Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 ✝ Sólveig Katrín Hallgríms- dóttir fæddist á Fæðingarheimili Reykjavíkur 21. júní 1977. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 17. júní 2021. Foreldrar henn- ar eru Hallgrímur Valberg Jónsson, f. 30. júní 1954 og Þórdís Ásgerður Arnfinns- dóttir, f. 20. mars 1955. Þau slitu samvistum og núverandi eiginmaður hennar er Gylfi Jónsson, f. 29. ágúst 1941 og nú- verandi eiginkona Hallgríms er Supannee Runarun, f. 16. des- ember 1981. Systkini Sólveigar eru Tinna Hallgrímsdóttir, f. 26. október 1989, Erla sinni grunnskólagöngu frá Grunnskólanum í Borgarnesi. Þaðan lá leið hennar í Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Árið 1997 eignaðist hún Sölva Jón sem var langþráður draumur hjá henni þrátt fyrir ungan ald- ur. Solla var alltaf harðdugleg og var í ýmsum störfum og yfir- leitt í fleiri en einu starfi á sama tíma. Árið 2011 flutti hún á Bif- röst og hóf þar nám í háskól- anum. Hún lauk frumgreina- deild, BS gráðu í viðskiptafræði og loks MS í forystu og stjórnun vorið 2016. Þegar náminu lauk festi hún kaup á draumahúsinu á Akranesi og fluttist þangað aftur. Síðastliðinn tvö ár starf- aði Solla hjá Akraneskaupstað. Útför Sólveigar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 1. júlí 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju. Slóð á streymið: https://www.akraneskirkja.is/ Virkan hlekk á streymið má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/ Arnbjarnardóttir, f. 20. júní 1984, Fjölnir Hall- grímsson, f. 7. október 1991, d. 16. nóvember 1991, Ólafur Lárus Gylfason, f. 18. júlí 1982, og Einar Ágúst Gylfason, f. 11. október 1986. Fyrrum sambýlis- maður Sólveigar er Sævar Jón Gunnarsson, f. 11. nóvember 1974, þau eignuðust einn son, Sölva Jón Sævarsson, f. 8. október 1997, eiginkona hans er Rachel Emily Cooper, f. 17. febrúar 1999. Solla hóf grunnskólanám í Varmalandsskóla þar sem hún var á heimavist, þar átti hún mjög góða tíma en lauk síðan Elsku Solla mín, að missa barnið sitt er svo mikil sorg að engin orð fá því lýst. Ég á erfitt með að hugsa til þess að þú sért farin. Þakka þér fyrir dýrmæt- an tíma sem ég fékk að vera með þér. Ég er þakklát fyrir hann. Dýrmætar minningar koma til mín, hjálpsama, um- hyggjusama og duglega Solla mín. Alveg frá því þú komst í heiminn varstu sterk, ákveðin og alltaf jákvæð. Þú fórst allt of fljótt elskan mín og síðastliðnir dagar hafa verið mjög erfiðir. Elsku Sölvi Jón, drengurinn þinn og minn, stendur sig eins og hetja og við erum óendan- lega þakklát fyrir að eiga hann og Rachel konuna hans sem er svo ljúf og hlý. Þau hafa styrk hvort af öðru. Það verða erfiðir tímar fram undan en minningarnar um þig munu hjálpa okkur mikið. Gylfi minnist þín sem sólargeisla sem alltaf var syngjandi frá því hann kynntist þér þegar þú varst fjögurra ára og hvað þú varst góð við Jón pabba hans. Jón, Gylfi, ég og þú bjuggum saman í sjö ár. Jón var þér góður og kenndi þér að spila. Þú hafðir alltaf gaman af því að spila, við bræðurna Ólaf Lárus og Einar Ágúst, síðar Sölva Jón, og svo litlu frændur þína, Gylfa Þór, Ólaf Stefán og Guðmund Ágúst. Við fengum líka sum að fara með þér í fossaferðir þínar. Ég fór með þér að Skógafossi og Seljalandsfossi. Þetta var hug- ljúf upplifun og gott að vera með þér. Guðmundur Ágúst var svo leiður þegar hann vissi að þú kæmir ekki aftur, þá sagði hann „og þá getum við ekki far- ið í fossferð með Sollu“. Elsku Solla mín, þú varst svo mikil guðsgjöf þegar þú fæddist, og því fylgdi mikil gleði, og þú varst svo falleg og vel gerð, með mikið ljóst hár. Þú fæddist 21. júní 1977 á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Það var fallegur sólríkur dagur, á sumarsólstöð- um. Ömmurnar og afarnir pöss- uðu sólargeislann sinn áður en þú byrjaðir á leikskóla. Í leik- skólanum gekk vel fyrstu vik- una. Síðar fannstu leiðina; undir girðingu í kringum leikskólann og komst út og lagðir af stað heim. Sem betur fer var leiðin ekki löng. Fljótt kom í ljós að þú varst týnd. Hvert hefðir þú getað farið? Ég fékk hugboð og bankaði hjá gömlu konunni í næstu íbúð. Gamla konan kom til dyra og var aldeilis glöð að sjá mig. Þú varst hjá henni. Það var mikill léttir og gleði. Solla mín hafði labbað strax heim. Hún hafði ratað. Hún opnaði póstlúgu og kallaði inn mamma, mamma! og þar sem gamla kon- an bjó beint á móti útidyrunum hafði hún heyrt hana kalla. Þannig að elsku Solla mín, tveggja ára, hafði sjálf komið sér heim í öryggið. Leikskólakennararnir sögðu mér að Solla kynni svo margar vísur og væri alltaf að syngja. Hver hefði kennt henni þær? Ég kenndi henni þær, lærði þær þegar ég passaði stúlku og amma hennar hafði kennt henni þessar vísur. Ég söng alltaf fyr- ir Sollu mína áður en hún fór að sofa og það var ótrúlegt að hún skyldi muna þetta allt. Nú fæ ég ekki að hitta þig aftur nema í minningum mínum. Fólkið sem farið er á undan okkur tekur á móti þér, gleði- gjafinn minn, með hlýju og ást og við sjáumst seinna. Við send- um ást og hlýju þangað til. Þín mamma. Síðastliðnir dagar hafa verið óraunverulegir eftir að elsku besta Solla, elsta systir mín, kvaddi okkur á sjálfan þjóðhá- tíðardaginn. Síðasta minning mín um Sollu var á fallegum degi í maí. Sólin skein og ég kom við uppi á Akranesi þar sem hún var í banastuði, með tónlistina í botni úti að múra þriggja hæða húsið sitt sem hún ætlaði síðan að mála sjálf síðar um sumarið eins og ekkert væri sjálfsagðara. Áður hafði hún flísalagt baðherbergið, parket- lagt gólfin og reddað því sem redda þurfti í húsinu og þegar kom að verkefni sem hún vissi ekki hvernig ætti að leysa lærði hún það bara og hafði gaman af því. Þetta lýsir Sollu fullkom- lega. Hún setti sér stór og há- leit markmið og gekk langt í að ná þeim og var alltaf „all in“ í öllu sem hún tók sér fyrir hend- ur. 34 ára einstæð móðir hóf hún nám á Bifröst í frumgreina- deild og lauk síðan BS-námi í viðskiptafræði og MS-námi í forystu og stjórnun. Meðan á náminu stóð lenti hún í alvar- legu bílslysi þar sem hún tví- hálsbrotnaði og taug skemmdist en mætti tvíefld til baka úr þeim veikindum með jákvæðn- ina, brosið og hláturinn að leið- arljósi sem einkenndi hana og geislaði út frá sér. Í upphafi árs fékk hún þá flugu í höfuðið að sjá alla fossa á Íslandi og ljóm- aði þegar hún talaði um fossa- ferðirnar sínar sem hún skipu- lagði í þaula og deildi með öðrum á Instagram. Þeir sem þekkja mig telja mig tala hærra og meira en flestir en ég benti þeim þá stundum á að þeir hefðu aldrei hitt Sollu sem var alltaf hávær- asta manneskjan í herberginu og það sem við gátum nú spjall- að saman og sagt sögur! Það er sárt að vita að ég fái ekki aftur að heyra löngu sögurnar henn- ar, hláturinn hennar og ákefðina í öllu sem hún gerði en eftir sitja dýrmætar og góðar minn- ingar. Ég er þakklát fyrir hvað við fengum margar góðar stund- ir á árinu og saman urðum við m.a. vitni að mögnuðustu norð- urljósum sem við höfum séð í vetur sem verða mér hér eftir alltaf til minningar um hana. Solla var einstök eins og þeir vita sem voru svo lánsamir að kynnast henni. Hún var kjark- aðri en flestir og hræddist ekki dauðann eftir síðasta slys sem hún lenti í og var skýr með það að ef kæmi til þess að hún hefði kost á því að gefa öðrum líf þeg- ar hennar lyki væri það ein- dregin ósk hennar. Við aðstand- endur hennar vorum einnig mjög samstíga í ákvörðun um líffæragjöf því þannig var Solla. Hún var alltaf reiðubúin að að- stoða þá sem þurftu á að halda hvort sem hún þekkti þá eða ekki og vildi öllum vel og er það ljós í myrkrinu fyrir okkur sem eftir stöndum að henni hafi orð- ið að þessari ósk sinni þegar hún gaf hjarta, lifur og nýru áfram. Ég veit að einhvers stað- ar í sumarlandinu er hún sam- einuð Fjölni bróður okkar, skælbrosandi yfir því að hafa getað lokið jarðvist sinni á þennan hátt. Elsku Solla, takk fyrir allt. Ég er svo þakklát fyrir að þú komst af alvöru inn í líf mitt 2001 þegar við bjuggum saman á Ásvallagötu og varst mér mik- ilvæg og alltaf til staðar eftir það. Mikið sem það hefði verið gott að fá lengri tíma með þér, en ég mun varðveita minningu þína svo lengi sem ég lifi. Meira á: https://mbl.is/andlat/. Tinna Hallgrímsdóttir. Finn ég ekkert orð, ekkert einasta ljóð, sem lýsir því vel hvað þú ert ljúf og góð. (Geir Gígja) Okkur í Hláturvinafélaginu langar í nokkrum orðum að minnast hennar elsku Sollu okk- ar. Haustið 2007, nokkrum mán- uðum eftir að Hláturvinafélagið var stofnað, kom í ljós að Solla var einmitt manneskja sem myndi smellpassa í hópinn okk- ar. Henni var boðin innganga og sem betur fer þáði hún boðið. Þvílík lukka fyrir okkur hinar. Hún kom eins og ferskur and- blær, með hlátrasköllin sín, sög- urnar og sína fallegu nærveru. Solla var svo margt. Hún var náttúrubarn og sveitastelpa, töffari og félagsvera. Solla var einlæg og alltaf hún sjálf. Hún var opin, ófeimin, átti auðvelt með að gefa sig að fólki og sýndi aldrei hroka eða yf- irlæti. Hún trúði á það góða í öllum og trúði á allt gott í heim- inum; engla og guð. Solla sagði einstaklega skemmtilega frá. Sögurnar voru með útúrdúrum og aukasögum og það gat tekið dágóða stund að komast að endapunktinum. Oftar en ekki heyrðist inni í miðri sögu „ég meina það bara þannig sko“ og svo kom einhver útskýring eða aukasaga. Hún notaði oft orðatiltæki og það dá- lítið frjálslega „það hangir eitt- hvað á perunni“ og hlutir áttu það til að „detta niður um sig“. Kaffihúsið Bláa kannan varð að Fjólubláa gafflinum. Eitt af mörgu sem einkenndi Sollu voru hendurnar hennar. Þær voru svo einstakar. Það streymdi frá þeim hiti og ein- hver orka og hún var líka svo flink í höndunum sínum. Hún prjónaði, málaði myndir, steypti kertastjaka og kerti. Hún keypti sér hús fyrir nokkrum árum og kom berlega í ljós hversu handlagin Solla var. Hún gekk í öll verk, hvort sem það var flísalögn, múrvinna eða eitt- hvað annað. Það eru bara svo ótalmargar minningar sem rifjast upp þessa dagana, um þessa fallegu vin- konu okkar. Á hverju ári fer Hlátó í sumarbústaðarferð, dá- lítið húsmæðraorlof, og eru margar minningar úr þessum bústaðarferðum. Við sjáum Sollu fyrir okkur í bleiku köfl- óttu náttbuxunum sínum, með kókdós, að vinna okkur í Ticket to Ride. Síðustu árin tók Solla að sér að elda fyrir okkur í bú- staðnum og þvílíku veislurnar sem hún bauð okkur upp á. Hún keypti inn og skipulagði þriggja rétta máltíðir og dásamlega dögurði fyrir okkur. Það er svo margt hægt að segja um Sollu okkar en samt engan veginn nærri nóg. Takk fyrir allar sögurnar þín- ar Solla, það verður skrýtið að fá ekki að heyra þig segja fleiri sögur. Takk fyrir allar veislurnar, elsku Solla. Takk fyrir alla ástina, um- hyggjuna, hlýjuna, knúsin, ferðalögin og ómetanlegu stund- irnar. Takk fyrir allt elsku Solla okkar. Þetta verður ekki eins án þín. Elsku Sölvi, Rachel og aðrir ástvinir Sollu. Okkar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar. Minning Sollu lifir í hjörtum okkar allra. „Við meinum það bara þannig sko.“ Þínar vinkonur; Elsí Rós, Guðlaug Erla, Hildur Jóna, Lynda, Sigrún Guðný, Sigrún, Svanhvít og Þórey Edda. Hvernig á maður að koma því í orð hvað heimurinn er fátæk- ari án þín í honum? Það er í raun ólýsanlegt. Þú varst Solla frænka; þótt Gylfi væri stjúp- faðir þinn þá varstu frænka mín. Þú varst svo oft brosandi eða hlæjandi. Þú talaðir mikið og sagðir svo skemmtilega frá. Þú varst með stór plön og ætl- aðir að láta þau rætast. Þú varst dugleg og hjálpaðir öllum ef þú mögulega gast. Þú varst með svo gott hjarta, það er huggun í því að hjarta þitt hafi haldið áfram og bjargað einhverjum. Þegar ég var krakki komuð þið einhvern tímann í kaffi, mig minnir að það hafi verið þegar ég átti afmæli, og þú réttir mér gjöf sem fyrir mér var gjöf frá þér. Þetta var lítil hjartalaga skál með loki. Hún var full af þurrkuðum blómum. Þetta fannst mér það fallegasta sem ég hafði nokkurn tímann séð. Mér þótti svo vænt um þetta og passaði alltaf upp á þetta og á enn. Alltaf þegar við hittumst töl- uðum við heila eilífð saman, um allt og ekkert og það var mikið hlegið. Í veislum og gleðskap varst þú gleðipinninn og dreifst stemninguna upp, það var gam- an í kringum þig. Það var svo upplífgandi og hvetjandi að fylgjast með þér, t.d. við að Sólveig Katrín HallgrímsdóttirMóðir okkar, amma, langamma og tengdamóðir, SVEINSÍNA JÓHANNA JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis að Kleppsvegi 40, Reykjavík, lést 19. maí á Hrafnistu Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið fram. Við þökkum henni samfylgdina, blessuð sé minning hennar. Guðrún, Sigurður Páll, Arnþór Logi, Jóhanna Victória og Örn Ástkær móðir mín og amma okkar, ANNA MAGNEA JÓNSDÓTTIR, lést í Brákarhlíð Borgarnesi miðvikudaginn 23. júní. Útför hennar verður frá Garðakirkju miðvikudaginn 7. júlí klukkan 15. Gunnar Örn Hauksson Haukur Ársæll Birgitta Ýr Jóhann Örn Kristbjörn Sigrún Jóna Bróðir minn og frændi okkar, AXEL THORARENSEN, Lindasíðu 47, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 20. júní. Útför hans fór fram 30. júní í kyrrþey að ósk hins látna. Helga Katrín Thorarensen Kai Þórður Thorarensen Sara Dögg Thorarensen Linde Marie Thorarensen Róbert Heiðar Thorarensen Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN HELGADÓTTIR, Þverási 20, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 18. júní. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1. júlí klukkan 13. Anna Ingvarsdóttir Arnór Stefánsson Gunnbjörn Þór Ingvarsson Steinunn Arnórsdóttir Hjörtur Logi Dungal Pétur Arnórsson Þórhildur Sunna Jóhannsd. Ingi Steinn Arnórsson Sólveig Sigurðardóttir og barnabarnabörn Kær vinur og frændi, KRISTINN K. JOHNSON, Flókagötu 61, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi þriðjudaginn 15. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk Kristins. Alúðarþakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir góða umönnun og hlýju. Ásdís K. Smith Edda Flygenring Laufey Böðvarsdóttir Ólöf Jónsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, STEFANÍA GUÐRÚN ANDRÉSDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hólmavík 19. júní. Útför fer fram í Hólmavíkurkirkju laugardaginn 3. júlí klukkan 14. Athöfn verður streymt á facebooksíðu Hrannar Jónsdóttur. Jón Loftsson Hrönn Jónsdóttir Halldór Sigurjónsson Andrés Jónsson Ester Kristinsdóttir Haraldur V.A. Jónsson Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.