Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 26
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Gefið nafn Óli í Bæ skal hann heita. Kristín og Marinó við hið fagra fley sem lofar meistarann og nafnið við hæfi.
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Sjóminjasafn Þórðar Rafns hýsti
einn margra viðburða Safnahelgar í
Vestmannaeyjum um síðustu helgi,
„Saga af manni og bát“. Þórður
Rafn eða Rabbi á Dala-Rafni, skip-
stjóri og útgerðarmaður, hefur
safnað að sér ýmiss konar sjáv-
artengdum munum á 40 ára sjó-
mannsferli sínum og er hvergi
hættur enda eru Eyjamenn dugleg-
ir að færa honum fleiri dýrgripi. Af-
raksturinn og um leið útgerðasögu
Vestmannaeyja má nú sjá í safni
hans á Flötunum.
Þó að viðburðurinn kallaðist
þessu nafni komu hér við sögu fleiri
en eitt dugandi hreystimenni og
mismunandi bátar sem spönnuðu
allt frá árabátum til Herjólfs IV,
sem lokaði sögunni ásamt Sjóminja-
safninu.
Fyrstur steig á stokk Marinó
Sigursteinsson pípulagningameist-
ari sem tekur sér ýmislegt fleira
fyrir hendur en pípulagnir og þá
sérstaklega það sem snýr að rann-
sóknum á náttúru og sögu Eyjanna.
Marinó rakti sögu þess þegar hann
fyrir um 20 árum var á hrein-
dýraveiðum austur á Héraði og
rakst í fyrsta sinn á þennan fallega
bát niðri í fjöru í Vopnafirði.
Í víking austur
Hann komst að því að báturinn
væri smíðaður af þekktum bátasmið
í Eyjum, Óla í Bæ (Ólafi Ástgeirs-
syni 1892-1966) og þar með var
áhuginn vakinn. Báturinn var ekki
falur á þeim tíma en menn eins og
Marinó leggja ekki svo auðveldlega
árar í bát. Nú í haust, 20 árum síð-
ar, taldi Marinó að málið væri loks
komið í höfn og hélt til Vopna-
fjarðar ásamt Þórði Rafni og Gústa
í Mjölni (Ágústi Þórarinssyni) að
sækja bátinn.
För þeirra félaga landleiðina
austur var nokkur svaðilför enda
veður oft válynd á þessum árstíma
bæði til sjós og lands. Síðasta spöl-
inn bar Herjólfur IV síðan þetta
aldna fley aftur til heimahafnar.
Báturinn er nú til sýnis og varð-
veislu á Sjóminjasafni Þórðar
Rafns, ómetanlegur menningar-
arfur og minning um merka skipa-
smíðasögu í Vestmannaeyjum.
Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrver-
andi framkvæmdastýra Jafnrétt-
isstofu og alþingismaður, fór yfir
sögu Óla í Bæ, afa síns, sem hafði
sjómennskuna að aðalstarfi þó að
hann hafi einnig smíðað um 400
báta um starfsævi sína. Fetaði hann
þar í fótspor föður síns, Ástgeirs
Guðmundssonar, formanns og báta-
smiðs, (1858-1943) sem smíðaði um
10 mótorbáta í Eyjum og allnokkra
á Stokkseyri.
Einn báta Ástgeirs er varðveittur
á Borgarsögusafninu í Víkinni í
Reykjavík (Farsæll eldri, 1907).
Meðal báta Óla í Bæ má t.d. nefna
kappróðrabátana, Hreyfil, Ólaf og
Jötun, sem lengi voru notaðir á sjó-
mannadaginn. Báturinn sem nú er
hér kominn í sjóminjasafn Rabba er
mögulega sá eini sem enn lifir af
fjölmörgum bátum Óla. Sorgleg ör-
lög flestra hinna hafa trúlega verið
að enda uppi á Fjósakletti á þjóðhá-
tíðarbrennu.
Axir glumdu og heflar sungu
Kristinn R., sonur Óla í Bæ, tal-
aði frá Madrid á Spáni og minntist
á myndrænan hátt föður síns sem
lést þegar hann var á unglingsaldri.
Pabba, sem lengstum var við smíð-
ar í skúrnum heima á bak við Brim-
berg ef hann var ekki á sjó eða að
veiða lunda. Axir glumdu, heflar
sungu og hamrar dundu og allt ilm-
aði af timbri, sagi og hefilspónum
að ógleymdu neftóbakinu. Smið-
urinn raulaði við verk sitt og stund-
um féll til skjöldur eða sverð handa
syninum.
Margt var við athöfnina og í lokin
opinberaði Kristín Ástgeirsdóttir
nafn bátsins, Óli í Bæ skal hann
heita.
Axir glumdu, heflar sungu
- Ólafur Ástgeirsson, Óli í Bæ, smíðaði 400 báta en aðeins einn hefur varðveist
- Þessi bátur er nú kominn í Sjóminjasafn Þórðar Rafns í Vestmannaeyjum
Fjölmenni Sjóminjasafn Þórðar Rafns er eitt stærsta sjávarútvegssafn á Ís-
landi. Helga Hallbergsdóttir, starfsmaður á safninu, stýrði athöfninni.
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
STUÐIÐ ER
Í VINNUNNI
NÝR VIVARO-E
Vivaro-e er einn fullkomnasti atvinnu–
rafmagnsbílinn á markaðnum. Með honum
velur þú að marka grænt fótspor með
þínum atvinnurekstri.
100% RAFMAGN
RAFHLAÐA, HLEÐSLA OG DRÆGNI
Nú kemur ekkert í veg fyrir að það sé hægt að
nota rafmagnsbíla í atvinnurekstri. Vivaro-e hefur
svipaða burðagetu og vörurými og hefðbundinn
sendibíll en er mikið hagkvæmari í rekstri.
Mótor: 100 kW
Rafhlaða: 50/75 kWh
Drægni: 231/330 km. (WLTP)
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
BB, betri bílar
Akureyri
Njarðarnesi 12
Sími: 534 7200
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
VIVARO-E
VERÐ FRÁ AÐEINS:
5.290.000 KR.
LANGTÍMALEIGA FRÁ: 129.600 KR. Á MÁNUÐI.
TILBÚINN TIL
AFHENDINGAR Í NÓVEMBER!
TRYGGÐU ÞÉR BÍL FYRIR ÁRAMÓT!
B
irt
m
e
ð
fy
rirv
a
ra
u
m
m
y
n
d
-
o
g
t
e
x
ta
b
re
n
g
l.
B
íll
á
m
y
n
d
e
r
m
e
ð
a
u
k
a
b
ú
n
a
ð
i.
Allt tónleikahald Senu Live næstu
mánuði helst óbreytt, að því er
greint er frá í tilkynningu frá
fyrirtækinu. Engu skipti þótt upp-
gangur sé í kórónuveirusmitum
hér á landi og
hertar sótt-
varnaaðgerðir
hafi tekið í gildi
í gær.
Fólk þurfi þó
ekki að óttast
það að mæta á
skipulagða við-
burði þar sem
sóttvarnir eru í
hávegum hafðar.
Það þarf hins
vegar að venjast því að fara í
hraðpróf vegna kórónuveirunnar
áður en það sækir viðburðina.
Þetta segir Ísleifur Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Senu Live, í
samtali við Morgunblaðið.
Þá segir hann ekki hægt að
setja allar samkomur undir einn
og sama hattinn. „Það er ekki
hægt að bera t.d. tónleika Andrea
Bocelli, sem er skipulagður við-
burður á vegum fyrirtækis, þar
sem öllum sóttvarnareglum er
fylgt út í ystu æsar, saman við eitt-
hvert óformlegt karíókíkvöld úti í
bæ.“
Heldur hann því fram að örugg-
asta leiðin fyrir fólk sem vilji lifa
lífinu sé að sækja skipulagða við-
burði enda séu þeir haldnir með
formlegu samþykki sóttvarna-
yfirvalda og í samræmi við gild-
andi lög og reglur. „Við vitum ná-
kæmlega hverjir eru að koma,
klukkan hvað þeir koma, hvar þeir
labba inn og hvar þeir sitja.“
Tónleika-
hald helst
óbreytt
Ísleifur
Þórhallsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Tónleikahald Tónleikar Andrea
Bocelli í Kórnum munu fara fram.
- Fólk óttist ekki að
mæta á viðburði