Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 22
ir nokkrir vestur-íslenskir vinir til að kveðja. Sungin voru nokkur
lög sem fengu góðar undirtektir vina okkar. Haldið var af stað í
rútu kl. 11:00 áleiðis til smábæjarins Steinbach, sem er suður af
Winnipeg. I bænum var skoðað merkilegt Mennonitasafn, sem er
til minningar um líf og störf Mennonita sem komu frá Rússlandi
og settust að víða í Kanada á svipuðum tíma og Islendingar.
Mennonitar lifa einföldu lífl á því sem jörðin gefur af sér, eru
miklir friðarsinnar og neita að gegna herþjónustu, sem var megin
ástæða þess að þeir hröktust frá Rússlandi á sínum tíma. Þarna
var snæddur hádegisverður sem samanstóð af hefðbundnum
Mennonita málsverði; heimagerðu brauði, grænmetissúpu og
eplaköku með rabbarbara. Safnið, sem er í rauninni lítið þorp,
var skoðað og staldrað við ýmis gömul verkfæri, heimilistæki og
húsakostir skoðaðir. Að lokinni tveggja tíma viðdvöl var haldið af
stað og nú yfir landamærin til Bandaríkjanna eða nánar til tekið
til Norður Dakóta þar sem koma átti við á elliheimilinu Borg. A
elliheimilinu var vel tekið á móti hópnum og þar sungu kórarnir
fyrir heimilismenn bæði saman og sitt í hvoru lagi. Að því loknu
var haldið að minnismerki Káins, auk þess sem komið var að Ei-
ríksstöðum og þar skoðað minnismerki um Stephan G. Steph-
ansson skáld. I leiðinni var Víkurkirkja skoðuð en hún var byggð
af íslendingum árið 1880. Það var komið undir kvöld þegar kom-
ið var í næsta náttstað sem var í bænum Grand Fork.
Mánudaginn 19. júní var ekið til Minneapolis en þar lauk form-
lega þessari fjórðu utanlandsferð Kórs Atthagafélags Stranda-
manna. Sumir héldu beint út á flugvöll og tóku næstu vél heim en
aðrir dvöldu í borginni eitthvað lengur. Að endingu vil ég þakka
öllum þeim sem komu að skipulagningu ferðarinnar á einn eða
annan hátt, bæði hér heima og í Kanada. Kirkjukór Kópavogs
þakka ég fyrir ánægjulegt samstarf og samveru.
I tilefni af vortónleikunum og ferðinni til líanada var gerð
vönduð efnisskrá þar sem forseti Islands hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son ritar kveðju tíl frændfólks í Kanada og allra þeirra sem eiga
ættir að rekja til eyjarinnar í Atlantshafi. Kórinn færir forseta Is-
lands bestu þakkir fyrir framlagið. I efnisskránni auglýsa ýmis fyr-
irtæki vörur sínar og þjónustu og færir kórinn þeim bestu þakkir.
Auk auglýsinga prýða efnisskrána nokkrar fallegar rnyndir frá
20