Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Page 27
25
Önnur gróðurlendi, er hér hafa verið nefnd, hafa litla útbreiðslu á
afréttinum.
Ástand gróðurlendisins
Mikill hluti Flóa- og Skeiðamannaafréttar frá Fossölduveri norður að
Kisu eru ásar og hryggir í 600—800 m hæð. Þetta er svipuð hæð og hinn
gróðurlausi austurhluti Hrunamannaafréttar, en mun hærra en Gnúp-
verjaafréttur austan við. Eins og að framan greinir er hálendi þetta nær
alveg gróðurlaust, en fljótlega eftir að landið lækkar til austurs og vest-
uis, kemur gróður í ljós. Að sjálfsögðu er erfitt að gizka á, hvernig gróð-
urfari afréttarins var varið áður. En mikil ástæða er til að ætla, að þetta
svæði hafi verið gróðurlítið um langt skeið vegna óhagstæðra gróður-
skilyrða, fyrst og fremst vegna næðingarsamrar veðráttu og vatnsskorts.
Enginn alvarlegur uppblástur er á afréttinum, en minni háttar gróður-
eyðing á sér þó stað á svæðinu milli Dalsár og Kisu. I aðalgróðurlendinu
á suðurafréttinum er þó talsvert um rof, einkanlega í mosaþembunni.
Nýgræður eru aðeins um 1 prósent af öllu grónu landi afréttarins, og
eru þær einkum á votlendi.
Foksandur er nokkur í hraununum norður undir Hofsjökli, en lítil
hreyfing virðist að öðru leyti vera á hinu ógróna landi, enda þótt talsvert
af því séu sandar.
GNÚPVER J AAFRÉTTUR
Almennt yfirlit
Gnúpverjaafréttur takmarkast að norðan af Hofsjökli, en að austan
af Þjórsá frá upptökum, þar til hún kemur í Fossá neðan við Búrfell.
Við friðun Þjórsárdals 1938 var gerð girðing frá Þjórsá, aðeins sunnan
við Hóiaskóg, vestur yfir Stangarfell í Fossá við Háafoss. Girðing þessi
hefur síðan verið hin raunverulegu suðurmörk, að því er varðar nýtingu
afréttarins, og við útreikning á flatarmáli gróðurlendis hans er ekki
tekið með gróðurlendi sunnan girðingarinnar.
Vesturmörkum afréttarins hefur verið lýst hér að framan.
Gnúpverjaafréttur er um 480 km2 að flatarmáli. Hann er nálægt 100
km að lengd, en að jafnaði aðeins 5—6 km að breidd. Lítill hluti hans,
frá suðurmörkum norður fyrir Sandafell upp með Þjórsá, er neðar en
400 m. Að langmestu leyti er hann í 400—600 m hæð og er tiltölulega
jafnlendur.