Morgunblaðið - 03.09.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.09.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað því að ógilda ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings ytra um að sam- þykkja deiliskipulag fyrir Leyni 2 og 3 í Landsveit. Um er að ræða umdeildan landskika þar sem Malasíumaðurinn Loo Eng Wah hyggst koma á fót ferðaþjónustu. Nágrannar Loo hafa sett sig upp á móti áformum hans eins og Morgunblaðið hefur greint frá. Í kærunni kveðast þeir hafa fjárfest í eignum og innviðum á svæðinu en með fyrirhuguðum skipulags- áformum sé hagsmunum þeirra fórnað í þágu tiltekins aðila. Þá átelja þeir meðferð sveitarfé- lagsins og telja að ekki hafi verið gætt að stöðu svæðisins sem vatnsverndarsvæðis. Þessu hafnaði sveitarfélagið í svörum til úrskurðarnefndarinnar og sagði að fyrirhugað væri að hlúa að þeim lágstemmda takti sem einkenndi svæðið. Loo sagði í svörum sínum að breyting á land- notkun að Leyni 2 og 3 væri í samræmi við raunverulega notkun landsins undanfarinn áratug. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál tengd uppbyggingunni að Leyni 2 og 3 kemur fyrir úrskurð- arnefnd umhverfis- og auðlinda- mála. Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu felldi nefndin síð- asta vor úr gildi ákvörðun Skipu- lagsstofnunar um að framkvæmdir þar skyldu ekki háðar mati á um- hverfisáhrifum. Skipulagsstofnun mun því ákvarða á ný hvort þörf sé á umhverfismati á svæðinu. Fyrr verður ekki gefið út fram- kvæmdaleyfi. Í fréttum Morgunblaðsins hefur komið fram að Loo hyggst reisa allt að 200 fermetra þjónustuhús fyrir tjaldsvæði að Leyni 2 og 3, allt að 800 fermetra byggingu fyr- ir veitingastað, verslun, móttöku og fleira og allt að 45 gestahús á einni hæð, sum þeirra 60 fermetra að stærð og kúluhús við hvert og eitt. Áfangasigur hjá Loo er kröfu nágranna var hafnað - Deiliskipulag fyrir Leyni 2 og 3 í Landsveit skal standa Morgunblaðið/Hari Stórhuga Malasíumaðurinn Loo við kúluhús sín og hjólhýsi að Leyni 2 og 3. Þrjár bandarískar sprengjuvélar af gerðinni Northrop Grumman B-2 hafa í um tvær vikur haft aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli þaðan sem þær fljúga æfinga- leiðangra út á Atlantshaf. Vélarnar voru enn við æfingar í gær og liggja engar upplýsingar fyrir um hvenær þeim verður flogið burtu aftur. Aldr- ei fyrr hafa sprengjuflugvélar af þessari gerð haft svo langa viðkomu hér á landi, en B-2 lenti fyrst í Kefla- vík árið 2019 og stoppaði stutt við. Guttormur Þorsteinsson, formað- ur Samtaka hernaðarandstæðinga, segir viðveru vélanna mikið áhyggjuefni. „Við sem aðrir vitum af þeim framkvæmdum sem unnið er að á Keflavíkurflugvelli og snúa að kafbátaleitarvélum. Hvort unnið sé að því leynt að gera Keflavíkurflug- völl að einhvers konar miðstöð fyrir sprengjuflugvélar vitum við ekki. Samtökin vinna nú að sér að afla frekari upplýsinga um þetta mál,“ segir Guttormur við Morgunblaðið. Bendir hann á að flotaforingjar hafi með reglubundnum hætti lýst yfir áhuga á að auka umsvif Banda- ríkjanna enn frekar hér við land. „Mikið af þeirri orðræðu sem á sér stað vestra miðar að því að koma aftur með herstöðina hingað. Sú þróun er eitthvað sem við höfum reynt að vekja athygli á,“ segir hann. Þá segir Guttormur ljóst að íslenskir stjórnmálaflokkar hafi margir hverjir afar takmarkaðan áhuga og þekkingu á málefnum norðurslóða. Slíkt verði að breytast. „Utanríkismálum er sjaldan hleypt inn í opinbera umræðu. Það er eins og markvisst sé verið að drepa niður umræðu um öryggis- mál,“ segir hann. khj@mbl.is Ljósmynd/Bandaríski flugherinn Vígbúnaður Myndin er tekin í Keflavík og sýnir kjarnasprengjuvélarnar. Löng viðvera B-2 vekur spurningar Andrés Magnússon andres@mbl.is „Við höfnum þessum skatthækkun- aráformum alfarið,“ segir Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, um stóreigna- skattshugmyndir Samfylkingarinnar og segir þau ganga gegn stjórnar- skrá. „Skattar á Íslandi eru mjög háir og markmið okkar á að vera að lækka skatta. Þessi áform fara bæði gegn jafnræðisreglunni og eignarréttar- ákvæði stjórnarskrárinnar, og það á mjög óljósum og veikum grunni.“ Tillögur Samfylkingarinnar um að „innleiða á ný stóreignaskatt á hreina eign umfram 200 milljónir“ hafa vakið athygli, en Vinstri græn hafa tekið undir þau sjónarmið. Stóreignaskattur í Hæstarétti Hugmyndir af þessu tagi eru ekki ókunnar Samfylkingunni og Vinstri grænum, því ríkisstjórn þeirra flokka árin 2009-2013 lagði bæði á auðlegð- arskatt og viðbótarauðlegðarskatt. Um þá var deilt og skotið til Hæsta- réttar (í máli nr. 726/2013) hvort þeir stæðust eignarréttarákvæði og jafn- ræðisreglu stjórnarskrár. Þar töldu stefnendur annars vegar að skattarnir væru svo íþyngjandi (4,75% og 2,75% uppsafnað til þriggja ára) að um eignaupptöku væri að ræða, en einnig væri þeim beint að svo afmörkuðum hópi að skattarnir væru ekki almennir, beindust gegn fámennum hópi og gengju því gegn ákvæði um jafnræði borgaranna fyrir lögum. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að þessi skatt- heimta væri lögleg, en tók fram að þar væri sérstaklega horft „til þess við hvaða aðstæður lögin voru sett og hvert hafi verið markmið þeirra“. Rétturinn benti á að „… á þeim tíma var við að etja einstæðan vanda í rík- isfjármálum“ eftir bankahrun, eftir að tekjustofnar ríkisins höfðu hrunið, ríkisskuldir snarhækkað og ríkis- reksturinn í megnum vandræðum. Fallist var á að skatthlutfallið væri hátt, en að teknu tilliti til allra að- stæðna, sérstaklega þó þess að skatt- arnir væru tímabundnir til þriggja ára, þá brytu þeir ekki í bága við stjórnarskrárákvæði um eignarrétt eða jafnræði. Engu gleymt „Þessi hæstaréttardómur er ein- staklega skýr og löggjafinn getur ekki horft fram hjá því, hvað sem hug- myndafræðingum Samfylkingarinnar kann að finnast,“ segir Teitur Björn. „Á þessari stóreignaskattshugmynd eru engin tímamörk og það eru engar þær forsendur í ríkisfjármálum sem Hæstiréttur nefndi sem skilyrði fyrir því að auðlegðarskatturinn stæðist stjórnarskrárákvæði um eignarrétt og jafnræði borgaranna.“ Hann telur tillögu Samfylkingar- innar ganga í berhögg við skilyrði og leiðbeiningu Hæstaréttar. Engin leið er að halda því fram að ríkissjóður búi við viðlíka aðstæður og fyrstu árin eftir bankahrun og ekkert í málflutn- ingi frambjóðenda Samfylkingarinn- ar eða Vinstri grænna bendir til þess að slíkur stóreignaskattur eigi sér sérstakar og knýjandi ástæður, hvað þá að hann eigi að vera tímabundinn. „Það er rétt að almenningur átti sig á því í aðdraganda kosninga, að þó að vinstrimenn hafi engu gleymt og ekk- ert lært af fyrri stóreignasköttum, þá myndu slíkar hugmyndir hækka skatta hjá þúsundum manns, sem engum öðrum myndi detta í hug að kalla stóreignafólk.“ Teitur segir blasa við að þó ekki væri nema af þeim ástæðum yrði lög- gjafinn að fara mjög gætilega í sak- irnar við álagningu stóreignaskatts. Þar yrði að gæta þess að álagning væri ekki óhófleg, að skatturinn væri nægilega almennur til þess að stand- ast jafnræðisregluna en þó ekki svo almennur að hann missti marks sem stóreignaskattur. Við bætast svo auð- vitað pólitísk sjónarmið um að óráð- legt er að skatturinn hitti of marga fyrir í hópi kjósenda, en eins að skatt- urinn skili nægilega miklu, í pening- um mælt eða öðrum markmiðum, til að hann svari kostnaði. Efar að stóreignaskatt- ur standist stjórnarskrá - Leiðbeining í dómi Hæstaréttar um auðlegðarskatt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skattstofn Auk fasteigna eru lífeyrisréttindi og verðbréf meðal helstu eigna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.