Fréttablaðið - 18.12.2021, Page 62

Fréttablaðið - 18.12.2021, Page 62
að hjálpa til og eiginlega bara síðan ég man eftir mér hef ég verið fyrir í eldhúsinu. Ég hef verið svona um 17 ára þegar ég tók að mér jólamat- inn í fyrsta skipti, í minningunni var það alveg greinilegt að ég væri að taka hann í fyrsta skipti sjálfur,“ segir Hinrik og veit fátt skemmti- legra en að matreiða jólamatinn fyrir fjölskyldu sína. Hinrik segir að það hafi ekki verið mikið af jólahefðum og -siðum í bernsku sinni. „Í minningunni hefur ekki verið mikið af jólahefðum eða -siðum sem við höfum haldið, jólin hafa aðallega snúist um samveru, góðan mat og góðan félagsskap. Það eru jólin fyrir mér.“ Hann segist þó halda í matarhefðirnar sem voru í hans æsku. „Yfir jólin held ég í uppáhaldshefðirnar, auðvitað breytist eitthvað í gegnum árin og nýjar hefðir þróast en í grunninn eru sömu matarhefðir yfir hátíð- arnar.“ Á áramótunum er það kal- kúnninn hvort sem hann er heima eða hjá tengdaforeldrum sínum og það finnst Hinrik ómissandi. Hinrik deilir hér með lesendum uppskriftunum að hátíðarrétt- unum sem hann framreiddi í þætt- inum Matur og heimili á dögunum sem hittu svo sannarlega í mark hjá matargestum. Pönnusteikt hreindýr í hvítlauk og rósmaríni 2 stk. hreindýralundir 3 stk. hvítlauksgeirar Smá rósmarín 100 g smjör Salt og olía eftir smekk Kryddið hreindýrið með salti eftir smekk og setjið út á heita pönnu með olíu. Steikið í um 2-3 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjötið er orðið fallega brúnað. Bætið næst við smjöri, rós- maríni og hvítlauk út á pönnuna og haldið áfram að steikja í 2-3 mínútur og snúið lundinni reglu- lega. Takið af pönnu og setjið í eldfast mót. Notið kjarnhitamæli og eldið steikina inni í ofni á 180°C þar til að kjarnhitinn nær 42°C gráðum. Hvílið og skerið niður. Hunangssteikt barbarian andabringa 2 stk. andabringur 1 msk. hunang 2 msk. smjör Salt og olía eftir smekk Skerið rákir í fituna á andabring- unni. Hitið pönnu í miðlungs hita. Bætið smá olíu út á pönnuna og byrjið að steikja andabringuna á fituhliðinni. Þegar fitan á öndinni er byrjuð að bráðna má hækka hitann í botn á pönnunni. Þá nærðu fallegri steikingu og skinnið verður stökkt. Næst er smjöri, hunangi, rós- maríni og hvítlauk bætt við út á pönnuna og andabringan steikt á hinni hliðinni. Gott að velta smjörinu með skeið yfir andabringuna meðan hún steikist. Jólin nálgast óðfluga og í tilefni þess bauð Hinrik Örn Lárusson matreiðslumaður og landsliðskokkur til hátíðarveislu á heimili sínu og unnustu sinnar Ólafar Eirar Jónsdóttur og sonar. sjofn@frettabladid.is Í þættinum Matur og heimili eldaði hann og reiddi fram jóla- matinn sem fjölskyldan ætlar að snæða á aðfangadagskvöld. Í þættinum fór Hinrik yfir helstu trixin þegar elda á villibráð eins og hreindýr og önd og gaf góð ráð. Hinrik byrjaði snemma að taka þátt í matreiðslunni fyrir jólin og yfirtók eldhúsið mjög fljótt enda hefur hann haft ástríðu fyrir því að elda og framreiða kræsingar frá því að hann man eftir sér. „Ég var ungur þegar ég byrjaði Guðdómlegt hreindýr og steikt andabringa Hinrik Örn Lárusson býður hér upp á afar girnilegar uppskriftir að jólamatnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hreindýr og önd, tvíréttuð jólaveisla að hætti Hinriks Arnar. Gómsæt og bragðmikil fylling með hægelduðum andalærum. Hunangsristað rósakál með hesli- hnetum. Ljúffengt meðlæti. Takið af pönnunni og setjið í eldfast mót. Setjið ofn á 180°C gráður og eldið þar til kjarnhiti er kominn í 58°C gráður. Takið út og látið hvíla í um það bil 5-6 mínútur. Gómsæt fylling með hægelduðum andalærum 3 stk. andalæri hægelduð 300 g svínahakk 1 stk. laukur 6 stk. sveppir 1 hvítlauksgeiri 1 bolli brauðteningar 1 bolli mjólk Smjör eftir smekk Kjötið af andalærum rifið niður í skál Hakk, laukur, hvítlaukur og sveppir steikt saman á pönnu. Andalærunum bætt út á pönn- una með smjöri. Næst er brauðteningum og mjólk bætt saman við. Öllu saman blandað í skál. Bakað í 25-30 mínútur í eldföstu móti. Brokkolísalatið hennar mömmu 1 stk. brokkolíhaus ½ rauðlaukur 200 g sýrður rjómi 200 g majónes 2 msk. þurrkuð trönuber 1 msk. hunang Sítrónusafi eftir smekk Salt eftir smekk Saxið brokkolíið og rauðlaukinn smátt niður. Blandið saman rest af hráefni við brokkolíið. Hunangsristað rósakál með heslihnetum 500 g rósakál 2 msk. smjör 1 msk. hunang 2 msk. ristaðar heslihnetur Salt og olía eftir smekk Rósakálið er soðið í 2 mínútur í potti og svo snöggkælt með klaka eða undir köldu vatni. Næst er panna hituð vel með olíu, rósakálið sett á pönnuna og steikt. Smjöri og hunangi bætt út á pönnuna og steikt þar til rósakálið verður karamellíserað. Heslihneturnar eru muldar niður. Rjómasoðnar gular baunir 2 dós gular baunir 500 ml rjómi 100 g smjör Allt sett i pott og soðið saman þar til rjómablandan byrjar að þykkna. Sykurbrúnaðar kartöflur með rósmaríni og appelsínuberki 1 kg soðnar kartöflur, skrældar 200 g sykur 100 g smjör 200 g rjómi 3 stilkar rósmarín 1 stk. appelsína Sykur hitaður á pönnunni þar til hann brúnast vel. Rjómanum bætt út á pönnuna og rjómi og sykur soðið saman. Næst er smjörinu bætt rólega saman við og hrært vel á meðan. Saxið rósmaríntoppa og rífið börkinn af appelsínunni út í karamelluna. n AVON SNYRTIVÖRUR avonsnyrtivorur.is VERÐ MEÐ VERSLUNINA OPNA Í Hrísrima 35 112 Grafarvogi Laugardaginn 18. des. frá 12-16 Mánudaginn 20. des. frá 14-18 Þriðjudaginn 21. des. frá 14-18 Miðvikudaginn 22. des. frá 14-18 Fimmtudaginn 23. des. frá 14-20 Mozart við kertaljós Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500 Hafnarfjarðarkirkju sunnudag 19. des. kl 21.00 Kópavogskirkju mánudag 20. des. kl 21.00 Garðakirkju þriðjudag 21. des. kl 21.00 Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudag 22. des. kl 21.00 Camerarctica Mozart by candlelight Kammertónlist á aðventu 2021 8 kynningarblað A L LT 18. desember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.