Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Page 16
14
hinnar hröðu hörfunar jökulsins er víða að finna á afréttinum, enda hefur
jökullinn, er hann hopaði til austurs og síðan suðausturs, stíflað stór-
árnar, og þá myndazt uppistöðulón í farveginum.
Svo var t. d. um Hvítá ofan Gullfoss og Þjórsá norðan Norðlingaöldu.
Er jökullinn þynntist, lækkaði smám saman í lónunum, svo sem malar-
hjallar í mismunandi hæðum bera vitni um.
Jökullinn hefur víða rofið lægðir í berggrunninn. Er hann hopaði,
uiðu lægðirnar að vatnastæðum. Flest vatnastæðin fylltust fljótlega af
framburði áa og lækja, einkum urðu lægðir í farvegum stóránna skamm-
æar. í Hvítá voru tvær slíkar lægðir. Önnur við mynni Búðarár („Búð-
arárlón"), en hin við mynni Stangarár („Stangarárlón"). Þar eru nú
víðáttumiklir og sléttir malarhjallar. í Þjórsá hefur á tímabili verið eitt
slikt lón, sem náð hefur frá Eyvafeni — Svartá við Norðlingaöldu og
langt norður fyrir Sóleyjarhöfða. Minjar þessa lóns eru sléttir sand- og
melhjallar í 575 m hæð. Lægsti hluti Þjórsárvera er á þessari lónfyll-
ingu. Er lónin höfðu fyllzt framburði, skáru árnar sig niður úr berg-
höftunum, sem stífluðu þau uppi, svo og niður í gegnum malar- og sand-
fyllinguna. Leirur, sem víða eru í lægðum og slökkum á afréttinum, eru
einnig forn vatnastæði, sem fyllzt hafa framburði.
Af öðrum jökulmenjum, sem ekki hefur verið getið, má nefna malar-
ása, en þeir eru til orðnir, er jökulár, sem runnu í göngum í jökli, settu
af sér framburðinn á jökli eða við jaðar hans. Mestir eru malarásarnir
við Hvítá og Norðlingaöldu.
Norðvestan Kerlingarfjalla eru miklir melhjallar. Þeir eru fyllingar
jökulskerslóns, er myndazt hefur í vari Kerlingarfjalla, sem stóðu upp
úr Búðajöklinum.
Þá er þess að geta, að farvegir Hvítár ofan Gullfoss og Þjórsár ofan
Dynks eru allbreiðir, og hafa því víða myndazt eyrar í ánum og meðfram
þeim. Kvíslarnar, sem koma undan Hofsjökli, hafa hlaðið upp mikla aura
á nútíma.
Verksummerki frostsprengingar, jarðskriðs og frostlyftingar eru mjög
algeng á afréttinum, og víða er stórgert net frostsprungna (fleyg-
sprungna).
Jarðfræði og gróðurfar — jarðvatn
Berggrunnur og jökulruðningur á svæðinu milli Þjórsár og Hvítár er
alla jafnan svo þéttur, að úrkoma rennur að mestu leyti af á yfirborði
og myndar lækjarsytrur, sem síðan safnast saman í dragár. Úrkoma, sem
fellur á sand- og malarfláka, hraun eða móberg á aftur á móti greiða
leið niður í jarðvegsgrunninn og kemur síðan fram í lindum á mörkum
gropinna jarðlaga og þétts berggrunns eða jökulruðnings, sem undir