Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Það er alltaf rosa mikill spenningur
og partífílingur í öllum við upphaf
hátíðarinnar. Við verðum með tvö
opunarpartí á laugardaginn og það
er ókeypis inn á þau, fyrri part dags
í Gallerí Fold en um kvöldið í Máli
og menningu. Á sunnudaginn verð-
ur ókeypis á forsýningarkvöld í
Tjarnarbíói og þar verður hægt að
sjá allt sem verður í boði á hátíðinni,
tvær mínútur af hverju verki. Fólk
getur þar gert upp við sig hvað það
langar að sjá og þar verður líka
hægt að hitta alla listamennina.
Þetta er sannarlega eitt af mínum
uppáhaldskvöldum á hátíðinni,“ seg-
ir Nanna Gunnars, stjórnandi jaðar-
listahátíðarinnar Reykjavík Fringe
Festival, sem haldin verður 3.-11.
júlí nk.
Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin
verður haldin en þar má finna um 70
verk sem öll verða sýnd nokkrum
sinnum, bæði innlend og erlend.
Verkin spanna allt frá myndlistar-
sýningum, uppistandi, dansverkum
og leikhúsi yfir í drag, kabarett,
sirkus, hjólaskautapartí og gerð
götulistaverks. Hátíðin er fyrir fólk
á öllum aldri og Fringe-miðstöð
verður í Aðalstræti 2.
„Ein af opnunarsýningunum er
Sauðatónar, tónleikar fyrir kindur
(og fólk), með Hafdísi Bjarnadóttur
og bandarísk/ítölsku hljómsveitinni
Passepartout Duo. Tónleikarnir
fara fram í Árbæjarsafni, þar sem
helstu gestirnir verða kindur safns-
ins,“ segir Nanna sem vill vekja sér-
staka athygli á erlendu sýning-
unum, því það listafólk hefur lagt
mikið á sig til að koma hingað, þau
hafa þurft að fara í sóttkví og annað
slíkt.
„Til dæmis koma þrjár sýningar
frá Svíþjóð og ein þeirra heitir The
Clown on the Fifth Floor, en hún
vann aðalverðlaunin okkar í fyrra
þegar hún var sýnd í streymi. Ég
held að það verði mögnuð upplifun
að sjá þessa sýningu á sviði, en
þetta er tónlistarleikhúsviðburður
þar sem hán Storm Dunder flytur
verkið og er í rosalega flottri trúða-
múnderingu. Þetta er mjög sjónræn
sýning en líka fallegur söngur og
mikil upplifun, í raun ákveðin teg-
und af tónleikum.“
Önnur sýning sem kemur frá Sví-
þjóð heitir A Solo from the Pit, með
Elias Faingersh, en hann spilar óp-
erur á trompet.
„Þriðja sænska sýningin heitir
Egoland og er leiksýning sem vann
aðalverðlaunin á Stokkhólms-
Fringe fyrir tveimur árum. Í þeirri
sýningu er verið að fjalla um nars-
issisma og einstaklingshyggju sem
fer jú vaxandi í heiminum. Þessi al-
þjóðlegi hópur listamanna sem kall-
ar sig SRSLYyours, varpar í sýn-
ingunni fram áleitnum spurningum í
tengslum við fyrrnefnd viðfangs-
efni.“
Tveir rússneskir uppistandarar
Nanna segir að fjölmargir uppi-
standarar muni troða upp á The
Secret Cellar.
„Þar verður hægt að sjá uppi-
standssýningar hvert kvöld frá
klukkan sex og þar til staðnum er
lokað klukkan eitt eftir miðnætti.
Þarna verða bæði innlendir og er-
lendir uppistandarar og ég er mjög
spennt fyrir tveimur rússneskum,
annar þeirra er Oleg Denisov sem
kemur með tvær sýningar, Eco-
nomy Vodka heitir önnur þeirra en
hin er Russian Troll, sem hann ætl-
ar að taka upp hér á landi í Tjarnar-
bíói, en listafólk nýtir þannig tæki-
færið og gerir hluti sem það hefur
ekki haft tækifæri til í eitt og hálft
undanfarið ár, vegna heimsfarald-
urs.“ Hinn rússneski listamaðurinn
er Kaisa Pylkkänen, en sýning
hennar heitir No Penis, No Know-
ledge. „Þetta eru tvö stór rússnesk
nöfn, og virkilega spennandi að fá
þau hingað,“ segir Nanna og bætir
við að sýningarstaðir hátíðarinnar
séu nokkrir, m.a. Bar Ananas.
„Mér finnst það spennandi, það
verður gaman að vera inni í tjaldi
þar sem verður væntanlega svolítið
sveitt stemning, en þaðan er hægt
að trítla yfir í Mál og menningu, þar
sem verður meiri elegans. Til dæmis
verða þar tvær sólósýningar með
söng og flygli, Brynhildur Björns-
dóttir, eða Bibi Bioux eins og hún
kallar sig, ætlar að syngja þar
ástarlög á sýningu sinni Allt fyrir
ástina, en hin söngkonan heitir Stef-
anie Rummel og kemur frá Þýska-
landi, en hún ætlar að syngja á
frönsku, því þó hún sé þýsk þá
finnst henni hún vera frönsk,“ segir
Nanna og bætir við að fjölbreytnin
sé gríðarleg og að flestir viðburðir
fari fram á ensku en nokkrir þó á ís-
lensku.
„Margt af þessu er líka fyrst og
fremst sjónrænt og styðst ekki við
tungumál, eins og til dæmis sirkus-
atriðin.“
Töfrabragðakennsla fyrir börn
Nanna á erfitt með að „gera upp á
milli barnanna sinna“, viðburða á
hátíðinni, en hún mælir þó með
Grýlusýningu, Grýla, not for child-
ren, sem vann til verðlauna á
Fringe-hátíðinni í fyrra.
„Bandaríski sögumaðurinn
Christian Hege segir þar söguna af
Grýlu, en þessi viðburður er sannar-
lega ekki fyrir börn, enda er þetta
hryllingssaga. Hann rakst á Grýlu
þegar hann var að leita að sögum
fyrir hrekkjavöku og honum fannst
hún svo heillandi að hann bjó til
heila sögustund um hana, með sín-
um hætti,“ segir Nanna og tekur
fram að á hátíðinni sé heilmikið í
boði fyrir börn og unglinga.
„Við verðum með fjögur Youth
Fringe-námskeið fyrir unglinga á
aldrinum 13 til 19 ára. Frítt er inn á
þau en þar ætlar dragdrottningin
Gógó Starr að kenna krökkunum
allt um sviðsframkomu, listhópurinn
Huldufugl hjálpar þátttakendum að
skapa sviðsmyndir í óvenjulegum
rýmum, og uppistandarinn Dan
Zerin fer yfir það hvernig hægt er
að nota mótlæti í gerð uppistands,
en hann er sjálfur með tourettes-
heilkennið. Sirkus unga fólksins
leiðir námskeið í sirkus og hvernig
maður fer að því að stofna sviðs-
listahóp, því þau eru sjálf undir tví-
tugu. Við erum líka með viðburði
fyrir yngri börn, til dæmis verða
tvær kennslustundir um töfrabrögð
fyrir krakka, önnur heitir Science
Magic, en þar verður farið yfir vís-
indin á bak við töfrabrögð. Hin heit-
ir Magic Class og þar er verið að
kenna krökkum að gera töfrabrögð.
Þessar kennslustundir fara fram á
ensku en þær eru líka mjög sjón-
rænar svo börn þurfa ekki endilega
að kunna ensku til að njóta þeirra,“
segir Nanna og bætir við að Dans-
verkstæðið verði með skemmtilega
fjölskyldusýningu þar sem 10 til 20
ára krakkar geta tekið þátt, en
þurfa þá að senda inn myndband af
sér að dansa. „Þetta er samnorrænt
verkefni sem hefur farið um víðan
völl.“
Allskonar líkamar og kúnstir
Nanna hvetur fólk til að næla sér
snemma í miða á hátíðina, sérstak-
lega á kabarettsýningar og sirkus,
því reynslan hafi kennt að fljótt
selst upp á þær.
„Flestum finnst gaman að sjá
allskonar líkama gera kúnstir og
fólk að gera grín að sjálfu sér og
öðrum og spila á kynþokkann. Mar-
grét Maack stýrir báðum kabarett-
sýningunum sem verða á hátíðinni
en hún verður líka með pop-up
kabarettkennslu í höggmyndagarði
Listasafns Einars Jónssonar. Einn
af þeim sem tilheyra kabarettsen-
unni, St. Edgar, verður með sína
fyrstu sólósýningu í Tjarnarbíói.
Þetta er klukkutíma sýning, en ég
hef alltaf séð hann með fimm mín-
útna atriði, svo ég er mjög spennt
fyrir því að sjá þessa fyrstu löngu
sýningu. Þetta verður líka á afmæl-
isdeginum hans, laugardeginum, svo
hann er gríðarlega glaður að sýna
fólki helling af nýjum atriðum,“ seg-
ir Nanna sem hefur aðeins nefnt
það helsta af mörgum atriðum.
„Ég hlakka reyndar til að sjá allt
sem verður í boði og ég ætla líka í
hjólaskautapartíið sem er fyrir alla
aldurshópa, en það verður í hjóla-
skautahöll á Sævarhöfða 33. Ég hef
aldrei farið á hjólaskauta á ævi
minni, svo ég verð eflaust fyrst til að
detta á gólfið,“ segir Nanna og hlær.
Um stöðu veikra á Íslandi
Nanna tekur fram að hellingur af
fríum viðburðum sé á hátíðinni, m.a.
tvær málverkasýnignar í miðstöð-
inni í Aðalstrætinu og nokkrir við-
burðir í Gallerí Fold.
„Þar á meðal verður Bára Hall-
dórsdóttir, sem margir þekkja sem
Klaustur-Báru, en hún verður með
innsetningu sem heitir INvisible,
eða ósýnileg. Bára hefur verið með
sýningar hjá okkur á öllum þremur
hátíðunum sem við höfum haldið, en
hún kemur í sínu verki inn á hvernig
staða veikra er á Íslandi í dag og
hvernig það er að lifa með ósýnilegri
fötlun. Íslenska myndasögusam-
félagið verður með tvær sýningar,
bæði í Gallerí Fold og í anddyri
Tjarnarbíós, en það er rosa mikil
gróska í myndasöguheiminum hér á
landi og virkilega forvitnilegt að sjá
verkin uppi á veggjum.“
Miðasala á tix.is
Nánar á: rvkfringe.is
Uppistandssýningar hvert kvöld
- Jaðarlistahátíðin Reykjavík Fringe Festival fer af stað um helgina og stendur í viku - 70 verk
- Myndlistarsýningar, uppistand, dansverk, drag, kabarett, sirkus, hjólaskautapartí og fleira
Ljósmynd/Reykjavík Fringe Fest
Ástin Brynhildur Björnsdóttir, eða Bibi Bioux, syngur ástarlög á sýningu
sinni Allt fyrir ástina. Með henni hér er undirleikarinn A La Dioux.
Ljósmynd/Reykjavík Fringe Fest
Tónlistarleikhúsviðburður Storm Dunder flytur verkið The Clown on the
Fifth Floor. Sýningin vann aðalverðlaun í fyrra, þá sýnd í streymi.
Ljósmynd/Reykjavík Fringe Fest
Egoland Alþjóðlegur hópur listamanna, sem kallar sig SRSLYyours, mun í
verkinu Egoland fjalla um narsissisma og einstaklingshyggju í nútímanum.
Ljósmynd/Reykjavík Fringe Fest
Flottur A Solo from the Pit, með KEF Theatre, heitir viðburður þar sem
hinn sænski Elias Faingers fer þá frumlegu leið að spila óperur á trompet.