Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 10
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gamli bærinn á Skutulsfjarðareyri og
Neðstikaupstaður eru einstakt svæði
þar sem varðveist hefur fjöldi húsa
frá fyrstu árum þéttbýlismyndunar á
Íslandi. Svæðið er jafnframt nátengt
hjarta Ísafjarðar og mikilvægur hluti
miðsvæðis bæjarins. Kemur þetta
fram í tillögu að verndarsvæði í
byggð sem bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur samþykkt að auglýsa.
Starfshópur hefur síðustu ár unnið
að gerð tillögu um að gera gömlu
kaupstaðina á Eyrinni á Ísafirði,
Neðstakaupstað, Miðkaupstað og
Hæstakaupstað, að verndarsvæði í
byggð. Ráðgjafarfyrirtækið Alta hef-
ur unnið að tillögunni með starfshópi
heimafólks og styrkir fengist úr
húsafriðunarsjóði. Húsakönnun var
uppfærð sem liður í tillögugerðinni.
Nokkur slík svæði hafa verið skil-
greind og staðfest af ráðherra. Flatey
á Breiðafirði, gömlu byggðirnar á
Djúpavogi, Hofsósi, Sauðárkróki og
Vík í Mýrdal og Þórkötlustaðahverfi í
Grindavík, svo dæmi séu nefnd.
Ómetanlegt sögulegt gildi
Ísafjörður er einn af elstu kaup-
stöðum landsins og þar hafa varðveist
samstæðar heildir bygginga sem eru
með þeim elstu á landinu. Í rökstuðn-
ingi með tillögunni segir að svipmót
gömlu byggðarinnar á Eyrinni hafi
jafnframt ómetanlegt sögulegt gildi
sem vitnisburður um mótandi
strauma í þéttbýlismyndun á Íslandi.
Verndarsvæðið tekur til „fæðingar-
staðar“ þéttbýlisins með kaupstöð-
unum þremur og elstu byggðarinnar
sem út frá þeim sprettur allt frá mið-
biki 18. aldar.
Varðveislugildi byggðarinnar er
metið hátt út frá gildi byggingar-
listar, menningarsögu, umhverfis,
uppruna og ástands. Í tillögunni er
rætt um að byggðin á Eyrinni hafi
varðveist sem dýrmætur fjársjóður
fyrir Ísfirðinga.
Íbúum og hagsmunaaðilum gefst
nú kostur á að koma með ábendingar
og athugasemdir við tillöguna. Að
loknum lagfæringum verður hún
auglýst opinberlega í sex vikur og
gefst aftur kostur á að gera at-
hugasemdir. Að því búnu verður
fullbúin tillaga lögð fyrir bæjarstjórn
og væntanlega send mennta- og
menningarmálaráðherra til staðfest-
ingar.
Morgunblaðið/Ómar
Neðstikaupstaður Verslunarhúsin setja svip sinn á gamla bæinn á Skutulsfjarðareyri á Ísafirði.
Dýrmætur fjársjóður
varðveittur á Eyrinni
- Auglýst tillaga um verndarsvæði í byggð á Ísafirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hæstikaupstaður Sölubúðin hefur verið gerð upp af miklum metnaði.
„Það er mjög gott að búa í Neðstakaupstað. Síðan ég
flutti hefur orðið mikil breyting. Mjög rólegt var yfir vet-
urinn en nú er líf allt árið. Aukin ferðamennska er á sumr-
in og nú er svæðið orðið útivistarsvæði fyrir íbúa Ísafjarð-
ar, fólk kemur í göngutúra og siglingaklúbburinn er með
aðstöðu í nágrenninu,“ segir Jóna Símonía Bjarnadóttir,
forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða, sem býr í Fak-
torshúsinu í Neðstakaupstað.
Jóna og Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt gerðu á sínum
tíma húsakönnun fyrir alla Eyrina og tóku þátt í að upp-
færa hana vegna vinnu við gerð tillögu að verndarsvæði í
byggð. „Þetta var ánægjuleg og gefandi vinna. Gaf manni tækifæri til að
bæta við þekkingu sína á einstökum húsum og hvernig bærinn hefur
þróast,“ segir hún.
Jóna segir að húsum á Ísafirði sé almennt vel við haldið og hafi orðið
vakning á því sviði á síðustu árum. Þannig séu upprunalegu húsin í kaup-
stöðunum þremur á Eyrinni komin í gott horf. Hver kaupstaður eigi sín upp-
runalegu kaupmanns- og/eða verslunarhús.
Faktorshúsið sem Jóna býr í er byggt árið 1765, þegar kaupmenn eða öllu
heldur starfsmenn verslana fóru að hafa vetursetu í kaupstöðunum. Hún
segir að við það hafi orðið breyting í uppbyggingu kaupstaðanna um allt
land. Búið hefur verið í Faktorshúsinu með litlum hléum allan þennan tíma.
Jónu finnst ekki þvingandi að búa í friðuðu húsi. Það sé friðað að utan og
reynt sé eftir því sem hægt er að hafa allt sem upprunalegast inni. „Mér er
alveg sama þótt ég sjái andlit ferðamanna á glugga á sumrin, það truflar
mig ekki,“ segir hún.
Sér oft andlit á glugga
JÓNA SÍMONÍA BJARNADÓTTIR BÝR Í NEÐSTAKAUPSTAÐ
Jóna Símonía
Bjarnadóttir
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Sjá nánar
á patti.is
Ný sending
af gæðarúmum
frá Dupen
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
TRAUST
Í 80 ÁR
Tilboðs-
dagar
20%
afsláttur
af völdum
vörum
LAXDAL ER Í LEIÐINNI – Laxdal.is
Kjör starfsfólks á leikskólum í
Hafnarfirði verða bætt á næstunni
og ýmsu í starfsemi þeirra breytt,
skv. ákvörðun sem kynnt var í
gær. Á meðal aðgerða er að
starfsfólk leikskóla fær 75% af-
slátt af leikskólagjöldum vegna
barna sinna og stjórnunarhlutfall
aðstoðarleikskólastjóra hækkar
um 20-35% til eflingar faglegu
starfi. Hlunnindi og styrkir til
leikskólastarfsmanna verða aukin,
m.a. með hækkun á fastri yfir-
vinnu til allra og bíla- og síma-
styrk til stjórnenda, og hand-
leiðsla og námskeið starfsfólks
leikskóla verða efld. Þá verður
komið á sveigjanlegum vistunar-
tíma, sem skref í styttri dvalar-
tíma barna
„Með þessu viljum við svara
kalli leikskólastarfsmanna, um-
fram kjarasamninga,“ segir Rósa
Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.
Námssamningar og stuðningur
við ófaglærða til að afla sér
menntunar í faginu hafa verið
meðal grunnstoða aðgerða Hafn-
arfjarðar í leikskólamálum. Skort-
ur á leikskólakennurum á lands-
vísu kallar, að mati stjórnenda
bæjarins, á róttækari aðgerðir og
í áætlunum komandi árs leggur
sveitarfélagið enn meiri áherslu á
það atriði.
Efla leikskóla í Hafnar-
firði og bæta starfskjör
Hafnarfjörður Líf og fjör í leikskól-
unum sem stendur til að styrkja.