Morgunblaðið - 11.11.2021, Page 6
Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSH með Covid-19 frá áramótum
150
125
100
75
50
25
0
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv.
178 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
223 eru í
skimunarsóttkví
1.353 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.130 einstaklingar
eru í sóttkví
18 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af fjórir á gjörgæslu
178
154
32
18
137
14.935 smit hafa verið stað-
fest, 509 innlagnir á
sjúkrahús, þar af 90 á gjörgæslu
1,16 milljón sýni hafa
verið tekin
34 einstaklingar eru látnir,
þar af 80% 70 ára og eldri
Heildartölur frá 28. febrúar 2020
Innanlandssýni 60%
Landamærasýni 1
Landamærasýni 2
89% landsmanna 12 ára
og eldri eru fullbólusettir
283.301 einstaklingur
hefur fengið
að minnsta kosti einn skammt
Heimild: LSH og covid.is kl. 13.00 í gær
Staðfest smit 7 daga meðaltal
Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSH
með staðfest Covid-19 smit
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er óhætt að segja að staðan á
spítalanum er þung. Álag á bráða-
móttöku er mikið og flæði sjúklinga
um þjónustuna hjá okkur er hægt,“
segir Már Kristjánsson, yfirlæknir
smitsjúkdómadeildar Landspítal-
ans.
Metfjöldi kórónuveirusmita
greindist innanlands í fyrradag, 178
talsins. Áður höfðu mest greinst 168
smit innanlands. Af þeim sem
greindust smitaðir voru 87 í sóttkví
við greiningu, 72 voru óbólusettir og
bólusetning var hafin hjá tveimur.
Fimmtán smit greindust á landa-
mærunum. Átján voru á sjúkrahúsi
af völdum kórónuveirunnar í gær,
þar af fjórir á gjörgæslu. Þá voru
1.157 í einangrun og 2.410 í sóttkví.
Í tilkynningu frá farsóttanefnd og
viðbragðsstjórn
Landspítala í gær
var lýst þungum
áhyggjum af út-
breiðslu smita
víða um land.
Már segir í sam-
tali við Morgun-
blaðið að auk
fjölda smita sem
greinst hafi und-
anfarið séu fleiri
áhyggjuefni sem glíma þarf við. Þar
með talið er að smit kom upp á geð-
deild spítalans og starfsmenn hafa
þurft að fara í sóttkví í kjölfarið. Þá
var sjúklingur fluttur frá Norðaust-
urlandi og lagður inn á spítalann.
„Það kann að koma til fleiri flutn-
inga. Þetta er dálítið snúin staða,“
segir Már.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum hefur verið brugð-
ist vel við óskum um liðsinni við út-
hringingar, meðal annars af hópi
hjúkrunarfræðinga á Akureyri. „Við
höfum í raun sent út ákall héðan frá
spítalanum til bæði lækna og hjúkr-
unarfólks um að skrá sig í bakvarða-
sveitina og koma til aðstoðar,“ segir
Már.
Hann kveðst óttast að ástandið
lagist ekki alveg á næstunni. „Um-
fang smita í samfélaginu er greini-
lega miklu meira en maður óttaðist.
Ég held að við munum þurfa að bíta
úr nálinni með þetta og smit verði
150-200 á dag næstu daga áður en
og ef þessar aðgerðir sem nú tóku
gildi hafa áhrif. Þetta verður mjög
þungt fyrir kerfið okkar.“
Samskipti verði rafræn
Yfirlæknirinn segir að reynt verði
að bregðast við stöðunni með því að
einfalda boðleiðir og reyna að koma í
veg fyrir innlagnir á spítalann. „Það
er mjög tímafrekt að hringja í hvern
og einn og það hefur sýnt sig að það
er umfram getu okkur. Því ætlum
við að reyna að haga samskiptum
sem mest á rafrænan hátt til að gera
þau skilvirkari. Hins vegar ætlum
við að reyna að flokka einstaklinga,
einkum og sér í lagi þá fullorðnu, og
notast við snemmíhlutun með það að
markmiði að koma í veg fyrir inn-
lagnir,“ segir hann og bætir við að
sú flokkun snúi að fólki með tiltekna
undirliggjandi sjúkdóma, á tiltekn-
um aldri, einstaklinga sem eru
óbólusettir eða eru á lyfjum sem
gera ónæmisviðbrögð daprari en
ætla má.
„Við erum að stilla upp áhættu-
greini núna, við ætlum að setja upp
algóriþma til að finna þetta fólk. Þá
ætlum við að mæla það og eftir at-
vikum gefa því mótefni.“
Samskipti verði rafræn
og snemmíhlutun beitt
- Þung staða á Landspítalanum - Nýjum aðferðum beitt til að ráða við álagið
Már
Kristjánsson
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
MEÐ DINNU OG HELGA
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU 2022
Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót!
Við bjóðum beint flug vikulega til Ítalíu, þar sem
farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum
skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna.
Kláfur tengir skíðasvæðin Pinzolo og Madonna,
svo auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin.
Dinna og Helgi hafa mikla reynslu af skíðaferðum
og ævintýrum enda voru þau ung gefin saman í
skíðaskála í Bláfjöllum.
Innifalið, flug, gisting, flutningur á skíðabúnaði,
íslensk fararstjórn og innritaður farangur
VERÐ FRÁ:117.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn í tvíbýli með hálfu fæði
SKÍÐI
2022PINZOLO EÐAMADONNA
ÍSLENSK
FARARSTJÓRN OG
FLUTNINGUR Á
SKÍÐABÚNAÐI
INNIFALIÐ Í VERÐI
Frá í maí sl. hafa um 5.500 manns
komið til rannsóknarstofunnar Sam-
eindar í Reykjavík í mælingu á mót-
efnum gegn SARS-CoV-2,
broddpróteini veirunnar sem veldur
Covid-19. Ekki er þó vitað nákvæm-
lega hvaða magn mótefna veitir
örugga vörn.
„Vísindamenn eru sammála um
að þeim mun meira sem magn mót-
efna er því betri er vörnin. Einnig
má ætla að bólusetning hafi ekki
tekist eins og skyldi ef engin mót-
efni mælast,“ segir Sturla Ar-
inbjarnarson hjá Sameind.
Þau próf sem mest eru notuð í dag
mæla samtímis mótefni af gerðinni
IgA, IgM, og IgG. Frumniðurstöður
rannsókna hafa sýnt að eftir bólu-
setningu gegn SARS-CoV-2 veir-
unni ná sérhæfðar frumur að mynda
hlutleysandi IgA-mótefni í slímhúð í
nefkoki sem kemur í veg fyrir að
veiran nái þar festu.
„Gallinn er sá að þessi mótefni eru
skammlíf og styrkur þeirra minnkar
um helming á þremur til fjórum
mánuðum. Að þeim tíma liðnum eru
það IgG-mótefnin sem verja okkur
en þau koma ekki í veg fyrir ein-
kennalausa smitbera,“ segir Sturla.
Styrkur IgG-mótefnis lækkar um
helming á 3-4 mánuðum tiltekur
Sturla sem hvetur fólk almennt til
að mæta í þriðju bólusetninguna
gegn Covid-19.
Af þeim 5.500 manna hópi sem
hefur komið til Sameindar í mæl-
ingu hefur aðeins um 2% ekki reynst
með nein mótefni gegn kórónuveir-
unni; oftast fólk á ónæmisbælandi
lyfjum.
„Ég ráðlegg fólk sem mælist með
lág gildi mótefna að gæta ýtrustu
varúðar fram yfir þriðju bólusetn-
ingu,“ segir Sturla. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vísindi Sturla Orri Arinbjarnarson
læknir og stjórnandi Sameindar.
5.500 mót-
efnamældir
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, segir
að reglur um leigubílaleyfi hér á
landi séu ekki í samræmi við EES-
samninginn, sem Ísland á aðild að.
Í tilkynningu frá stofnuninni
sem birtist á vef hennar í gær seg-
ir að núverandi fyrirkomulag er
snýr að leyfisveitingu fyrir leigu-
bílastarfsemi sé samkeppnisletj-
andi og takmarkandi fyrir nýsköp-
un, sem aftur leiði til hærra verðs
fyrir neytendur.
Í rökstuddu áliti sínu kemst
ESA að þeirri niðurstöðu að lög-
gjöfin sem um ræðir feli í sér
óréttmæta takmörkun á staðfestu-
rétti samkvæmt 31. grein EES-
samningsins.
Ríkið ekki hreyft mótmælum
„Takmarkanir á staðfesturétti
eru einungis lögmætar þegar þær
eru réttlætanlegar vegna brýnna
almannahagsmuna. ESA bendir á
að íslensk stjórnvöld hafi hvorki
lagt fram rökstuðning fyrir tak-
mörkuninni á staðfesturétti á
leigubifreiðamarkaðnum né gert
viðeigandi ráðstafanir til að af-
nema þessar takmarkanir. Enn
fremur hefur íslenska ríkið ekki
hreyft mótmælum við því að nú-
gildandi löggjöf um leigubílaþjón-
ustu sé ekki í samræmi við EES-
reglur,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að ESA
hafi sent formlega viðvörun til ís-
lenskra stjórnvalda í janúar síðast-
liðnum, og sé núna að stíga næsta
skref með birtingu rökstudda
álitsins. Segir í lokaorðum tilkynn-
ingarinnar, að bregðist stjórnvöld
ekki við innan tveggja mánaða,
gæti ESA ákveðið að höfða mál
fyrir EFTA-dómstólnum.
Strangar reglur
leiði til hærra verðs
- ESA gagnrýnir leigubílaleyfiskerfi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leigubíll ESA segir að reglur um
veitingu leigubílaleyfa séu ekki í
samræmi við EES-samninginn.