Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 38
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Hrekkjavakan hefur verið
að ryðja sér til rúms hjá
íslenskum fjölskyldum og
þeim fjölgar á ári hverju sem
taka þátt. Hrekkjavakan er á
morgun og má búast við að
mörg heimili fari í hrekkja-
vökubúninginn, bankað
verði upp á og beðið um gott
eða grikk.
Arna Guðlaug Einarsdóttir, köku
skreytingameistari með meiru, er
dolfallinn aðdáandi hrekkjavök
unnar og veit ekkert skemmtilegra
en að slá upp hrekkjavökuboði
með öllu tilheyrandi.
Arna skreytir heimilið hátt og
lágt, sker út grasker með fjölskyld
unni, velur búningaþema ár hvert
og til að toppa hrekkjavökuna
heldur Arna vanalega heljarinnar
hrekkjavökumatarboð þar sem
allar veitingarnar eru tengdar
hrekkjavökunni á einn eða annan
hátt. Þá eru kræsingarnar bæði
ógurlegar og tryllingslegar.
Ertu til í að svipta hulunni af
hrekkjavökuþemanu ykkar í ár?
„Í ár er Day of the deadþema,“
segir Arna og er orðin mjög spennt.
„Og ég verð að sjálfsögðu Bella
Muerte.“
Appelsínuguli liturinn heillaði
„Þegar ég bjó í Brussel, sem er mjög
fjölþjóðlegt samfélag, smitaðist
ég af þeim venjum og siðum sem í
kringum mann voru. Þar byrjaði ég
að kaupa smá hrekkjavökuskraut á
hverju ári. Svo fór maður að finna
verslanir sem seldu meira gæða
skraut og ég fór að safna því. Það
sem heillaði mig fyrst var appels
ínuguli liturinn en á þessum árs
tíma eru haustlitirnir allsráðandi.“
Kaupir þú nýtt hrekkjavökudót
árlega?
„Já, alltaf eitthvað smá. Mér
finnst gaman að skipta út, vera með
sitthvert þemað ár frá ári.“
Takið þið á móti þeim sem koma
og banka upp á og biðja um gott eða
grikk?
„Já, mér finnst alveg frábært
að sjá hvað krakkar og unglingar
leggja mikið í búningana. Að sjálf
sögðu eiga þeir alltaf að vera frekar
ógnvekjandi á þessum degi, prinsar
og prinsessur eiga heima á ösku
deginum.“
Hverjar verða kræsingarnar í ár
sem munu trylla gestina?
„Ég er alltaf með mikið af smá
réttum á boðstólum eða svokall
aðan fingramat – eða mat sem lítur
út eins og afsagaðir fingur. Fram
setningin skiptir mestu máli, rétt
irnir þurfa ekki að vera svo flóknir
Ógurlegar hrekkjavökukræsingar
Arna verður með Day of the dead-þema og verður í gervi Bella Muerte.
Frumlegar
paprikurnar í
graskersgerv-
inu.
Skemmtilega uppsettar paprikur.
Arna Guðlaug hefur sett á borð
þessa skemmtilegu ritvél í tilefni
dagsins með hryllingshöndum.
Það kennir ýmissa grasa í hrekkja-
vökusafninu hennar Örnu.
Arna Guðlaug
hefur safnað
ýmsum munum
sem tengjast
hrekkjavökunni.
heldur skiptir mestu máli að þeir
líti hrekkjavökulega út.“
Ertu til í að deila með lesendum
ómótstæðilegum og ógurlegum
kræsingum?
„Í ár vann ég mikið með paprikur
í framsetningu. Og hér er dæmi
um tvo rétti sem eru bornir fram
í papriku. Annars vegar kjúkl
ingaréttur sem er borinn fram í
appelsínugulum paprikum sem
eru skornar út eins og grasker á
Hrekkjavökunni.
Hins vegar einfalt og gott salat
sem hægt er að bera fram eitt og
sér eða sem meðlæti með öðrum
réttum.“
Kjúklingaréttur
6 appelsínugular paprikur
2-3 bollar af elduðum kjúklingi
1 bolli salsa
1 bolli svartar baunir
1 bolli soðin hrísgrjón
Taco krydd
Byrjið á að skera toppinn af
paprikunni og hreinsa paprikuna
að innan.
Takið því næst beittan hníf og
skerið andlit út í paprikuna líkt og
maður gerir við grasker á Hrekkja
vökunni.
Skerið kjúklinginn niður í litla bita
og kryddið með Taco kryddi og
eldið á pönnu.
Bætið því næst salsasósunni,
svörtu baununum og elduðu hrís
grjónunum út á pönnuna. Blandið
þessu vel saman. Fyllið paprik
urnar með kjúklingaréttinum og
berið fram.
Salat í papriku
Paprikur í lit að eigin vali
Einn poki salatblanda
Slatti af kirsuberjatómötum
Ein gúrka, notuð bæði í salatið og
sem skraut
Svartar ólífur
Lítil dós af gulum baunum
Eða hvað sem er sem þið viljið í
salatið
Ólífuolía og balsamik edik
Grænar ólífur – augu á paprikuna
Salatið er bara útbúið á hefð
bundinn hátt, öll hráefnin skorin
smátt niður og blandað saman í
stórri skál. Toppurinn af hverri
papriku er skorinn af til að gera lok
á hverja og eina. Takið tannstöng
ul og festið tvær grænar ólífur á
lokin sem augu. Skerið eða notið
ostaskera til að útbúa langa þunna
tungu úr gúrkunni. Fyllið paprikur
með salatinu og skellið tungunni
á milli papriku og loksins. Berið
fram á ógurlegan hátt. n
Í ár vann
ég mikið
með
paprikur
í fram-
setningu.
Og hér er
dæmi um
tvo rétti
sem eru
bornir
fram í
papriku.
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
MARINE COLLAGEN FYRIR HÚÐ, HÁR OG NEGLUR
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans.
Kollagen er í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum
og beinum mannslíkamans og:
• Seinkar öldrun húðarinnar
• Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum
línum í húðinni
• Eykur rakastig og stinnleika húðarinnar
• Lagfæra háræðaslitasvæði
• Stuðlar að upptöku kalsíums og
kalsíumuppbótar.
Vítamín C:
• Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar
• Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og
ónæmiskerfisins
• Stuðlar að því að verja frumur fyrir
oxunarálagi og draga úr þreytu
• Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms
E-vítamíns og aukinni upptöku járns.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Marine Collagen
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, og Fjarðakaup.
4 kynningarblað A L LT 30. október 2021 LAUGARDAGUR