Strandapósturinn - 01.06.1985, Síða 86
hefði verið haft í Glasgow, fyrr en mér var sagt það 2 — 3 dögum
síðar, svo var skoðun þessi nákvæmlega af hendi leyst. Sama var
að segja um hina síðari, er átti að fara fram rétt áður en við kom-
um til Quebec. Þá skoðun hafði á hendi læknir eyjarinnar, er ligg-
ur skammt undan landi. Kom hann um borð og ég held upp á
skipið, en þó sögðu aðrir að hann hefði aðeins komið að skipshlið-
inni. En það veit ég að enginn þeirra, er upp á skipið komu, lét
neitt til sín taka um heilbrigðiseftirlit. Fæði það, er við höfðum yfir
Atlantshafið, mátti heita gott og jafnvel ágætt fyrir heilbrigt fólk,
en fyrir veika ekki sem hentugast. Að sönnu var það margbreytt,
bæði jurtafæða og dýra, en þeir sem veikir voru gátu ekki notið
þess, enda voru margar tegundir þess af því tagi, að þeir sem van-
ir eru sveitafæði heima geta margir ekki fellt sig við það þótt heil-
brigðir séu. En það sem hinir veiku helzt hefðu getað notið var þá
svo lítið, að það gat varla heitið hálft eftir þörfinni, því að þótt
veikir eða heilbrigðir æsktu eftir meiru af því, er þeir helzt gátu
neytt, var þess enginn kostur, er þó tiltekið í farbréfunum að
emigrantar eigi heimtingu á því. Þeir, er notið gátu alls þess sem
fram var borið, höfðu meira en nóg. Kaffi sem veitt var með mál-
tíðum mátti heita ódrekkandi, svo var það vont, og te sömuleiðis
vont. Máltíðir voru fjórar á dag. Auk þessara föstu máltíða voru
daglega bornar ofan í skipið tunnur fullar ýmist af haframjöli eða
kexi og mátti hver éta af því eins og hann lysti.
I Granton var ekki staðið við nema á meðan upp var skipað far-
angri farþega og skoðað í hirzlurnar. Ekki var sú skoðun nákvæm,
aðeins hrifsað niður í kistur og koffort, niður með göflunum, þó
ekki ofan að botni. Ovandaðir kassar og gamlar hirzlur sem negld
ar voru aftur áttu þeir ekkert við, en væru það vandaðir kassar,
sem báru með sér að þeir væru utan af tóbaki, áfengi eða annarri
tollskyldri vöru, drógu þeir upp lokin en brutu ekki nokkra fjöl og
skoðuðu betur í þá en önnur ílát. Rúmfatapoka skeyttu þeir ekkert
um. Spurt var um hvort tóbak eða brennivín væri þar og væri því
neitað var við það látið sitja. Yfirleitt mun vera betur skoðað í þær
hirzlur sem eru vandaðar og eins ef menn eru seinir að afhenda
lyklana. Mjög vel var farið með allan farangur í Granton en öðru-
vísi var það í Quebec, þar var eins og uppskipunarmenn gerðu sér
84