Heilsuvernd - 01.03.1951, Blaðsíða 20
12
HEILSUVERND
Sérstaklega athugaði ég, hvað menn báru í garðana í fyrra.
Reyndist þá vera svo, að ég einn hafði borið í garðinn
þriggja ára gamalt sauðatað, sem orðið var mjölsmátt.
Hver gat orsö'kin verið önnur?
Eg er kominn á þá skoðun, að hæfilega gamall áburð-
ur, sem rotnunargerlarnir hafa haft tækifæri til að breyta,
sé hlaðinn sterkju, lykt eða óþægilegu bragði, svo að kál-
flugan þýðist ekki að leggja egg sín þar. Enda sést þetta
nokkuð af því, að þar sem loftáburður er notaður, verð-
ur mest vart við kálfluguna. Þar er líka engin rotnun
til jafns við það, sem á sér stað í gömlum haug. Getur lika
hugsazt, að í gamla haugnum myndist einhver geislavirk
efni, sem fæli fluguna. Þetta atriði er órannsakað og því
ekki gott að segja ákveðið um það, fyrr en vísindin hafa
leitt þetta í ljós.
I rúm tuttugu ár, sem ég hefi verið við ræktun meira og
minna, hefi ég veitt því eftirtekt, að rætur jurtanna verða
uppbólstraðar af örfínum vef, sem bindur mikið magn af
mold í sér, þegar jurtirnar vaxa í jarðvegi með rotnuðum
áburði. Þar sem áburðargjöfin er loftáburður eða annað ó-
rotnað efni, verða ræturnar sléttar og hreinar. Þetta hefir
það í för með sér, að hin fyrr umgetna rót hefir miklu meira
tækifæri til að vinna næringarefni úr jarðveginum en hin,
og það hefir mikið að segja fyrir vöxt jurtarinnar.
Ættum við því að kappkosta að bæta jarðveginn, svo að
þessi rótarnet fái að þroskast sem bezt.
TIL ÁSKRIFENDA og FÉLAGSMANNA.
Látið ekki dragast að kaupa hina nýju bók NLFl, „Mataræði og
heilsufar", eftir enska manneldisfræðinginn Sir Robert McCarrison.
Þið fáið hana senda burðargjaldsfrítt, ef greiðsla fylgir pöntun. Hún
verður einnig send með póstkröfu, eða, ef menn óska, án kröfu, og
verður andvirði hennar bá innheimt um leið og áskriftargjöld Heilsu-
verndar eða félagsgjaldið.
Muniö, aö af 50 kr. pöntun er gefinn 10% afsláttur, og af 100 kr.
pöntun eöa þar yfir 20%.