Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 53
gera upp húsið þitt eða tilraunir þínar og þróun í kertagerð og kertastjakagerð. Eldfjallakerta- stjakarnir voru geggjaðir. Nýj- asta verkefni þitt, að skoða alla fossa á Íslandi, var metnaðar- fullt og hefði ég svo gjarnan viljað fara með þér í eina eða fleiri fossaferðir. Tækifærið hafði bara ekki komið, því mið- ur. Næst þegar ég skoða foss mun ég svo sannarlega minnast þín og senda þér kveðju. Ég er þakklát fyrir að hafa þekkt þig. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem ég átti með þér. Ég er þakklát fyrir að hafa getað verið þér og fjölskyldu þinni innan handar þegar þú lentir í bílslysinu við Bifröst. Ég er þakklát fyrir að líf þitt hafi getað gefið öðrum líf fyrst þetta fór svona. Ég mun ávallt muna þig og sakna. Megi ljósið og friðurinn geyma þig og umvefja. Nellý Pétursdóttir. Það var feiminn og ólíkur hópur af krökkum sem hóf skólagöngu sína í Varmalands- skóla haustið 1983. Fram undan voru 10 vetur á heimavist. Þessi hópur átti eftir að ná vel saman, verða samrýndur og mikil vina- tengsl mynduðust. Hún Solla okkar, sem féll frá þann 17. júní síðastliðinn í hörmulegu slysi, var ein af þessum hópi. Það kom berlega í ljós hvaða stað Solla átti í hjörtum okkar allra þegar fregnirnar bárust. Það sló þögn á hópinn, minningar streymdu fram og tár féllu. Ekkert býr mann undir að skrifa minningarorð um kæra vinkonu sem fellur skyndilega frá í blóma lífsins, manni er kippt niður á jörðina í skyndi og um leið er manni sýnt að maður geti ekki tekið neinu sem sjálf- sögðum hlut. Solla með fallega ljósa hárið sitt var alltaf bros- andi og jákvæð. Við hinar stelp- urnar í bekknum öfunduðum hana oft þegar við vorum yngri hvað hún var vinsæl. Þegar við urðum eldri skildum við af hverju; hún var einstök. Hún hreif alla með sér með skemmti- legum sögum sem voru sagðar af mikilli innlifun og frásagn- arhæfileikinn, hann var stór- kostlegur. Það hrifust allir með þegar hún byrjaði að segja frá og ófeimin var hún, ójá! Hún hélt ófáar fegurðarsamkeppn- irnar innan bekkjarins og í flestum vann hún að sjálfsögðu. Hún var tilfinningarík með risastórt hjarta og ósjaldan reyndi hún að hugga og stappa stálinu ef einhverjum leiddist eða var með heimþrá í skól- anum. Það var jú stundum erfitt að vera ungur á heimavist. Hún var óendalega dugleg og dreif í hlutunum, hvort sem það var við endurbæturnar á húsinu sínu eða skipuleggja bekkjar- hitting. Hún múraði, flísalagði og gerði það sem gera þurfti í húsinu sínu. Allt með bros á vör og af ósérhlífni. Fyrir um 10 ár- um flutti hún að Bifröst og hóf nám þar þá einstæð móðir. Tók það auðvitað með trompi og lét alvarlegt bílslys ekki slá sig út af laginu þó að maður gæti skynjað að undir niðri hafi það kannski haft meiri áhrif en hún lét uppi. Lífsgleðin og orkan var ótrúleg þó að hún fengi stund- um vindinn hressilega í fangið. Að skoða alla fossa á landinu er metnaðarfullt verkefni sem flestum myndi þykja óleysan- legt en auðvitað setti Solla sér það markmið og fór að sjálf- sögðu af krafti í verkefnið með bros á vör og jákvæðnina að vopni. Hún var ávallt um- hyggjusöm, lét sér annt um aðra og vildi öllum vel. Já, hún Solla var einstök. Hún gaf svo sannarlega af sér og hélt áfram að gefa af sér þótt hennar göngu væri lokið hér á jörðu niðri. Auðvitað var Solla búin að óska eftir því að hún væri líf- færagjafi og gæti þannig lagt sitt á vogarskálarnar til þess að aðrir gætu öðlast nýtt og betra líf hvar sem þeir væru í heim- inum. Við bekkjarsysturnar erum óendanlega þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast Sollu og átt hana sem vinkonu. Mikið sem við eigum eftir að sakna hennar. Við þökkum fyrir gef- andi vinskap og yljum okkur við góðar minningar. Elsku Sölvi og fjölskylda, við vinkonurnar í ár- gangi 1977 úr Varmalandsskóla vottum ykkur okkar dýpstu samúð vegna fráfalls einstakrar konu sem hún Solla var. Missir ykkar er mikill en minningin mun ávallt lifa. Elín, Guðlaug Sigríður, Ingigerður, Halldóra, Kristín Sigríður, Margrét Helga, Hanna Kristín, Gunnhildur, María og Þórhildur. Ég trúi því ekki að ég sé að skrifa minningarorð um þig, elsku Solla mín. Ég er orðlaus, mér finnst það svo ósanngjarnt og sárt að þú sért farin, að ég hitti þig aldrei aftur, að ég eigi aldrei eftir að tala við þig aftur, að ég eigi aldrei eftir að faðma þig aftur, ég er ekki að ná utan um þetta allt. Ég hreinlega veit ekki hvernig tilvera mín verður án þín, hjartað mitt er í molum og ég hef enga stjórn á táraflóð- inu. Þú varst svo geislandi, glað- lynd, brosmild, hjartahlý, dug- leg og með frábæra nærveru sem heillaði alla sem komust í kynni við þig. Þú máttir ekkert aumt sjá og vildir allt fyrir alla gera, ég dáðist að þér fyrir það þótt ég hefði viljað sjá þig setja þig oftar í fyrsta sæti. Þú varst full af gleði og lífskrafti sem smitaði út frá sér til þeirra sem voru í kringum þig. Þú varst að dúllast við að gera upp eitt stykki einbýlishús svona á milli þess að vinna, skoða alla fossa landsins, sinna öllum vinum þín- um, föndra og njóta lífsins. Stundum hugsaði ég hvað væru eiginlega margir klukkutímar í sólarhring hjá þér miðað við hjá mér. Sérstaklega þegar ég fékk skilaboð á nóttunni sem hljóð- uðu svona, sofnuð eða enn vak- andi? Solla var ekki alveg stillt inn á sömu klukku og ég, við hlógum oft að þessu næturbrölti hjá henni. Við kynntumst haustið 2011 þegar við hófum báðar nám við Háskólann á Bifröst. Ég man að það var haldið stelpupartí til að hrista hópinn betur saman. Þú varst ekki lengi að taka stjórn- ina á gleðinni í því partýi með því að segja okkur sögu, reynd- ar ekki bara segja okkur sögu heldur einnig lékstu söguna þannig að við hreinlega grétum úr hlátri. Þarna hugsaði ég, þessi kona verður vinkona mín að eilífu. Við áttum fallegt samtal í sömu viku og þú lendir í þessu hræðilega slysi þar sem þú seg- ir við mig, Ollý, það er svo gam- an að sjá okkur núna, allt að ganga upp hjá okkur og við svo hamingjusamar. Þetta var svo rétt hjá henni, lífið lék við okkur báðar og við báðar mjög hamingjusamar. Það var gaman að sjá og vera partur af þeirri fallegu vegferð sem Solla var á og búin að vera á í þó nokkurn tíma, hún var loksins svo ham- ingjusöm, hamingjusamari en hún hafði verið í mörg ár og það sást langar leiðir. Það er mjög dýrmæt minning um þig elsku Solla að vita að þú náðir því að verða svona hamingjusöm því það áttir þú svo sannarlega skil- ið. Við vorum með mikið planað í sumar og einnig í nánustu fram- tíð, það mun verða mitt mark- mið að fara í öll þau ævintýri sem við náðum ekki að gera saman þegar ég treysti mér af stað án þín, en ég tek þig auð- vitað með mér í hjartanu elsku fallega Solla mín. Þú munt aldr- ei víkja mér frá. Ég mun geyma minningu þína í hjartanu mínu þangað til við hittumst næst. Elsku Sölvi (sólargeislinn hennar mömmu sinnar), Rachel og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín vinkona að eilífu, Ollý. Solla byrjaði að vinna á bæj- arskrifstofunni í maí árið 2019. Solla, eða okkar kona eins og hún var kölluð, var okkar allra og snerti hennar jákvæða og mikla orka okkur öll. Við sam- starfsfélagar hennar vildum með fáum orðum fá að minnast hennar Sollu okkar sem lést af slysförum nýverið. Solla var einstök svo eftir var tekið með dugnaði sínum og orku sem var engu lík. Hún var glaðlynd og hispurslaus, stund- um svo að þegar gamanmálin voru látin fjúka sátum við sum stundum agndofa eftir af hrifn- ingu yfir þori hennar og hisp- ursleysi. Við ræddum stundum okkar á milli að Solla væri í raun sjálf- stætt náttúruafl sem við hefðum verið svo heppin að fá í okkar raðir. Góðmennskan og hlýjan skein af henni með þeim hætti að hún var ekki aðeins sam- starfsfélagi okkar heldur kær vinur sem gaf okkur svo mikið með brosi sínu eða léttri snert- ingu í önn dagsins. Líffæragjöf af hennar hendi kom okkur því ekki á óvart, enn var Solla að láta til sín taka! Það er ekki hægt að reyna að skilja ástæður þess að þú varst tekin frá okkur svona snemma en eitt vitum við að himnaríki eignaðist fullkominn engil. Með von um að framhaldslífið fari vel með þig og þú gefir þér tíma til þess að hugsa til okkar annað slagið. Við samstarfsfélagar þínir og vinir viljum fá að þakka þér fyr- ir ógleymanlega samveru. Ríki- dæmi þitt eru minningarnar og góðar tilfinningar sem þú skilur eftir þig í hjörtum okkar og þeirra sem voru svo heppnir að fá að njóta samvista með þér. Í annan heim ég farinn er gráttu mig því ekki. Mundu að ég fylgi þér allt fram að næturkveldi. Við sendum Sölva, Rachel og fjölskyldu Sollu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, megi Guð gefa ykkur styrk í gegnum þennan erfiða tíma. Hvíl í friði, kæra vinkona okkar. Sigurður Páll, Sædís Alexía og samstarfsfélagar á bæjarskrifstofunni. Tár mitt til þín, fetar veg minninganna. staldrar við hamingjuríkt bros man ljóshærðu skottuna sem átti ást handa öllum. Tár mitt til þín, fetar lífsbrautina. finnur ómælda gleðina sem ólgar og kraumar í glæsilegri konu. Tár mitt til þín, fetar sinn veg. Stoppar hvergi við, tárið er harmur heimsins en minningin um þig er mín. Elsku Sölvi, Ása, Gylfi, Ólaf- ur Lárus, Einar Ágúst og aðrir ættingjar. Sorgin er sár sem stendur en í fyllingu tímans verður minningin um Sollu okk- ur huggun. Megi allar góðar vættir vernda ykkur. Kristín Halla Haraldsdóttir, Grundarfirði. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 ✝ Sigríður fædd- ist á Ísafirði 29. júlí 1932. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 23. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Arinbjörn Guðmundur Guðnason, f. 26.12. 1906, d. 28.7. 1983, og Guðríður Sal- ome Vetur- liðadóttir, f. 20.9. 1911, d. 17.10. 1996. Systkini Sigríðar: Dóra Magga, f. 4.7. 1935, d. 1939, Arinbjörn Guðmundur, f. 31.1. 1937, d. 10.7. 1988. Dóra Magga, f. 29.8. 1940, d. 9.6. 2011, Bára, f. 18.2. 1948. Eiginmaður Sigríðar var Ein- ar Jónsson, f. 8.5. 1935, d. 20.11. 2017. Þau giftust 26.7. 1958. Börn þeirra eru: 1) Salome, f. 1958, maki Krist- ján Óskarsson, f. 1957, börn þeirra eru: a) Guðmundur Arin- björn, f. 1977, maki Linda Björk Thorlacius, f. 1977, börn þeirra eru Jökull Ýmir, f. 2000, Krist- ján Árni, f. 2005, og Eydís Lilja, f. 2010. b) Hafþór, f. 1978, maki Denis Anastasia Sudjono, f. 1989. Börn þeirra eru Áróra, f. 2005, Sól- veig Summer, f. 2015, og Freyja Sally, f. 30.3. 2020. c) Margrét, f. 1982, maki Mar- el Jóhann Baldvinsson, f. 1980, börn þeirra eru Markús, f. 2007, Lúkas, f. 2009, Baldvin, f. 2016, og Marel Jóhann, f. 2019. d) Stefanía, f. 1988, maki Skarphéðinn Kjartansson, f. 1988, börn þeirra eru Mikael, f. 2014, og Kjartan Andri, f. 2018. e) Emil Örn, f. 1996, maki Dag- björt Lilja Svavars- dóttir, f. 1998. 2) Emilía, f. 1960, maki Jón Brynjar Jónsson, f. 1957, börn þeirra eru: a) Elísabet Anna, f. 1976, maki Þor- steinn Guðmunds- son, f. 1967, börn þeirra eru: Hlynur, f. 1990, Sóley Katla, f. 2000, Sölvi Páll, f. 2003, og Kári, f. 2006, b) Einar, f. 1980, c) Olga Lára, f. 1986. Börn hennar eru Freyja Björk, f. 2006, Snædís Ragna, f. 2008, og Brynjar Þór, f. 2016. 3) Hulda, f. 1963, maki Ómar Ingvarsson, f. 1961, börn þeirra eru: a) Sigríður Vilma, f. 1983, maki Valgarður Thomas Davíðsson, f. 1987, börn þeirra eru Nadia Líf, f. 2006, Benjamín, f. 2015, og Díana Marey, f. 2019. b) Magni, f. 1989, maki Nedje- ljka Íris Hrkalovic, f. 1988. c) Ylfa Eik, f. 1992, maki Friðrik Friðriksson, f. 1986, börn þeirra eru Tristan Smári, f. 2009, og Rúrik Ómar, f. 2019. d) Flosi, f. 2003, maki Nesrine Malek Medaguine, f. 2003. Sigríður var um 20 ára er hún flutti frá Ísafirði til Reykjavíkur en um 1957 flytur hún til Hafnarfjarðar með eiginmanni sínum og bjó þar alla tíð síðan. Hennar starfsævi var að mestu verslunarstörf og umönnunar- störf. Útför Sigríðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 1. júlí 2021, klukkan 13. Elsku mamma mín, nú ertu loksins komin til hans pabba, eins og þú vildir. Þegar hann dó, 20. nóvember 2017, eftir erfið veikindi, varst þú ekki sátt. Þú hafðir svo oft sagt við hann að þú vildir fá að fara á undan því án hans gætir þú ekki verið. Þið vor- uð mjög hamingjusöm alla tíð og góð saman. Gátuð ekki séð af hvort öðru og það ágerðist með árunum. Voruð heppin að fá að eldast saman og hafa átt dásam- legt líf. Þið áttuð ykkar sameig- inlegu áhugamál. Ferðuðust mik- ið innanlands, fóruð að veiða og svo seinna í golfið. Þið byggðuð ykkur sumarbústaðinn í Önd- verðarnesi sem þið voruð í öllum frístundum. Þú sagðir svo oft hvað þú værir heppin með dæt- urnar þrjár og hefðir svo fengið þrjá bestu tengdasyni sem hugs- ast gæti. Og ekki skemmdi hvað þú fékkst mörg barnabörn, 12 stk., enda áhugamálin þín síðustu ár hvort einhver væri óléttur og hvort ekki væru allir komnir með maka. Elsku besta mútta mín, ég þakka fyrir að hafa átt þig að í öll þessi ár og kveð þig með söknuði. En ég hugga mig við það að þið pabbi eruð nú sameinuð að nýju og getið notið samverunnar á ný. Blessuð vertu baugalín. Blíður Jesú gæti þín, elskulega móðir mín; mælir það hún dóttir þín. (Ágústína J. Eyjólfsdóttir) Bless mamma mín og bið að heilsa pabba. Þín dóttir Hulda. Elsku fallega Silla amma okk- ar. Mikið er skrítið að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur. En það er alveg á hreinu að þú og Denni afi eruð fegin að vera sameinuð á ný og það hlýjar manni um hjartarætur að hugsa til þess. Þið voruð alltaf svo sæt saman og gaman að fylgjast með ykkur í öllu sem þið gerðuð. Það var alltaf svo gaman að koma í pönnukökur á sunnudögum og elda læri á góðum sumardegi uppi í bústað. Fara í berjamó og fá svo bláberin á skyrið eða í sultu á ristað brauð. Að spjalla við þig og fá bestu athugasemd- irnar, alltaf svo stutt í húmorinn og hláturinn. Að geta ekki kíkt á ömmu sína og fengið knús og skemmtilegt spjall verður tóm- legt og leiðinlegt að sætta sig við en góðar minningar koma í stað- inn. Knúsaðu afa frá okkur og láttu hann knúsa þig. Elskum þig amma og söknum þín mjög mik- ið. Þín barnabörn, Vilma, Magni, Ylfa Eik og Flosi. Það er svo sárt að hugsa til þess að elsku amma Silla hafi nú kvatt okkur. Mikið er tíminn dýr- mætur. Amma Silla var stórkostleg manneskja. Hún ólst upp á Ísa- firði og var í skátunum, spilaði á gítar og æfði lengi handbolta með ísfirska félaginu Vestra. Handboltinn var alltaf í miklu uppáhaldi hjá henni og þegar boltinn var í sjónvarpinu var ein- beitingin slík að maður náði varla sambandi við hana. Hún vann frá unga aldri við umönnun, meðal annars barna sem áttu um sárt að binda og á Sólvangi í Hafn- arfirði. Hún var stolt af fjöl- skyldu sinni, hörkudugleg, hóf- söm, snillingur í krossgátum, fannst yndislegt að fara í göngu- túr meðfram sjónum, elskaði, var elskuð og svo sæt að sólin var feimin. Það var alltaf svo gaman að vera með ömmu og spjalla um hin ýmsu mál. Við hlógum oft saman að því hvað hún var dásamlega beinskeytt, sagði hlutina bara alveg eins og þeir voru. Hún hafði líka svo skemmtilega kaldhæðinn húmor sem skein í gegn. Gott var að koma til ömmu og afa í Kvíholtið og undantekningarlaust var tek- ið vel á móti manni. Ógleyman- legar eru allar sumarbústaða- ferðirnar með þeim þar sem var til dæmis farið í berjamó, golf og sund, spilað yatzy, grillað, dans- að og sungið. Ósjaldan fórum við í veiðiferðir og þá gerði amma nóg af nesti, samlokur með gúrk- um, eggjum og heimatilbúinni kæfu. Amma gerði líka langbestu kleinurnar og á jólunum komum við saman öll stórfjölskyldan og gerðum laufabrauð og drukkum kakó. Enginn gerði eins gott kakó og amma. Við erum svo þakklát fyrir það hvað amma og afi gáfu sér mikinn tíma með fjöl- skyldu sinni sem gerði það að verkum að við öll eigum svo margar ómetanlegar minningar með þeim. Við höfum oft grínast með það hversu gjarnan amma spurði af- komendur sína hvort þeir væru komnir með kærasta eða kærust- ur. Ástæðan var þó sjálfsagt sú að hún þekkti það mjög vel hversu gefandi það var að finna sinn fullkomna lífsförunaut þar sem hún og afi voru svo undur- samlega ástfangin. Hjónaband ömmu og afa var nefnilega ein- stakt og amma átti um mjög sárt að binda þegar afi kvaddi fyrir um fjórum árum. Við ætlum að trúa því að þau séu nú sameinuð á ný og sjáum þau fyrir okkur ganga hönd í hönd og jafnvel dansa inn í sumarlandið. Takk fyrir allt elsku fallega og góða amma Silla. Við munum alltaf elska þig og hugsa til þín með miklum söknuði en einnig þakklæti fyrir allar minningarn- ar sem þú skapaðir með okkur. Þær geymum við í hjarta okkar að eilífu. Við færum elsku mömmu, Sallý og Huldu okkar dýpstu samúðarkveðjur. Er sumarið kom yfir sæinn og sólskinið ljómaði um bæinn og vafði sér heiminn að hjarta, ég hitti þig, ástin mín bjarta. Og saman við leiddumst og sungum með sumar í hjörtunum ungu, - hið ljúfasta, úr lögunum mínum, ég las það í augunum þínum. Þótt húmi um hauður og voga, mun himinsins stjörndýrð loga um ást okkar, yndi og fögnuð, þótt andvarans söngrödd sé þögnuð. (Tómas Guðmundsson) Ástarkveðja, Elísabet Anna, Einar, Olga Lára og fjölskyldur. Það er afar erfitt að hugsa til þess að amma sé farin frá okkur. Á þessum erfiðu tímum minn- umst við allra þeirra góðu stunda sem við áttum með henni. Öll eigum við systkinin ein- staklega hlýjar og skemmtilegar minningar með ömmu og þá koma helst í huga allar þær ynd- islegu stundir í sumarbústaðnum Seljalandi. En þar þótti henni ömmu svakalega gott að vera. Þar var mikið spilað; olsen eða kani. Þar fórum við einnig mikið með henni og afa í göngutúra, í berjamó eða í sund. Þau höfðu bæði gaman af því að veiða, flest okkar eiga því margar góðar minningar úr veiðiferðum með þeim á Þingvallavatn. Á sunnu- dagsmorgnum í bústaðnum stóð amma oft við eldavélina að útbúa morgunmat, en þá voru oftar en ekki amerískar pönnukökur, beikon og egg. Þá fengum við að hjálpa til og leggja á borð. Það var stutt í húmorinn hjá ömmu öllum stundum, hún var léttlynd og hafði alltaf góða nær- veru. Amma var afar stolt af fjölda afkomenda sinna og þótti henni því afar spennandi að heyra ef eða hvort von væri á fleiri lang- ömmubörnum. Hjá henni ömmu stóðu alltaf opnar dyr. Elsku Silla amma, við söknum þín afar sárt en við vitum að Denni afi tekur vel á móti þér. Þín barnabörn, Guðmundur, Hafþór, Margrét, Stefanía og Emil. Sigríður Arinbjarnardóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.