Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Síða 22

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Síða 22
20 Kerlingarfjöll (Photo: Þorl. Ein.) fjalla upp með Jökulfalli, allt inn að jökli, eru all fjölbreytileg, en ósam- felld gróðurlendi í 700—800 m hæð, og er það einkum votlendisgróður meðfram ám og lækjum. Hæðarmörk samfellds gróðurs á afréttinum eru um 600 m, og eru þau tíltölulega skörp bæði að norðan og austan. Á Geldingafelli eru þó all víðáttumiklar mosaþembur í 600—750 m hæð. Gróður Hrunamannaafréttar er mjög fjölbreytilegur, eins og sést á hmum mikla fjölda gróðurhverfa, sem þar eru. Þrjú gróðurlendi eru lang algengust og þekja um 80 prósent af grónu landi afréttarins. Þau eru mosaþemba, kvistlendi og votlendi. Mosaþemba þekur um 45 prósent af gróðurlendinu, og er það einkum mosaþemba með smárunnum og stinnastör (A., og A4). Hún er á víð og dreif um allt afréttarsvæðið, en verður samfelld í 400—500 m hæð. Þar fvrir ofan má heita, að hún sé allsráðandi af grónu landi ofan við 500 m. Mosaþemban er á hryggjum og hæðum, þar sem skilyrðin eru of hörð fyrir annan gróður, og er hún því oft gisin. Víða á afréttinum er hún sennilega nýgræðingur, endurgræðsla á örfoka landi, þar sem gróður- lendin eru að þróast að nýju. Kvistlendi (B4—D5) þekur um 20 prósent af gróðurlendinu. Algengustu tegundir plantna í kvistlendinu eru fjalldrapi og lyng, einkum kræki- og bláberjalyng. Víðáttumest í kvistlendinu eru þó tvö gróðurhverfi

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.