Strandapósturinn - 01.10.2007, Page 100
áður getur til Vínlands með Leifi, sem Tyrkir átti mikinn þátt í að
fóstra allt frá barnæsku, eins og segir í Grænlendingasögu, og
finnur þá vínberin eins og sagan greinir. Af framansögðu er ljóst
að Tyrkir hafði verið með Islendingum á Islandi og Grænlandi í
um 30 ár áður en hann fór til Vínlands með Leifi og er því þá
væntanlega orðinn fullgildur Islendingur í augum Leifs og sam-
tímamanna hans.
Vínland
Grænlendingasaga segir ennfremur að Leifur sendi förunauta
sína í könnunarleiðangur þegar komið var til Vínlands, hvar sem
það nú var? Um það deila menn og óvíst er hvort það finnst nokk-
urn tíma. Sumir telja jafnvel að það hafi verið á Nýfundnalandi,
en þar reisti Leifur Eiríksson sér bústað austan Fagureyjarsunds
nyrst á Nýfundnalandi, þar sem rústir af byggingum frá því kring-
um 1000, sem Ingstad hjónin norsku fundu og grófu upp fyrir
fáum áratugum í L’Anse aux Meadows. Þessi merki fundur gefur
ótvírætt til kynna að einmitt þar hafi Leifur og samferðamenn
hans dvalist a.m.k. vetrarlangt. Þar með var komin staðfesting
jafnvel sönnun á frásögnum Vínlandssagna um ferðir norrænna
rnanna til Vesturheims 500 árum á undan Kólumbusi. Þetta gerir
Grænlendingasögu auðvitað trúverðugri heimild en ella.
Páll Bergþórsson veðurfræðingur telur hins vegar líklegt að
Vínland hafi verið við Lárensfljót í grennd við núverandi Québec-
borg. Þetta virðist vera líklegri staður en Nýfundnaland, vegna
legu sinnar og veðurfars. Páll sýnir fram á með gildum rökum
m.a. þeim að loftslag fyrir 1000 árum hafi verið svipað á þessum
svæðum og það er í dag og því sé vel líklegt að vínviður hafi vaxið
við Lárensflóa/Lárensfljót, en nánast útilokað að hann hafi vaxið
og borið þroskuð vínber á Nýfundnalandi. Þess má geta að Qué-
becborg er á sömu breiddargráðu og Dijon í Frakklandi og Búda-
pest í Ungverjalandi eða á 47. gráðu norður.
Þó Páll sé „bara veðurfræðingur“, en ekki sagnfræðingur og
kannski einmitt þess vegna er kenning hans býsna trúverðug,
enda byggir hann hugmyndir sínar m.a. á veðurfræðilegum og
siglingafræðilegum forsendum. Þess má geta að vínviður vex á
98