Heilsuvernd - 01.03.1951, Page 10
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Merkilegar manneldistilraunir
Það sem sérkennir danska lækninn og manneldisfræð-
inginn Mikkel Hindhede, og starf hans allt, er gerhygli
hans, er kemur m. a. fram í því, að honum er sýnt um að
eyða ekki meiru en því, sem vel má komast af með. Sem
sjúkrahúslæknir notaði hann lítið af lyfjum, enda taldi
hann þau flest gagnslitil. Sjálfur var hann sparneytinn og
m. a. frábitinn áfengi og tóbaki. Æviatriðum hans var lýst
stuttlega í síðasta hefti (4. hefti 1950), og verður nú greint
nánar frá nokkrum rannsóknum hans, sem hann ávann
sér heimsfrægð fyrir.
Hindhede var svo lánssamur, er hann hafði fengið til
umráða hina langþreyðu rannsóknarstofu, að honum buð-
ust aðstoðarmenn hver öðrum betri. Kunnastur þeirra var
Frederik Madsen. Hindhede gerði sig ekki ánægðan með
næringartilraunir á kanínum og rottum. Hann vildi gera
tilraunir á mönnum, og Madsen varð einskonar tilrauna-
„kanína“, alltaf reiðubúinn til að prófa mismunandi fæðu-
tegundir. Hindhede gerði þessar tilraunir oft einnig á sjálf-
um sér og öðrum, er buðu sig fram sem sjálfboðaliðar.
Kartöflutílraunir. Ein af fyrstu rannsóknum Hindhedes
í rannsóknarstofu sinni voru tilraunir með kartöflufæði.
Fr. Madsen nærðist í heilt ár á kartöflum og smjörlíki ein-
göngu, auk vatns. Mikið af þessum tíma stundaði hann
erfiðisvinnu. Annar ungur maður lifði á samskonar fæði í
iy2 ár með ágætum árangri. Margir læknar skoðuðu þá