Heilsuvernd - 01.03.1951, Page 36
28
HEILSUVERND
um í veigamiklum atriðum í öfuga átt um fæðuval og heilsusamlegt
mataræði. Bregða eftirfarandi tölur úr innflutningsskýrslum all-
skýru ljósi yfir þessar óskemmtilegu staðreyndir .
Tölurnar hér á eftir sýna innflutning helztu tegunda kornmatar í
kg á mann á ári.
Heill Rúg- Hveiti- Hrís- Bygg Hafra-
rúgur mjöl mjöl grjón mjöl
1873—-79 43 9 0,5 6 13,5 >>
1880—84 40 13 2 9 15 >>
1885—89 33 17 8 9 15 ”
1890—94 24 20 10 10 16 ”
1895—99 23 29 15 11 16 0,6
1900—04 21 33 18 12 15 1,5
1905—09 15 37 23 10 8 6
1910—14 11 49 27 10 >> 12
1915—19 1 54 39 6,5 >> 21
1920—24 1 55 37 6 >> 17
1925—29 3,5 47 41 7 >> 17
1930—34 4 39 45 6 >> 15
1935—39 2 47 43 6 »> 14
1949 ” 36 58 4 >> 9
Ætli þeir verði ekki nokkuð margir, sem þessar tölur athuga, er
hljóta að viðurkenna, að þróun kornvöruinnflutnings stefni í öfuga
átt við það, sem vera ætti og skynsamlegt væri?
Allt fram undir aldamót er það ómalað korn, sem setur aðalsvip-
inn á kornvöruinnflutninginn. Það er heill rúgur, hrísgrjón og bygg.
— Nú er heili rúgurinn horfinn og byggið sömuleiðis. í byggsins stað
er komið haframjöl. Hrisgrjónaneyzlan hefir lítið breytzt allt þetta
tímabil. Rúgmjölsinnflutningurinn hefir fjórfaldazt síðan 1873, úr 9
kg. í 36 kg. á mann á ári.
Þetta er í sjálfu sér afturför, því að ómalað korn getur geymzt
óskemmt svo árum og jafnvel öldum skiptir. Að það sé óskemmt,
má m. a. marka af því, að það getur spírað. En jafnskjótt og það
hefir verið kurlað eða malað, byrja í því efnabreytingar, sem spilla
mjölinu og eyða meðal annars fjörefnum þess. Verða skemmdirnar
þeim mun meiri sem lengra líður. Munurinn á nýmöluðu og geymdu
mjöli finnst greinilega á bragðinu. Brauð úr nýmöluðu mjöli er svo
ilmandi bragðgott, samanborið við annað brauð, að þeir einir trúa,
sem reynt hafa.
Enn meiri skemmd er það á hveitikorninu, sem hingað flyzt, að við
mölunina hefir hýðið jafnan verið sigtað frá og því fleygt í burtu.
Er það venjulega selt við lágu verði sem gripafóður. — En þar með
er einmitt kastað burtu verðmætustu næringarefnum kornsins. Þessi