Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 12
Limone. Bærinn er lítill og þröngur en afar fallegur og einn sá
fallegasti við vatnið. Limone var alveg einangraður fram til 1930
og þar voru byggð skýli til ávaxtaræktunar. I dag eru þar mjög
góðar samgöngur, fínar búðir og góðir veitingastaðir, því þeir eru
jú alltaf kannaðir. Þá var haldið af stað yfir vatnið að öðrum bæ,
Malcesina, sem er mjög eftirsóttur af ferðamönnum. Þar var farið
með kláf upp á hæsta fjall við Gardavatn sem heitir Monti Baldo
og er 1760 metra hátt. Utsýnið þarna uppi var alveg stórfenglegt
og þeir ferðafélaganna sem fóru upp fengu sér að borða og nutu
útsýnisins. Þeir sem ekki treystu sér í kláfmn fóru á markað og
skoðuðu bæinn. Síðan var haldið heim á hótel eftir frábæran
dag.
6. dagur
Stefnan tekin á Feneyjar. Italía er mesta vínræktarland heims.
Þar búa um 60 milljónir manna. Lega landsins er sérstök að því
leyti að landið er mjög langt og nær allt frá Alpafjöllum og langt
suður í Miðjarðarhaf. Nú var framundan þriggja tíma keyrsla hjá
hópnurn eftir hraðbrautinni til Feneyja. Stoppað var á leiðinni til
þess að mannskapurinn gæti teygt úr sér. Umferðin gekk greið-
lega og um 10:40 vorum við komin á Tronketto bílastæðið þar
sem rútunni var lagt. Nú var farið í bát, strætó, að þeirra vísu og
siglt að Markúsartorgi þar sem var stoppað fyrir framan hótel
Gapriele. Borgin er engu lík með sínar 200 hallir við Canal
Grande, en þessi þekkta siglingarleið liggur tæplega 4 kílómetra
um borgina. Hópurinn gekk að hinni stórkostlegu Ponte Rialto
brú þar sem Guðlaug fann þennan fína matsölustað fýrir okkur
sem var bæði ódýr og góður. Síðan var gengið til baka að Mark-
úsartorginu og það skoðað. Ekki má gleyma ævintýrahöllinni úr
Þúsund og einni nótt sem er í austrænum stíl og er ein merkileg-
asta kirkjubygging veraldar. Þá var kornin tími til að halda heim á
leið og nú var farið með smábátum eftir síkjunum, Canal Grande,
að bílastæðinu. Það var ekki síður gaman að sjá húsin frá öðru
sjónarhorni. Þegar komið var í rútuna margtaldi Höskuldur
mannskapinn því ekki mátti gleyma neinum. Jú, ekki bar á öðru
en að allir væru með svo okkur var ekkert að vanbúnaði að halda
af stað. Allir voru ánægðir eftir velheppnaða ferð og þegar heim
10
J