Strandapósturinn - 01.06.2000, Qupperneq 40
ar það var frá, venti fundurinn í kross kvæði sínu, og segir svo
orðrétt í fundargerðinni:
Að þessu máli loknu bar oddvitinn (Jón Finnsson) upp þá upp-
ástungu þeirra Páls Gíslasonar á Víðidalsá og Guðjóns kaupmanns
Brynjólfssonar á Hólmavík, að æskilegt væri að koma upp húsi á
Hólmavík, sem orðið gæti notað í framtíðinni, bæði sem barnaskóli
og samkomu- eða fundahaldahús fyrir hreppinn og væri eign Hróf-
bergshrepps.
Samþykkti fundurinn þá tillögu með öllum greiddum atkvæð-
um gegn tveimur. Fundurinn hefði nú sem best getað látið hér
við sitja og e.t.v. falið hreppsnefndinni áframhaldið. En nú
hófust fundarstörfm fyrst fyrir alvöru. Það var nefnilega búið að
ákveða að byggja hús, og nokkuð langt var enn í þá tíma, að
hægt væri að taka slíkar ákvarðanir og krefjast síðan fjárframlaga
úr öllum áttum. Þessi staðreynd var fundarmönnum auðvitað
fullljós, og því byrjuðu þeir á að leita í eigin vösum. Eftir
skamma stund höfðu safnast meðal þeirra loforð fyrir 635 krón-
um. Tala þessi segir fátt, nema hún sé borin saman við einhver
önnur verðgildi, og liggur þá beinast við að miða hana við heild-
arbyggingarkostnað hússins, sem var 2.750 krónur. Þessa tölu
hef ég raunar hvergi rekist á í hreppsreikningum, en í skýrslu
einni til fræðsluyfirvalda löngu seinna skýrir Kristinn Benedikts-
son frá því, að smiðurinn hafi byggt húsið í ákvæðisvinnu fyrir
jressa upphæð „og átti að skilast í fullu standi með ofni“, einnig
hlýtur efnið að vera innifalið, því að eftir 1158 kr. endurbætur á
húsinu 1926-27 er það metið til eignar á 4000 kr. nokkur næstu
ár. Kristinn sagði ennfremur, að allir reikningar varðandi bygg-
inguna séu týndir, en tekur fram, að kostnaðurinn hafi að mestu
verið greiddur með frjálsum framlögum og ágóða af hlutaveltu,
að því frátöldu, sem ríkið kunni að hafa greitt. Ekki hefur fund-
ist stafur um hugsanlegt ríkisframlag, raunar engin leit gerð að
því. Hólmvíkingar og aðrir hreppsbúar höfðu því á einni kvöld-
stund, og algerlega fyrirvaralaust, lagt nálega fjórðung húsverðs-
ins á borðið. Ekki er þó látið við þetta sitja. Kosin er byggingar-
nefnd, skipuð hinum hæfustu mönnum, og hlutu þessir kosn-
ingu: „Verslunarstjóri, Jón Finnsson, á Hólmavík, héraðslæknir,
38