Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 30
og gott slægjuland. Á Papafelli má ftnna leifar af hleðslum en þar
voru stundum borin upp hey er heyjað var í Illaflóa. Heyið var svo
flutt á sleðum að vetrarlagi heim á bæi. Enn sunnar er svo Klauf-
dalur í Bæjarlandi en hann gengur til austurs úr Bakkadal sunnan
við Skógu. Þar voru einnig taldar góðar slægjur meðan heyjað var
á engjum.
Til suðurs lokar Reyðarvatnshæð dalnum. Hún er á vatnaskil-
um og skilur sýslur og lönd á milli Bæjar í Bæjarhreppi og Sól-
heima í Laxárdal. Norðan við hæðina í landi Bæjar er allstórt
stöðuvatn Reyðarvatn, í því er fallegur fiskur og oft ágæt silungs-
veiði. Þar sveigir Bakkadalur til suðvesturs og endar við Snjóf-
annaás sem er langur mikill hryggur á sýslumerkjum Stranda og
Dalasýslna vestan Bakkafells og nær langt suður. Þar efst í dalnum
er lítið stöðuvatn sem heitir Bakkárvatn, þar eru upptök Bakka-
ár.
Segja má að Bakkadalur sé allur meira og minna grasi vafmn.
Þar eru sumarhagar fyrir búfé afburða góðir enda sækir fénaður
í dalinn sem er einnig afar skjólsæll. I sýslulýsingum Strandasýslu
frá 1744-49 eftir Einar Magnússon sýslumann er þá bjó í Bæ í Bæj-
arhreppi, segir svo um landkosti Bakkadals (lauslega snarað úr
dönsku). „Að svo kjarngóð og kostarík beitilönd séu í dalnum að
veturgamlir sauðir er gangi þar sumarlangt þyngist um 10-11
pund og tveggja vetra sauðir um 15 pund, þriggja vetra um 20
pund.“
Það er dálítið sérstakt að fara fornar slóðir um þennan dal að
sumarlagi þegar allur gróður er í sem mestum blóma. Gróskan er
svo mikil, dalurinn svo friðsæll, ekki sést til neinna bæja nema
eyðibýlanna sem nefnd hafa verið. Ekki sést heldur til sjávar bara
upp í hlíðarnar og heiðan himininn. Maður verður eins og einn í
heiminum svo nátengdur náttúrunni, teygar ilminn úr gróðr-
inum, hlustar á niðinn í ánni, kvakið í mófuglinum og einstaka
jarm í kindum á beit að gæða sér á lífgrösum landsins. En það
getur orðið mikið vetraríki í Bakkadal og snjóalög ærin ef þannig
viðrar. Sérstaklega í dalnum vestanverðum, suður af Bakkafelli
leggur snjó í gríðarlegar þiljur þá vetur sem snjóþungt er. En þar
er líka að gróa jörð fram eftir sumri.
28