Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Side 5
INNGANGUR
Sumarið 1955 voru hafnar á vegum Atvinnudeildar Háskólans, nú Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins, rannsóknir á gróðri afréttarlanda. Voru
þær í fyrstu unnar í hjáverkum með jarðvegsrannsóknum, en hafa verið
sjálfstætt verksvið við stofnunina síðan 1960.
Tilgangur þessara rannsókna er margþættur. Þeim er ætlað að leiða
í ljós, hve mikið af landinu er gróið og hvernig gróðurfari landsins er
háttað. Ennfremur að ákvarða beitarþol afréttanna og kanna, hvar gróð-
ureyðing á sér stað eða er yfirvofandi. Gróðri landsins hefur stöðugt
hnignað á síðari öldum, en frumskilyrði fyrir varðveizlu hans er, að
hann sé rétt nýttur.
Starfseminni hefur vaxið fiskur um hrygg á síðari árum með auknu
starfsfé og starfsliði, og að sama skapi hafa rannsóknirnar orðið víð-
tækari. Upphaflega voru þær einskorðaðar við kortlagningu á gróðri
afréttanna, en síðan hefur verið hafizt handa á fleiri sviðum, og nú skipt-
ist verkefnið í fjóra meginþætti:
a) Flokkun og kortlagningu gróðurlenda.
b) Mælingar á gróðurfari og uppskerumagni gróðurlenda.
c) Rannsóknir á plöntuvali sauðfjár.
d) Ákvörðun á meltanleika og efnainnihaldi beitargróðurs (fóðurgildi).
Fyrstu gróðurkortin, ásamt gróðurlýsingu, voru gefin út 1957, og voru
þau af Gnúpverjaafrétti sunnan Fjórðungssands (B. Jóhannesson, I. Þor-
steinsson, 1957). Vorið 1965 voru gefin út sex gróðurkort, er ná yfir
mikinn hluta Biskupstungna-, Hrunamanna-, Flóa- og Skeiðamanna- og
Gnúpverjaafrétta í Árnessýslu og syðsta hluta Eyvindarstaðaheiðar í
Austur-Húnavatnssýslu. Voru endurskoðuð kort af Gnúpverjaafrétti
gefin út að nýju, því að eldri kortin voru ekki í samræmi við hin nýrri.
Útgáfa gróðurkorta er dýr, en æskilegt er, að kortin séu gefin út sem
fyrst eftir að útivinnu við kortlagninguna er lokið. Þegar hefur mikill
hluti hálendisins verið kortlagður, sunnanlands austur að Hverfisfljóti
og norðanlands að Jökulsá á Fjöllum, og verður kortlagningu hálendisins
alls væntanlega lokið um 1970. Með því fjármagni, sem nú er veitt til
þessara rannsókna, verður unnt að hraða útgáfu kortanna. Á þessu ári
koma út 10 kort, og er ætlunin að gefa út jafn mörg kort árlega meðan
þörf krefur.