Morgunblaðið - 11.11.2021, Síða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Innigolf styttir veturinn hjá kylf-
ingum, sem nú hafa aðgang að sínu
sporti allan ársins hring, fólk verð-
ur betra í golfi og hefur meira að
gera í skammdeginu,“ segir Gunn-
laugur Hafsteinn Elsuson, golf-
kennari og einn eigenda Golfhallar-
innar á Fiskislóð á Grandagarði.
Þar var nýlega opnuð aðstaða með
14 golfhermum, bar og setustofu.
Mikil og hröð uppbygging hefur
verið í möguleikum til golfiðkunar
innanhúss síðustu ár og veitinga-
þjónusta er víða tengd golfherm-
unum. Eftir lauslega könnun má
áætla að golfhermar til útleigu séu
nú orðnir um 80 talsins, flestir á
höfuðborgarsvæðinu, en þá er einn-
ig að finna víða um land. Fyrir
þremur árum voru hermarnir innan
við 30.
Ekki er fjarri lagi að golfbás með
uppsettum golfhermi og búnaði
kosti með öllu 5-6 milljónir. Miðað
við þessar tölur hefur verið fjárfest
fyrir yfir 250 milljónir í slíkum bún-
aði frá 2019. Kostnaður við t.d. hús-
næði er ekki tekið með í reikning-
inn.
Kylfingar geta valið sér velli í
hermunum og er þar að finna
marga af frægustu völlum heims.
Slegið er í tjald og þróuð grafík og
tækni reiknar út hvernig höggið var
framkvæmt og hversu langt var
slegið. Á tímum heimsfaraldurs
komast kylfingar nálægt því að
upplifa spennandi golfvelli erlendis
á þennan hátt. Verðið er nokkuð
mismunandi eftir því á hvaða viku-
degi er leikið, á hvaða tíma dags og
hvort viðkomandi er félagi.
Golfherma er víða að finna
Það eru ýmist golfklúbbar eða
einkafyrirtæki sem hafa sett upp
golfherma og eru með í útleigu.
Flestir eru hermarnir af Track-
mann-gerð og rekur Golfklúbbur
Kópavogs og Garðabæjar 22 slíka
herma. Þeir eru einkum ætlaðir fyr-
ir félaga og ekki síst ungmenni sem
æfa í hermunum undir leiðsögn
kennara, en eru þó opnir almenn-
ingi.
Golfsvítan er með sex golfherma í
Ögurhvarfi í Kópavogi og í Bæjar-
hrauni í Hafnarfirði. Golffélagið er
með fjóra herma í húsnæði sínu við
Eyjarslóð. Golfklúbburinn í Mos-
fellsbæ er með þrjá herma og Nes-
klúbburinn er núna með einn hermi,
en tekur fimm til viðbótar í notkun
um áramót í nýrri æfingaaðstöðu
við Austurströnd. Í Golfstöðinni í
Glæsibæ eru tveir Trackman-
golfhermar og einnig í stöðinni
Tveir undir í Katrínartúni. Track-
man-skermar eru einnig á Selfossi,
Ólafsfirði, Ísafirði, Akureyri, Kefla-
vík, Grindavík, Akranesi og
Vestmannaeyjum.
Golfklúbburinn Keilir er með tvo
golfherma af gerðinni Foresight og
Golfklúbburinn er með sex herma
af gerðinni Full Swing í aðstöðu
sinni við Fossaleyni í Grafarvogi.
Vilja byggja upp samfélag
fyrir kylfinga í Golfhöllinni
Nýjasta aðstaðan var opnuð í
Golfhöllinni við Fiskislóð í byrjun
mánaðarins og segist Gunnlaugur
Elsuson ekki hafa áhyggjur af að
verið sé að skjóta yfir markið með
mikilli fjölgun golfherma tvö síð-
ustu ár. Hann segir að nú þegar sé
mikið um fastar bókanir á kvöldin
og um helgar. Fyrir klukkan 16 á
daginn verði golfnámskeið og starf
fyrir eldri borgara.
Hann segir aðstöðuna í Golfhöll-
inni sérhannaða til að byggja upp
skemmtilegt samfélag fyrir kylf-
inga. „Við munum leggja áherslu á
að gera vel við meðlimi Golfhall-
arinnar ásamt því að setja upp mót
fyrir litla og stóra hópa. Opnunar-
mót Golfhallarinnar verður næst-
komandi sunnudag. Húsnæðið býð-
ur upp á að geta haldið
meistaramót golfklúbba, fyrirtækja-
golfmót eða jafnvel landsmót innan-
húss,“ segir Gunnlaugur.
Auk Gunnlaugs standa þau Sig-
ríður Björnsdóttir, Pétur Björns-
son og Margrét Þorvaldsdóttir að
rekstri Golfhallarinnar. Þau
keyptu húsnæðið við Fiskislóð í
apríl og síðan hefur verið unnið
að standsetningu hússins. Beðið
var með opnun þar til starfs-,
rekstrar og vínveitingaleyfi lágu
fyrir.
Gunnlaugur nefnir að iðkendum
í golfi hafi fjölgað hérlendis á síð-
ustu árum og golfhermarnir komi
því til móts við þörf iðkenda.
„Fjölbreytt námskeið Golfhall-
arinnar munu hjálpa kylfingum á
öllum getustigum að bæta leik
sinn,“ segir hann.
Hermar og innigolf stytta veturinn
- Fjárfest í golfhermum fyrir um 250 milljónir síðustu þrjú ár - Leikið á frægustu völlum heims í
um 80 golfhermum - Æft undir leiðsögn kennara - Kylfingar hafa aðgang að sínu sporti allt árið
Morgunblaðið/Eggert
Í Golfhöllinni Gunnlaugur Elsuson dregur ekki af sér í golfherminum þegar hann slær á Bahia Beach Resort & Golf Club-golfvellinum í Puerto Rico.
Viggó Viggósson, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbsins í Fossaleyni,
segist ekki í vafa um að kennsla og
æfingar í golfhermum muni skila
sér í betri kylfingum. Mælingar af
ýmsum toga geri kylfingum kleift
að bæta leik sinn og mikilvægt sé
að sjá til dæmis feril kylfunnar og
boltaflug og leiðrétta það sem
þarf að lagfæra undir leiðsögn.
Í vetur verða þrír kennarar hjá
Golfklúbbnum; Snorri Ólafsson
golfkennari og atvinnukylfingarnir
Andri Þór Björnsson og Haraldur
Franklín Magnús. Viggó segir að
vetrarstarfið sé rétt að hefjast, en
tímabilið utanhúss hafi staðið um
tveimur vikum lengur en venjulega
og í haust hafi verið óhemjuþátt-
taka í golfferðum til útlanda.
Hann segir að eftir eigi að koma
í ljós hvort gífurleg fjölgun golf-
herma muni hafa áhrif á aðsóknina
í vetur, en síðustu ár hafi gengið
vel. Starfsemin sé hins vegar mjög
árstíðabundin og fólk hafi lítinn
áhuga á að æfa innandyra þegar
grænir golfvellir séu handan við
hornið. Staðreyndin sé hins vegar
sú að hermarnir henti til kennslu
allt árið.
Golfklúbburinn er með sex Full
Swing-golfherma og PuttView-
pútthermi í aðstöðu sinni við
Fossaleyni. Nánast allir aðrir, sem
eru með golfherma til útleigu, eru
með herma frá danska fyrirtækinu
Trackman. Viggó segist hafa valið
hermana eftir nákvæma skoðun og
hafi ýmsir þættir ráðið valinu, m.a.
að hann telji umskipti úr raun-
heimi yfir í sýndarveruleika vera
eðlilegust í þeim, á réttum stað í
tjaldinu og viðstöðulaus.
Golfklúbburinn hóf rekstur golf-
herma 2017, en frá 2010 hafði
Viggó haft hug á að setja upp slíka
starfsemi. Hann segist meðal ann-
ars hafa rætt við Golfsambandið
og samtök golfkennara um að
koma upp fullkominni inniaðstöðu
og fara í slíka uppbyggingu af
miklum krafti. Það fékk ekki
hljómgrunn, en tæknin fyrir áratug
var ekki líkt því eins fullkomin og
núna er. Svo fór að Viggó setti upp
eigin aðstöðu ásamt nokkrum fé-
lögum sínum 2017.
Skilar sér í betri kylfingum
HÆGT AÐ ÆFA ALLT ÁRIÐ VIÐ BESTU AÐSTÆÐUR Í GOLFHERMUM
Golf Sex hermar eru í Golfklúbbnum
og þar verða þrír kennarar í vetur.