Morgunblaðið - 03.09.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 03.09.2021, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2021 » Bassaleikarinn Þorgrímur „Toggi“ Jónsson hélt útgáfu- tónleika á Jazzhátíð Reykjavík- ur á þriðjudag vegna hljómplötu sinnar Haga. Með Þorgrími léku á tónleikunum þeir Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, Magnús Trygvason Eliassen á trommur og Tómas Jónsson á píanó og hljómborð. Þorgrímur Jónsson hélt útgáfutónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur Morgunblaðið/Eggert Gaman Þorgímur á kontrabassanum og greinilegt að hann naut þess að flytja lög af nýju plötunni. Fingrafimur Rögnvaldur fór fimum fingrum um gítarstrengina. Flottur Hljómborðs- og píanóleikarinn Tómas Jónsson í bleiku ljósi. Innlinfun Einbeitingin leyndi sér ekki í svip flytjenda, eins og sjá má. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ritþing um rithöfundinn, ljóðskáldið og leikskáldið Braga Ólafsson verður haldið í Borgarbókasafninu í Gerðu- bergi á morgun, laugardag, frá kl. 14 til 16.30 og ber það yfirskriftina Stefnumót við Braga Ólafsson - „Á horni Bayswater Road og Lækj- argötu“. Hafa ritþing verið haldin þar í húsi allt frá árinu 1999 og geng- ur ritþingið þannig fyrir sig að höf- undur svarar spurningum stjórn- anda og spyrla, leikin verður lif- andi tónlist sem tengist höfundi og lesið verður upp úr verkum hans. Spyrlar á rit- þinginu á morgun verða Kristín Svava Tóm- asdóttir, sagn- fræðingur og skáld, og Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og blaðamaður, og verður ritþingið brotið upp með uppákomum í anda höfundarins, að því er segir í tilkynn- ingu. Leikkonan Maríanna Clara Lúth- ersdóttir mun flytja ljóð, Eggert Þorleifsson leikari fer með brot úr útvarpsverki Braga, Gestabókinni, og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleik- ari mun flytja frumsamið verk inn- blásið af skáldskap Braga. Þá verður áður óbirtum texta eftir Braga dreift ókeypis á ritþinginu. Ritþingin eru hljóðrituð og gefin út rafrænt á heimasíðu bókasafnsins og þurfa þeir sem komast ekki því ekki að ör- vænta. Áhersla á höfundarverkið Stjórnandi þingsins er Guðrún Lára Pétursdóttir bókmenntafræð- ingur og er hún spurð að því hvers vegna hún hafi verið fengin til að stjórna þinginu. „Ég hef haft mikinn áhuga á verkum Braga og skrifaði mastersritgerðina mína um tvær bækur eftir hann, Hvíldardaga og Samkvæmisleiki. Ætli það séu ekki þau tengsl?“ svarar Guðrún en Bragi hefur gefið út margar skáldsögur, ljóðasöfn, smásögur og leikrit og því hægt að nálgast hann frá ólíkum hlið- um. Guðrún er spurð að því hver áherslan verði á ritþinginu. „Hún er í rauninni á höfundarverkið og við ætl- um að reyna að fá fram hans fag- urfræði, hans sýn á veruleikann og hverju hann er að miðla í gegnum sín verk. Við ætlum að tæpa á – og von- andi gengur það eftir – ljóðum og smásögum og leikritum en skáldsög- urnar verða kannski fókuspunktur- inn og við gerum ráð fyrir að þær taki mesta tímann. En umfram allt er hugmyndin að reyna að taka þetta saman, skoða hvað einkennir verk hans og reyna að fá hann til að segja okkur hvað hann er að hugsa,“ svar- ar Guðrún. Ótrúlega skemmtilegar –Þú skrifaðir meistararitgerð um tvær bækur eftir Braga, hvers vegna varð hann fyrir valinu og þessar til- teknu bækur? „Bara af því mér finnst þær svo ótrúlega skemmtilegar. Stundum er sagt að maður eigi ekki að velja höf- unda sem maður elskar til að skrifa um því þá skorti mann alla gagnrýni en ég bara gat ekki hugsað mér betra og skemmtilegra efni að skrifa um. Það er svo ótrúlega margt heillandi í þessum bókum,“ segir Guðrún og nefnir að í skrifum Braga séu undir niðri alltaf spurningar um hvernig saga sé sögð, spurningar um bók- menntirnar sjálfar. Hún segir bækur Braga líka mjög persónulegar á einhvern sérstakan hátt, lesandi kynnist mjög náið sögu- persónum. „Maður fær svolítið ósíað hugsanaflæði persóna og það getur orðið mjög náið á mjög sérstakan hátt,“ bendir Guðrún á. Samofinn söguheimur Guðrún segir margar af bókum Braga tengjast hver annarri og það sé mjög sérstakt. Þar birtist sam- ofinn söguheimur. „Hann er að stinga sér niður í risastórt persónu- gallerí og það eru að dúkka upp aftur sömu persónur í bókunum,“ segir Guðrún og að persóna úr einni eða tveimur bókum hafi meira að segja dúkkað upp í útvarpsleikriti. „Þetta er náttúrlega á einhvern hátt einstakt og okkur langar svolítið til að teikna þennan söguheim upp á þessu þingi og fara ofan í þessi tengsl og þennan stóra veruleika sem hann er búinn að búa til þarna. Ég vona að við getum fengið eitthvað upp úr honum um hann og hvort hann eigi eftir að segja sögur af einhverjum úr þessum heimi,“ segir Guðrún. Hlakkar brjálæðislega til Guðrún er spurð að því hvort hún hafi áður stjórnað ritþingi af þessu tagi og segist hún ekki hafa gert það. Hlakkar hún til þess eða er hún kvíð- in? „Ég hlakka alveg brjálæðislega til,“ svarar Guðrún létt í bragði og nefnir að margoft sé búið að fresta þinginu, sem átti upphaflega að halda fyrir einu og hálfu ári, vegna kófsins. „Við erum bara ótrúlega spennt og mér finnst við búin að setja saman áhugaverða dagskrá sem ég vona að höfði bæði til þeirra sem þekkja verk Braga og líka annarra.“ Enginn aðgangseyrir er að þinginu og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en skráning fer fram á slóðinni borgarbokasafn.is/vidburd- ir/bokmenntir/ritthing-stefnumot- vid-braga-olafsson. Borgarbókasafn- ið býður til móttöku að ritþingi loknu. Morgunblaðið/Einar Falur Skáldið Bragi Ólafsson á vinnustofu sinni við Vesturgötu árið 1991. Guðrún Lára Pétursdóttir Hvað er Bragi að hugsa? - Ritþing um Braga Ólafsson haldið í Gerðubergi - „Það er svo ótrúlega margt heillandi í þessum bókum,“ segir stjórnandi þingsins, Guðrún Lára Pétursdóttir Nýjasta plata Víkings Heiðars Ólafssonar, þar sem hann leikur verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og samtímamenn hans og ber titilinn Mozart and Contemp- oraries, kemur úr í dag hjá út- gáfurisa klassískrar tónlistar, Deutsche Grammophon. Víkingur setur níu af styttri verkum Moz- arts í áhugavert samhengi þegar hann stillir þeim upp við hlið verka eftir Baldassare Galuppi, Carl Philipp Emmanuel Bach, Domenico Cimarosa og Joseph Haydn. Umsagna um plötuna er beðið með eftirvæntingu og hafa ein- staka verið birtar nú þegar. Fiona Maddocks hjá The Guardian lýsir hrifningu sinni af plötunni og seg- ir hana vera í sama gæðaflokki og fyrri verk Víkings. David McDade, gagnrýnandi hjá MusicWeb International, segist munu verða hlessa ef plata Víkings muni ekki þykja einn af hápunktum ársins í píanóheiminum. Hann segir Vík- ing sýna andstæðu meðalmennsk- unnar og að þessi nýja plata sýni vel hvaða hæfileikum hann sé gæddur. Hæfileikar Gagnrýnandi The Guardian er ánægður með nýút- komna hlómplötu Víkings. Ný plata Víkings komin út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.