Heilsuvernd - 01.03.1951, Side 34
26
HEILSUVERND
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA
um útvegun heilnæmra fæðutegunda.
1 sameinuðu Alþingi var nýlega samþykkt þingsályktunartillaga sú,
er fer hér á eftir ásamt greinargerö. Tillagan var samþykkt með 26
samhljóða atkvæðum, að viðhöfðu nafnakalli, og sátu 3 hjá við at-
kvæðagreiðsluna. Ber að þakka alþingismönnum þann velvilja og
skilning að ljá tillögunni samþykki sitt, og sérstaklega eiga flutnings-
mennirnir þakkir skildar, þau Hannibal Valdimarsson, sem var aðal-
flutningsmaður og framsögumaður, Rannveig Þorsteinsdóttir, Ás-
mundur Sigurðsson og Jóhann Þ. Jósefsson.
TILLAGAN.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um það við
hlutaðeigandi yfirvöld, að Náttúrulækningafélagi Islands verði veitt
nægileg innflutnings- og gjaldeyrisleyfi til innflutnings á ómöluðu
korni, ósigtuðu mjöli, grænmeti að vetrinum, þurrkuðum ávöxtum
o. s. frv., til þess að félagið geti séð félagsmönnum sínum og öðrum
landsmönnum, er þess kynnu að óska, fyrir heilnæmum og óspilltum
matvælum, sem nú er miklum vandkvæðum bundið að útvega.
GREINARGERÐ.
Náttúrulækningafélag Islands, með Jónas lækni Kristjánsson fyrr-
um alþingismann í fararbroddi, hefir á undanförnum árum beitt sér
fyrir mjög þýðingarmiklu starfi í þá átt að opna augu þjóðarinnar
fyrir aukinni neyzlu óspilltra og heilnæmra matvæla, svo sem græn-
metis, ómalaðs korns, ósigtaðs mjöls, sojabauna, ávaxta o. s. frv.
I Náttúrulækningafélaginu munu nú vera um 1700—1800 félags-
menn, og víðs vegar um landið er fjöldi fólks, sem hefir mikinn hug
á að haga mataræði sínu að meira eða minna leyti i samræmi við
kenningar þessa félagsskapar eða forgöngumanna hans.. — Sem vott
um almennan áhuga á þessum málum má benda á hina miklu aðsókn
að nýafstaðinni matvælasýningu Náttúrulækningafélagsins, sem stóð
aðeins í 3 daga, en var þó sótt af um 4000 manns.
En hér er ekki hægt um vik, því að ýms af þeim matvælum, sem
mestu varða, eru oft lítt fáanleg eða ófáanleg. Má þar nefna græn-
meti að vetrinum, þurrkaða ávexti og nýja, ómalað korn, nýtt mjöl
o. fl.
Ef einhver vildi skýra þetta með gjaldeyrisfátækt þjóðarinnar, fer
það skeyti framhjá markinu, því að nýtt grænmeti, svo sem hvítkál,
gulrætur og þess konar, er mjög ódýrt í innkaupum og ómalað korn
kostar engan aukagjaldeyri, þar sem það kæmi i stað annarrar mjöl-
vöru. Og að því er ávextina snertir leggur Náttúrulækningafélagið að
vissu leyti meira upp úr þurrkuðum ávöxtum (rúsínum) en nýjum,