir fyrstu
vikuna var hann orðinn einn af
heimilisfólkinu, þau tóku honum
opnum örmum og var hann í vel-
lystingum þar. Tveimur árum
seinna fara tveir bræður hans
einnig í sama Menntaskóla og
urðu þeir líka heimilisfastir á
sama stað. Voru þeir allir þrír
samtíða eitt og hálft skólaár hjá
þeim. Það sem við foreldrarnir
og ekki síst strákarnir vorum
heppin með þessar ráðstafanir.
Þarna nutu og njóta þeir alls
hins besta hjá því sómafólki Ellu
og Bjarna, eða „painternum“
eins og þeir kölluðu Bjarna jafn-
an. Hjá þeim og með þeim var
mikið bardúsað og brallað, ekki
síst í Straumfirði. Þar voru m.a.
geltir folar, lömb handsömuð og
mörkuð að vori og farið í eggja-
töku á báttuðru. Einnig aðstoðað
við málningarvinnu, t.d. málaðir
ljósastaurar o.fl. Og Bjarni var
betri en enginn þegar kom að
því að útbúa límmiða á hitt og
þetta í skúrnum. Þeir voru mikl-
ir félagar allir, þótt aldursmunur
væri töluverður. Lista málari
var Bjarni, þess bera m.a.
Brjánslækjarkirkja og Gamli
bærinn merki, en hann kom
vestur síðasta sumar og málaði,
þótt dagskráin hans væri vel
þétt. Þá var spjallað og hlegið. Í
dag kveðjum við Bjarna „pain-
ter“ og þökkum honum fyrir allt,
ekki síst góðar og skemmtilegar
minningar sem hann skilur eftir
hjá okkur. Aðstandendum öllum
færum við innilegar samúðar-
kveðjur. Minningin um góðan
dreng lifir áfram.
Jóhann Pétur, Halldóra
og fjölskylda, Brjánslæk.
Í dag kveðjum við bekkjar-
bróður okkar, Bjarna Steinars-
son. Hann var ljúfur drengur allt
frá æskuárum okkar á Holtinu,
og allar götur síðan. Á þessum
árum snerist lífið um leiki og alls
konar skemmtilegheit, og allar
heimsins áhyggjur víðs fjarri.
Krakkar stóðu saman, einn fyrir
alla og allir fyrir einn var mottó-
ið. Þó örlaði á smá hverfaríg á
stundum. Góðar minningar eru
líka frá skólaárunum, bekkurinn
okkar fámennur og ágætisvin-
skapur varð til. Margt brallað
fyrir utan hefðbundið nám og
geymum við þær minningar með
okkur. Það sem einkenndi
Bjarna var glaðværðin, alltaf í
góðu skapi, sem smitaði út frá
sér. Hlýjan fylgdi honum alla tíð.
Bjarni var töffari, og sá
skemmtilegasti í bekknum.
Hann var drengur góður og við
söknum hans. Fjölskyldu hans
sendum við okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur. Minningin um okk-
ar kæra bekkjarbróður lifir.
F.h. árgangs ’56 við Grunn-
skólann í Borgarnesi,
Signý Birna Rafnsdóttir.
Bjarni Ingimar
Steinarsson
Okkar ástkæri
ÓLAFUR S. PÁLSSON
rafvirkjameistari,
Sauðárkróki,
lést á HSN Sauðárkróki 18. júní.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 2. júlí klukkan 11.
Streymt verður frá athöfninni.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarfélög.
Páll Arnar Ólafsson Linda Hlín Sigbjörnsdóttir
Eva Hjörtína Ólafsdóttir Hjörtur Skúlason
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
ÓLAFÍA ALBERTSDÓTTIR,
Köldukinn 23, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi sunnudaginn 27. júní.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 7. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag áhugafólks
um Smith-Magnis heilkenni (SMS) banki 537-26-4930 og
kt. 491213-0190.
Viðar Gunnarsson Þuríður Jónsdóttir
María Gunnarsdóttir Friðbert Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT GEIRSDÓTTIR,
Stóragerði 22,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 25. júní.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 6. júlí klukkan 15.
Geir Þorsteinsson
Grétar Þorsteinsson
Ástdís Þorsteinsdóttir Páll Daði Ásgeirsson
og barnabörn
Kær bróðir okkar og frændi,
SIGURÐUR VALGEIRSSON ÞORMAR,
Furugrund 34, Kópavogi,
varð bráðkvaddur 27. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 7. júlí klukkan 15.
Sigmar Þormar Alfa Kristjánsdóttir
Anna Þormar Auðunn Guðmundsson
Pétur Þormar
og frændsystkini
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR KRISTINN HERMANNSSON,
Marteinslaug 7, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans 23. júní.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ragnheiður Bryndís Brynjólfsdóttir
Brynja Guðbjörg Harðard. Daði Kristjánsson
Ólöf Ragnhildur Ólafsdóttir Kári Arnórsson
Jóna Margrét Ólafsdóttir Hjalti Björnsson
Bjarney Herdís Ólafsdóttir Daníel Thor Helgason
Hermann Jónatan Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
GEIR ÓLAFUR ODDSSON
húsasmíðameistari,
áður til heimilis að Nýhöfn 3,
Garðabæ,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 25. júní.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 6. júlí klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni: www.mbl.is/andlat.
Sigurður Ingi Geirsson Katrín Davíðsdóttir
Kristjana Geirsdóttir Tómas Freyr Marteinsson
Gunnar Þór Geirsson Elísabet Pálmadóttir
Arna Guðrún Geirsdóttir Ævar Björn Þorsteinsson
afa- og langafabörn
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SONJA MARÍA CARLSEN,
lést 26. júní í faðmi dætra sinna.
Útförin fer fram frá Lindakirkju
fimmtudaginn 8. júlí klukkan 15.
Helga Björk Óskarsdóttir Páll Viðar Kristinsson
Rósmary Ósk Óskarsdóttir
Sonja Guðrún Óskarsdóttir
Karen Hrönn Óskarsdóttir
og ömmubörn