Morgunblaðið - 03.09.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021
Fylltu á flöskuna,
ekki á ruslafötuna.
Áfyllingarnar okkar nota að minnsta kosti
77% minna plast en venjulegar umbúðir.
K g 4 2 7 70 w o anrin lan -1 | s. 57 - 40 | ww.l ccit e.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Erlendu listamennirnir sem við höf-
um þurft að afbóka vegna þessarar
ákvörðunar furða sig allir á þessu og
skilja ekki þessar takmarkanir hér.
Þeir eru flestir farnir að ferðast um og
halda tónleika. Það virðast allir trúa
því að hægt sé að halda hátíð sem
Airwaves með
öruggum hætti,
nema yfirvöld á
Íslandi,“ segir Ís-
leifur B. Þórhalls-
son, tónleikahald-
ari hjá Senu live.
Tilkynnt var í
gær að tónlistar-
hátíðinni Iceland
Airwaves, sem
halda átti í byrjun
nóvember, hefði
verið frestað um eitt ár. Þetta er ann-
að árið í röð sem skipuleggjendur
þurfa að fresta hátíðinni vegna sam-
komutakmarkana af völdum kórónu-
veirunnar. Ísleifur segir í samtali við
Morgunblaðið að í fyrra hafi verið full-
ur skilningur á því að ómögulegt hafi
verið að halda hátíðina. Annað sé uppi
á teningnum nú.
„Það er allt að opnast í löndunum í
kringum okkur, Bandaríkin eru opin,
England er opið og það á að létta öll-
um hömlum í Danmörku eftir viku.
Þar gefa stjórnvöld það út að sam-
félaginu standi ekki lengur ógn af
Covid. Hver er munurinn á okkur og
öllum þessum löndum? Við erum með
hæsta bólusetningarhlutfall í heimi, af
hverju er ekki hægt að treysta heilsu-
hraustu fólki til að fara á stærri tón-
listarviðburði? Við erum ekki að reyna
selja tónleikamiða til viðkvæmra hópa,
eða fólks með undirliggjandi sjúk-
dóma. Það er ekkert mál að krefja fólk
um bólusetningarskírteini. Af hverju
þarf meiri hömlur ef fólk getur sýnt
fram á bólusetningu og framvísað
skyndiprófi, þegar sýnt er að þetta
dugar erlendis og vel það?“ segir Ís-
leifur.
Nýverið ákváðu yfirvöld að leyfa
500 manna samkomur með ákveðnum
skilyrðum. Ísleifur segir að sú ákvörð-
un hafi vissulega verið skref í rétta átt.
Hún gagnist leikhúsunum og Hörpu,
nú sé unnt að halda sitjandi tónleika ef
gestir bera grímur þar til þeir setjast í
sæti, þeir mega ekki snúa andspænis
öðrum og svo framvegis. Gestir þurfa
einnig að fara í skyndipróf en allt er
enn óljóst um framkvæmd þeirra og
aðgengi tónleikagesta að þeim. Áfram
gilda hins vegar 200 manna takmörk á
aðra viðburði.
„Fólk má fljúga út til Danmerkur
eða Bretlands um helgar og fara á 60
þúsund manna fótboltaleik eða 100
þúsund manna tónlistarhátíð en það er
ekki hægt að halda Airwaves í mið-
borg Reykjavíkur. Finnst fólki mikið
vit í þeirri stöðu?“ spyr tónleikahald-
arinn.
„Ég held að ráðherrar þurfi nú að
svara til um grundvallaratriði málsins.
Af hverju eru hömlur hér? Hver er til-
gangurinn og hvað á þetta að vara
lengi? Átta þau sig á fórnarkostnað-
inum? Hvað er planið? Hér virðist
ekki vera nein langtímastefna. Það eru
gefnar út reglugerðir með nokkura
daga fyrirvara sem gilda í þrjár vikur
og því er ekki hægt að gera nein plön.
Eftir hvaða upplýsingum er verið að
bíða? Upplifunin núna er að vanda-
málið sé ekki lengur vírusinn heldur
yfirvöld og það er vond tilfinning.“
Iceland Airwaves var fyrst haldin
árið 1998 og hefur frá upphafi verið
einskonar uppskeruhátíð tónlistar-
bransans hér á landi. Tónlistarfólk
leggur mikið upp úr framkomu sinni á
hátíðinni enda getur hún opnað tæki-
færi úti í heimi. Ísleifur viðurkennir
fúslega að það sé áhyggjuefni fyrir
tónlistarheiminn að fresta þurfi hátíð-
inni. Sena tók við rekstri Airwaves ár-
ið 2018 og náði því að halda hana tvisv-
ar áður en kórónuveiran setti strik í
reikninginn.
„Það er ekki sjálfgefið að Airwaves
lifi af í núverandi mynd. Við töldum
okkur vera búin að ná tökum á rekstri
hátíðarinnar og það er ótrúlega niður-
drepandi að öll þessi vinna sé að fara í
súginn.“
Airwaves frestað annað árið í röð
- Skipuleggjendur ósáttir við samkomutakmarkanir hér - Furða sig á stefnuleysi stjórnvalda
Morgunblaðið/Eggert
Airwaves Hljómsveitin Hjaltalín er ein þeirra sveita sem notið hafa vinsælda á hátíðinni á liðnum árum.
Ísleifur
Þórhallsson
Nýr og endurbættur Reykjavegur
í Bláskógabyggð var opnaður
formlega í gær. Vegurinn styttir
leiðina milli Laugarvatns og Reyk-
holts um 4 km og leysir af hólmi
gamlan malarveg. Einnig var
byggð tvíbreið brú yfir ána Full-
sæl.
„Markmiðið með nýjum vegi er
að stytta vegalengdir og efla sam-
göngur fyrir íbúa og ferðafólk í
uppsveitum Árnessýslu, en ekki
síður að auka umferðaröryggi með
því að leggja veg með bundnu slit-
lagi sem uppfyllir nútíma hönn-
unar- og öryggiskröfur. Þá er nýj-
um vegi ætlað að bæta aðgengi
ferðamanna og sumarhúsagesta að
vinsælum áningar- og ferða-
mannastöðum á svæðinu,“ er haft
eftir Sigurði Inga Jóhannssyni,
samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra, í tilkynningu.
Nýi vegurinn er um 8 km langur
og liggur á milli Biskupstungna-
brautar rétt neðan Reykholts og
Laugarvatnsvegar ofan Brúarár.
Stefnt er að því að leggja reiðveg
meðfram veginum í vetur.
Opnun Ella Sóley Grétarsdóttir að-
stoðaði Bergþóru Þorkelsdóttur,
forstjóra Vegagerðarinnar, og Sig-
urð Inga Jóhannsson við opnunina.
Reykjaveg-
ur endur-
nýjaður
- Styttir leið milli Laug-
arvatns og Reykholts