Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Blaðsíða 17
15
liggur. Einu árnar, sem hafa lindáreinkenni á afréttinum, koma undan
Illahrauni, (Hvítá, Kisa og Miklilækur).
Af framangreindu er ljóst, að jarðlög í jarðvegsgrunninum ráða mjög
aírennslisháttum og jarðvatnsstöðu. Þurrlendisjarðveg er því nær ein-
göngu að finna á lausum jarðlögum og í allbröttum hlíðum, en mýrar
á þéttum jarðlögum. Mýrar eru þó einnig meðfram ám, þar sem jarð-
vatnsstaða er há. Af þessum sökum gætir uppblásturs og hefur gætt meira
í bröttum hlíðum, þar sem vatn rennur fljótt af, og á gropnum jarðlög-
um, þar sem vatn sígur fljótt niður. Líparítsvæðin eru alla jafna lítt
gróin, enda molnar bergið ört við frostveðrun í smágrýtta urð, sem
plöntur ná ekki að festa rætur í.
Gróðurfarssaga
Á hlýviðrisskeiði nútímans hefur meginhluti hálendisins sennilega verið
gróinn. Þurrlendið hefur verið vaxið birkikjarri, en í hallalitlum hlíðum
og lægðum hafa verið mýrar eða flóar. Mýrarnar hafa verið meiri um
sig og víðar en nú er. Síðasta árþúsundið hefur landið blásið upp, eink-
um vegna kólnandi loftslags, öskufalls (t. d. upp úr Heklugosunum 1104,
1693 og 1766) og sökum ágangs búfjár. Fokmoldin hefur víða þurrkað
mýrar og þær þá einnig blásið upp. Sennilega hafa flárnar (freðmýrarn-
ar) orðið til á síðustu öldum. Þær hafa á síðustu áratugum mjög dregizt
saman. Ef veðrátta helzt svo hlý sem verið hefur nú síðustu áratugina,
er líklegt, að flár hverfi með öllu á svæðinu, en þær eru nú nær eingöngu
í um 600 m hæð við Dalsá og í Þjórsárverum, svo og norðan Kerlingar-
fjalla.
ÚRKOMA í ÓBYGGÐUM
MILLI ÞJÓRSÁR OG LANGJÖKULS
Mjög lítið er vitað með vissu um úrkomu á svæðinu ofan byggða milli
Þjórsár og Langjökuls. Aðeins tveir úrkomumælar eru á öllu svæðinu,
og verður því í eftirfarandi greinargerð stuðzt við úrkomumælingar utan
svæðisins og mælingar á afrennsli. Sumar þessara mælinga hafa aðeins
farið fram um stuttan tíma og eru því ekki örugg vísbending um veður-
far. Mælingarnar hafa verið umreiknaðar með hliðsjón af athugunum á
veðurstöðvum í byggð, þannig að tölurnar, sem hér verða birtar, eiga
að sýna úrkomuna í meðalárferði. Úrkoman er tilgreind í heilum tug-
um mm.