Strandapósturinn - 01.06.1990, Page 28
í tilefni afmælisins samdi Hólmvíkingurinn Gunnar Þórðarson
sérstakt hátíðarlag fyrir Hólmvíkinga við texta Stefáns Gíslasonar.
Kom lagið út á hljómsnældu nokkrum dögum fyrir hátíðina.
Hátíðargestir rituðu nöfn sín í afar sérstaka gestabók, sem
Vígþór Jörundsson hannaði og smíðaði úr rekavið.
Samver hf. á Akureyri gerði 30 mín. mynd um afmælishátíðina
fyrir sjónvarpið, og var myndin sýnd í ríkissjónvarpinu seint í
ágúst. Riijuðust þar eflaust upp ljúfar minningar í hugum
margra. Fyrir jól kom síðan út tæplega tveggja tíma myndband
með öllu því efni sem Samver átti tiltækt frá hátíðarhöldunum.
Menningarmál. Um páskana frumsýndi Leikfélag Hólmavíkur
Skjaldhamra eftir Jónas Árnason, og var þetta áttunda stórverk-
efni leikfélagsins frá stofnun þess 3. maí 1981. Alls tóku 6 leikarar
þátt í sýningunni, og fóru Einar Indriðason og Ester Sigfúsdóttir
með aðalhlutverkin. Leikstjóri var Arnlín Óladóttir á Bakka í
Bjarnarfirði. Auk sýninga á Hólmavík og í næsta nágrenni, fór
leikfélagið í leikferð með Skjaldhamra um Vestfirði.
Eins og fram hefur komið tók leikfélagið einnig virkan þátt í
hátíðarhöldum í tilefni af 100 ára verslunarafmæli Hólmavíkur.
Vorið 1991 mun leikfélagið halda upp á 10 ára afrnæli sitt með
sérstakri dagskrá í gamla samkomuhúsinu á Hólmavík. Einnig er
stefnt að uppsetningu þriggja einþáttunga á útmánuðum. For-
maður Leikfélags Hólmavíkur er Jón Jónsson.
Vegagerð. Lítið var unnið í vegagerð í Strandasýslu á árinu 1990.
Þó var lokið við nýjan veg frá Brú í Hrútafirði suður að Miklagili,
og hann lagður bundnu slitlagi. Unnið var að styrkingu vegar
fyrir utan Borðeyri, og nýr vegur var lagður meðfram nýju flug-
brautinni á Hólmavík. Verktakar af Ströndum önnuðust hins
vegar miklar vegaframkvæmdir í Isafjarðardjúpi.
Byggingar. Miklar byggingarframkvæmdir voru á Hólmavík á
árinu. I byrjun júlí voru 6 kaupleiguíbúðir afhentar íbúum, og
seint um haustið hófust framkvæmdir við 2 íbúðir til viðbótar. Þar
tókst að steypa sökkul áður en vetur gekk í garð skömmu fyrir jól.
Framkvæmdum við nýja félagsheimilið á Hólmavík var haldið
áfram, og unnið þar fyrir rúmar 11 milljónir króna. Er 1. áfangi
hússins nú rúmlega fokheldur. Þá var unnið áfram við nýja stál-
26