Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.2003, Page 127

Strandapósturinn - 01.06.2003, Page 127
Sumarhátíð Sumarhátíð í Sævangi var haldin sunnudaginn 21. júlí. í kaffi- stofunni var hlaðborð allan daginn en skemmtidagskráin hófst á sláttukeppni. Þar slógu tvö lið með gamla laginu, þ.e. með orfi og ljá, en eitt liðið sló með „nýja“ laginu, með garðsláttuvél. Ekki var spurning hvor aðferðin virkaði betur, sláttuvélin var bæði há- vær, sló grasið illa og þreytti stjórnanda sinn verulega, en kepp- endur sem slógu með orfi og ljá gerðu það hljóðlátlega, hratt og vel. Eftir keppnina tóku allmargir í orfið og sýndu gamla takta. Aðrir horfðu á og lærðu listina. Girðingarstaurakast var næsta á dagskrá. Þar var keppnin lítt spennandi eftir að Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum setti heimsmet með því að kasta rúma 17 metra. Svanhildur Jónsdótt- ir frá Steinadal kastaði allra kvenna lengst. Síðan var tekið til við keppnina um Besta bóndann 2002. Sú keppni bar þó sennilega ekki nafn með rentu því meirihluti keppenda voru alls ekki bændur. Keppnin samanstóð af ullarpokahlaupi, nálaþræðingu, mysudrykkju, belgjahoppi (sem er íþrótt sem Strandamenn eru býsna lunknir í), skyráti, leit að mörkum í markaskránni og dráttarvéladekkjaveltingi. Skemmst er frá því að segja að enginn öruggur sigurvegari fékkst út úr keppninni, svo flóknar voru reglurnar. Valgeir Örn Kristjánsson og Jón Gísli Jónsson voru þó býsna nálægt því að vinna sinn riðil og Svanhildur Jónsdóttir sinn. Ahorfendur höfðu mikið gaman af. Einnig var keppt í grindahlaupi, en þar hlupu menn ákveðna vegalengd, nánar tiltekið í kringum Sævang, með fjárhúsagrind í hvorri hendi - ágætur undirbúningur undir sauðburðinn. I þeirri grein náðu Sverrir Guðbrandsson og Grétar Matthíasson bestum tíma. Síðast á dagskrá var sýningargrein, svokallað skítkast, sem vakti mikla kátínu meðal áhorfenda. Þeir fengu að taka virkan þátt í kastinu og kasta einni klessu hver. Saklaus bóndasonur, Arnar S. Jónsson frá Steinadal, var skotmarkið og er skemmst frá því að segja að hann slapp alveg við skítinn. Enginn hitti þótt færið væri stutt. Þar sannaðist að skíturinn loðir oft meira við þann sem kastar honum en þann sem skotinu er beint að. 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.