Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Page 32
30
Erfitt er að staðhæfa, hve mikið af þessu landi hefur verið gróið áður,
þegar bezt lét. Víða má sjá, hvar gróður hefur eyðzt á síðari tímum, og
á svæðinu í heild er gróðureyðing enn þá örari en endurgræðsla.
Orsakir gróðurleysisins geta verið margar, og er oft erfitt að greina,
hver frumorsökin er: Hæð yfir sjávarmáli, berggrunnur, skjólleysi, lítil
úrkoma, þurrkun votlendis, hreyfing á jarðvegi, ofnýting gróðurs o. fl.
Þá má ekki gleyma gróðureyðingu af völdum náttúruhamfara; t. d. hefur
svæðið þrisvar orðið fyrir miklum skakkaföllum af völdum öskufalls úr
Heklu, eins og að framan greinir. Oft er gróðurleysið afleiðing af sam-
spili margra þessara þátta.
Kerlingarfjöll eru t. d. öðru fremur ógróin vegna hæðar og vegna eðlis
berggrunnsins, sem er líparít (sbr. kaflann um jarðfræði svæðisins).
Það molnar ört og myndar að jafnaði brattar hlíðar, sem plöntur festa
ekki rætur í.
Ástæða er til að ætla, að meginorsök gróðurleysis Fjórðungssands sé
vatnsskortur, og að sandurinn sé þurrkaeyðimörk. í kaflanum hér að
framan um úrkomu á svæðinu er talið, að úrkoma á þessum slóðum sé
undir 800 mm og úrkoma í júní — ágúst, um vaxtartímann, aðeins 20
prósent af því, eða um 160 mm. Við það bætist, að sandurinn er grófur,
og vatn hripar ört gegnum hann. Gróður á þessum slóðum er aðeins
meðfram ám og lækjum, þar sem grunnvatnsstaða er há.
Frekari sönnun fyrir úrkomuleysi svæðisins er, að þar eru engar snjó-
dældir, en þær koma fram við langvarandi, þung snjóalög.
í töflu 9 er gerður samanburður á gróðurfari afréttanna þriggja, og eru
þar dregin saman þau gróðurhverfi, sem tilheyra sama gróðurlendi.
Tafla 9. Skipting gróðurlenda (%) á Hrunamanna-, Flóa- og
Skeiðamanna- og Gnúpverjaafréttum
Table 9. Distribution of piant communities on three commons
expressed in percentage
Gróðurlendi Plant Communities Merki Design- ation Hrunam.- afr. Flóa- 03 Skeiðam.- afr. Gnúpv.- afr.
Mosaþemba, Moss heath A 45,4 46,1 30,9
Kvistlendi, Dwarj shruh heath . . B, C, D 21,0 1,7 15,9
Hálfgraslendi, Sedge heath . E,F. G 9,3 38,3 15,3
Graslendi, Grassland H 3,6 1,4 0,8
Snjódældir, Snowpatches I 1,7 1,6 1,1
Nýgræður, Regenerated land . .. K 2,2 1,2 1,2
Votlendi, Bogs and jens . T.U.V 16,7 9,8 34,8
Mosaþemba setur langmestan svip á gróðurfar svæðisins í heild. Á
Hrunamanna-, Flóa- og Skeiðamannaafréttum þekur hún nær helming af