Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Bio-Kult Migréa
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
14 góðgerlastofnar B6-Vítamín Magnesíum
Bio Kult Migréa er sérhönnuð góðgerlablanda með
það að markmiði að styðja við meltingarveginn og
taugakerfið. Þessi öfluga blanda stuðlar að eðlilegri
starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa.
Bio-Kult Migréa hentar fyrir barnshafandi konur og mjólkandi mæður.
Gæti skipt höfuðmáli
50 ÁRA Hrönn fæddist 1.
júlí 1971 á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað og ólst
þar upp. Vann mestmegnis í
fiskvinnslu og til sjós framan
af fyrir utan tæpt ár sem
hún var skiptinemi í Mexíkó.
Hrönn útskrifaðist úr
rekstrarfræði við Háskólann
á Akureyri árið 2000 og bjó í
Reykjavík til ársins 2004.
Hún var upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar við bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar
til ársins 2007, en þá flutti
hún til Suður-Þýskalands
þar sem hún bjó næstu sjö
árin. „Ég hef lengi vel haft
mikinn áhuga á næringu og
heilsu og hvernig við getum
haldið góðri heilsu með
réttri næringu og heil-
brigðum lífsstíl. Ég tók
diplómanám í heilsumark-
þjálfun og vann lengi vel við
ráðgjöf, fræðslu og markaðssetningu á heilsuvörum. Er enn að bæta við mig
á þessu sviði og er nú nýútskrifuð úr diplómanámi í jákvæðri sálfræði. Ég hef
mikinn áhuga á matargerð og að borða góðan mat. Síðan er útivera, samvera
með fjölskyldu og vinum og ferðalög hæst á blaði og prinsippið er að vera já-
kvæð og glöð og líta ávallt á björtu hliðarnar.“
FJÖLSKYLDA Hrönn er gift Gunnari Þór Guðmundssyni, f. 20.8. 1961,
verkfræðingi og verkefnastjóra hjá Landsvirkjun. Þau eiga tvö börn, Sig-
urbjörgu Ósk, f. 24.10. 2005, og Ara Hafþór, f. 10.4. 2008. Gunnar á fjórar
dætur frá fyrra hjónabandi og barnabörnin eru orðin sex talsins. Foreldrar
Hrannar eru Birna Bjarnadóttir, f. 20.6. 1943, og Hjálmar Ólafsson, f. 1.2.
1941.
Hrönn Hjálmarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut-
unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess
að skila vel unnu verki. Vertu góður við sjálf-
an þig.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er óhætt að segja að komandi vik-
ur verði fullar möguleika og afþreyingar.
Skelltu ekki skollaeyrum við aðvörunum
annarra þótt þér finnist þú sigla lygnan sjó.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Nú fer að rofa til og þú sérð árang-
ur erfiðis þíns eins og þú átt skilið. Mundu
samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo
ekki fari allt í vitleysu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Leggðu áherslu á að stunda það
sem nærir sálina. Ef þú ætlar að koma ein-
hverju í verk í dag þarftu að forðast truflun.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Samræður við ættingja eru einstaklega
innihaldsríkar upp á síðkastið. Þú munt að
öllum líkindum rifja upp eitthvað úr fortíð-
inni með fjölskyldu þinni í dag.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Dagurinn í dag er heppilegur fyrir við-
skipti og samninga. Samræður við vinkonu
reynast heilladrjúgar og gefandi.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú kemst yfir upplýsingar sem þig lang-
ar til að deila með öllum heiminum. Nú þarft
þú að taka málin í eigin hendur og hafa
stjórn á lífi þínu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Yfirmaður þinn eða annar
áhrifamikill einstaklingur mun hugsanlega
koma þér ánægjulega á óvart í dag. Þú tekur
eftir hlutum sem fara fram hjá öðrum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú átt á hættu að láta einhvern
rugla þig í ríminu í dag. Láttu það ekki koma
þér á óvart þótt orsakir deilu þinnar og vinar
þíns séu aðrar en fram kemur á yfirborðinu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú vinnur af öllum kröftum að
stóru verkefni. Láttu ekki óttann við nýj-
ungar blinda þig svo að þú sitjir af þér hag-
stæð tækifæri.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er ekki við aðra að sakast
þótt þú sjáir ekki út úr augum vegna vinnuá-
lags. Safnaðu saman öllum tiltækum upplýs-
ingum áður en þú tekur næsta skref.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Mundu að ekki er allt sem sýnist og
hlutirnir eru stundum aðrir en við höldum
við fyrstu kynni. Vertu stöðugt á tánum svo
tækifærin fari ekki fram hjá þér.
og formaður úrskurðarnefndar fjar-
skipta- og póstmála og þá er margt
ótalið. Í dag er Gunnar prófessor við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Hann hefur verið mjög virkur í
fræðasamfélaginu og skrifað fjölda
greina í fræðitímarit og bækur um
margvísleg málefni tengd Evrópu-
rétti.
Þegar Gunnar Þór er ekki að
sinna fræðistörfum og kennslu hefur
hann mestan áhuga á útivist, tónlist
og bókalestri. „Utanvegahlaup og
göngur er það sem ég legg mesta
áherslu á núna með fjölskyldu og
vinum, enda skilst mér að ég sé
skráður í Fimmvörðuhálshlaup í
ágúst. Svo hef líka mjög gaman af
skíðaíþróttinni sem má rekja til
æsku minnar fyrir vestan. Núna eru
það gönguskíðin, svona til þess að
maður tikki nú í öll miðaldra-boxin,“
segir hann og hlær. Gunnar hefur
líka mikinn áhuga á boltaíþróttum.
„Ég hef nú lagt skóna mest á hilluna
þar, þótt sá viðburður hafi farið lágt,
og læt mér nægja að dotta yfir enska
boltanum þegar færi gefst. Sama
með golfkylfurnar, þær eru á hill-
unni, enda náði stuttur ferillinn
aldrei flugi.“
ég geng mikið um borgina þegar ég
er þarna á haustin og Edda konan
mín kemur gjarnan með þegar tæki-
færi gefast. Sama með Brussel, en
þar hef ég núna búið í ríflega 8 ár og
starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA,
sem er sæmilega stór hluti af þeim
26 árum sem EES-samningurinn
hefur verið við lýði. Sama má segja
um Lund í Svíþjóð þaðan sem við
höfum góðar minningar.“
Á Íslandi hefur Gunnar Þór m.a.
unnið fyrir Actavis, verið sérfræð-
ingur rannsóknarnefndar Alþingis
G
unnar Þór Pétursson
fæddist í Reykjavík 1.
júlí 1971. „Ég flyt
vestur, á Suðureyri við
Súgandafjörð árið
1975 og elst þar upp til 11 ára ald-
urs og ég ber alltaf sterkar taugar
til Vestfjarða, enda á ég þangað
ættir að rekja, bæði í föður- og
móðurlegg.“ Gunnar Þór gekk í Ár-
bæjarskóla, síðan Verslunarskóla
Íslands og þaðan í Háskóla Íslands
þar sem hann útskrifaðist sem lög-
fræðingur, cand.jur. Þá var stefnan
tekin til Lundar í Svíþjóð þar sem
hann útskrifaðist með LL.M.-gráðu
í lögum árið 1998 og síðar doktors-
próf, dr. juris, frá háskólanum í
Lundi árið 2014.
„Við höfum búið erlendis, með
hléum, í tæplega 13 ár, bæði í Lundi
í Svíþjóð og í Brussel í Belgíu. Við
fluttum aftur heim sl. sumar og er-
um oft spurð hvort við séum alkom-
in heim. Í gríni höfum við spurt
hvort maður sé einhvern tímann al-
kominn heim? Reyndar hefur Covid
haft þau áhrif að okkur líður aðeins
eins og við séum ekki alkomin, enda
sl. ár markað af samkomutakmörk-
unum. Allt horfir þetta reyndar til
mikið betri vegar og afmælisdag-
urinn minn sýnist mér eiga að
marka endalok flestra takmark-
anna. En við erum afar sæl með að
búa hér – þótt dvöl erlendis hafi
gefið okkur mjög mikið, bæði vini
úti um allan heim, ný tungumál og
fjölbreytta upplifun.“
Gunnar Þór hefur komið víða við
á starfsferlinum og m.a. var hann
framkvæmdastjóri innra markaðs-
sviðs Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) í Brussel og gestaprófessor
við lagadeild Parísarháskóla,
Panthéon-Assas (Paris II), auk
þess að sinna lögfræðiráðgjöf fyrir
ýmsa opinbera aðila og hagsmuna-
samtök. „Ég er mjög ánægður með
skipunina í Pantheon-Assas 2017,
eftir að hafa kennt þar frá 2009, en
deildin er elsta og virtasta lagadeild
Frakklands. Ég kenni þar á hverju
hausti í 2-3 vikur og er það mjög
skemmtileg tilbreyting. Ég ber orð-
ið sterkar taugar til Parísar, og
borgin vex mjög við viðkynningu og
Fjölskyldan fer í árlega silungs-
veiði í Laugardal í Ísafjarðardjúpi
og gistir alltaf á Hótel Reykjanesi,
sem Gunnar segir að skarti bestu
sundlaug landsins. Síðan er hann ný-
byrjaður á að fara í rjúpnaveiði aft-
ur, en hafði farið með föður sínum
fyrir vestan í æsku. „Eftir margra
ára hlé fórum við bræður saman í
rjúpu og ég skaut aðeins einu skoti
en hæfði tvær rjúpur. Kannski væri
nákvæmara að segja að við bræður
höfum skotið tveimur skotum sam-
tímis og hæft þrjár rjúpur – bróðir
minn er svo með allt aðra útgáfu af
sögunni, en það er annað mál.“
Gunnar Þór og Edda eru í Kór
Lindakirkju undir stjórn Óskars
Einarssonar. „Við komum víða fram
og syngjum fjölbreytt efni, mikið
gospel. Hef áður sagt að mér finnst
ég hljóma svo lygilega vel í kór –
enda kórinn stór og kröftugur. Eitt
það allra besta sem við hjónin gerum
saman er að vera þarna sem lítill
hluti af heild – þetta þekkja þeir sem
hafa sungið í kór.“
Það gæti komið einhverjum á
óvart, en Gunnar Þór hefur verið að
lesa guðfræði í vetur sér til skemmt-
unar og er búinn að ljúka tæplega
Gunnar Þór Pétursson prófessor við lagadeild HR – 50 ára
Júlí 2020 Útskrift Sigríðar Rakelar í júlí 2020. F.v.: Una, Emil Þór, Helena, Sigríður, Gunnar Þór og Edda Björk.
Hæfði tvær rjúpur í einu skoti
Súðavík við Súgandafjörð Gunnar
Þór á æskuslóðunum fyrir vestan.
Til hamingju með daginn