Strandapósturinn - 01.06.2000, Page 80
brást hrapallega. ísinn snéri við og kom aftur, miklu verri en
nokkru sinni áður. Hann fyllti hvern fjörð, hvern vog og hveija
vík. Þá vissi ég, að hann mundi verða hér lengi fram eftir, svo
sem raun varð.
Allar samgönguleiðir á landi og sjó lokuðust, svo útlitið var
ekki uppörvandi. Þá var farið athuga heybirgðir bænda, sem
reyndust vera af skornum skammti, svo sýnilegt var að heyþurrð
var yfirvofandi, því hagbeit var engin, og fjörubeit tók þegar af
vegna klaka í sjó fram.
Aflt fór þó betur en á horfðist, því öðru hvoru greiddist úr
ísnum á grunnleiðum, svo skip gátu brotið sér leið til hafna hér
í grennd, annað hvort að Gjögri eða Djúpuvík og fært bændum
hey og kjarnfóður. Jafnvel hingað á íngólfsfjörð, sem er afar ís-
sæll, gátu skip komizt, svo aldrei varð hér skortur.
Það var ekki fyrr en í 6. viku sumars, að siglingaleiðir hingað
á firðina máttu kallast greiðfærar. Þó var ís hér á fngólfsfirði og
Ofeigsfirði allt fram á 9. viku sumars. Ekki reyndist hægt að
sinna æðarvarpi, eða leggja fyrir sel, fyrr en á 8. viku sumars, og
nú fyrst, um miðjan júlí, er ísinn algerlega farinn.
Þegar litið er yfír þennan vonda vetur, megum við vera þakk-
lát forsjóninni fyrir hve allt hefur farið vel. Skepnurnar gengu
vel undan og lambahöld hafa verið sérlega góð. En nú, 23. júlí,
er gras lítið sprotdð og mikið kal í túnum. Eg er ekki viss um að
kalið sé hafísnum að kenna. Þó má vera að krepjur og frostrign-
ingar, sem kallaðar eru, hafi haft ill áhrif á grasrótina, en mér er
ekki grunlaust um, að þetta mikla kal í túnum sé að einhveiju
leyti af mannavöldum, en þar á ég við að nýræktin hafi ekki
fengið þann áburð sem með þurfti.
Undanfarið hefur verið einhver sú mesta vorblíða, sem ég
man eftir. Samt er vitað, að ísinn er skammt undan. Og komi
norðanátt, má búast við miklum kuldum, og vel gæti ég trúað,
að ísinn ætti eftir að koma upp að landinu í sumar.
Hafísinn hefur haft mikil áhrif á lífsafkomu fólksins, sem hér
býr, og sérstaklega hafa þeir orðið illa úti, sem að einhverju leyti
sækja lífsbjörg sína í greipar Ægis. Hér við flóann eru rækjumið.
Þangað var aðeins hægt að sækja veiði vikutíma, meðan ísinn
lónaði frá. I Steingrímsfirði og inn með Hrútafirði lokaði ísinn
78