Morgunblaðið - 11.11.2021, Qupperneq 28
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Okkur finnst þetta verðugt viðfangs-
efni á afmælisárinu enda er húsið
nánast jafngamalt félaginu. Þessu
húsi fylgir afar mikil saga,“ segir
Tryggvi Agnarsson, hæstaréttarlög-
maður og formaður Stúdentafélags
Reykjavíkur.
Næstkomandi sunnudag verða lið-
in 150 ár frá stofnun Stúdentafélags
Reykjavíkur. Af því tilefni hefur
Tryggvi sent bréf fyrir hönd félagsins
til alþingismanna þar sem lagt er til
að Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg verði framvegis helgað sögu full-
veldisbaráttu Íslendinga, forvígis-
mönnum hennar og hverju eina því
sem varpar ljósi á það sem í fullveld-
inu felst. „Húsið og garðurinn að baki
fái heitið Fullveldisgarður, sögusafn,
sem gaman og gagnlegt verði fyrir
unga sem aldna að sækja heim í
hjarta borgarinnar,“ segir í bréfinu.
Helgistaður frelsisbaráttunnar
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í gær var hulunni svipt af Hegning-
arhúsinu í vikunni eftir eins og hálfs
árs endurbætur á ytra byrði þess.
Minjavernd hefur séð um endurbæt-
urnar og óhætt er að segja að Hegn-
ingarhúsið hafi fengið löngu tíma-
bæra „andlitslyftingu“.
Tryggvi segir í samtali við Morgun-
blaðið að fulltrúar félagsins hafi ný-
lega fengið að skoða húsið í fylgd Þor-
steins Bergssonar framkvæmda-
stjóra Minjaverndar. „Þetta er
ótrúlega falleg bygging og staðsetn-
ingin frábær, við eina aðalgötuna í
Reykjavík. Endurbæturnar að utan
hafa kostað óskaplega mikið og vænt-
anlega mun kosta enn meira að gera
það upp að innan. Spurning er hins
vegar hvað eigi svo að gera með húsið.
Það hafa komið fram einhverjar hug-
myndir um veitingahús og fleira en
okkur datt í hug að það myndi henta
að gera þetta að helgistað frelsisbar-
áttunnar og fullveldisins enda er hann
ekki til.“
Hegningarhúsið var reist árið 1872
og gegndi hlutverki fangelsis í 144 ár.
Auk þess hefur það hýst bæjarstjórn
Reykjavíkur, Landsyfirrétt, Hæsta-
rétt og bæjarþing Reykjavíkur. „Sal-
ur bæjarþingsins, ásamt húsgögnum,
er enn lítt raskaður á annarri hæð
miðhússins og fleiri minjar um hlut-
verk hússins eru enn tiltækar. Húsið
er 926,9 fm að stærð, hlaðið úr ís-
lensku hraungrýti og því fylgir rúm-
góður bakgarður,“ segir í bréfi Stúd-
entafélagsins.
Beita sér fyrir hvers
konar framfaramálum
Tryggvi segir við Morgunblaðið að
Stúdentafélagið hafi frá fyrstu tíð lát-
ið til sín taka um hvers konar fram-
faramál og því sé viðeigandi að beita
sér um framtíðarhlutverk Hegning-
arhússins. Segir í bréfi til þingmanna
að félagið muni styðja ötullega við
vinnslu hugmyndarinnar og fram-
kvæmd ef hún hljóti brautargengi.
Héldu flottasta ballið í bænum
Hann segir aðspurður að í raun séu
allir stúdentar á Íslandi félagar í
Stúdentafélagi Reykjavíkur. „Lengi
framan af var mikil starfsemi í félag-
inu, menn héldu fundi og voru jafnvel
með kennslu. Við héldum líka flott-
asta ballið í bænum um áratugaskeið.
Síðustu áratugi hefur minni starfsemi
verið í félaginu en við höfum alltaf hist
og reynum að láta gott af okkur
leiða.“
Vilja gera Hegningar-
húsið að fullveldisgarði
- Stúdentafélag Reykjavíkur beitir sér á 150 ára afmælinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ný ásjóna Hegningarhúsið hefur verið tekið í gegn að utan af Minjavernd,
múrverk lagað, gluggar og hurðir endurbætt og skipt um þak hússins.
Hlutverk Tryggvi Agnarsson, for-
maður Stúdentafélags Reykjavíkur.
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er rosalega flott viðurkenn-
ing. Við fáum engin verðlaun en
það er gaman að geta montað sig af
þessu,“ segir Hlynur Árnason,
bruggmeistari Böl Brewing.
Böl hafnaði á dögunum í 1. sæti í
alþjóðlegri bjórkeppni hins kunna
risa Brewdog, Collabfest 2021. Um
75 brugghús frá löndum víðs vegar
um heiminn brugguðu bjór sem
seldur var á Brewdog-börum í Evr-
ópu.
Brewdog Reykjavíkur hefur áð-
ur tekið þátt í keppninni og að
þessu sinni var efnt til samstarfs við
Hlyn og félaga í Böli. Upp úr því
samstarfi varð til bjórinn „We took
them in the bakarí“. Bjórinn var
sérbruggaður og aðeins í boði þessa
einu helgi. Þrátt fyrir að vera 7,5%
að styrkleika seldust yfir 4.000 glös
af honum á þessum fjórum dögum.
Almenningur gefur bjórnum ein-
kunn og bjórinn sem fær hæstu ein-
kunnina vinnur. Bjórinn endaði
keppnina með 4,15/5 í einkunn og
hafnaði því í efsta sæti. „Baráttan
var hörð en við náðum þessu,
frændur okkar Svíar höfnuðu í
öðru sæti með 4,14 og Japanir end-
uðu svo í því þriðja. Við erum í skýj-
unum með þessar móttökur og
hlökkum til framhaldsins,“ segir
Hlynur.
„Þetta var hörð barátta og komst
bjórinn okkar fljótlega upp í topp 5.
Baráttan endaði svo á milli okkar
og Duckpond Brewing frá Gauta-
borg í Svíþjóð,“ segir Andri Birg-
isson, framkvæmdastjóri Brewdog
Reykjavík, en We took them in the
bakarí er enn til í mjög takmörkuðu
upplagi á Brewdog Reykjavík við
Hverfisgötu.
Hlynur segir að sigurvegarar
þessarar keppni hafi stundum feng-
ið aukin tækifæri til að kynna sig-
urbjórinn. „Brewdog hefur stund-
um fengið vinningshafann til að
brugga þennan sama bjór hjá sér í
Skotlandi og þá er honum dreift um
allan heim. Við höfum samt ekki
heyrt neitt um slíkt núna, þeir eru
kannski enn þá að ákveða sig.“
Hann segir aðspurður að We took
them in the bakarí sé dökkur stout-
bjór bruggaður með snúðum frá
bakaríinu Brikk. „Bjórinn er
bruggaður með ýmsum tegundum
af dökku ristuðu korni og höfrum.
Stíllinn er svolítið bland í poka,
kveik pastry export stout, sem þýð-
ir í rauninni sterkur stout með
norsku sveitageri og bakkelsi,“ seg-
ir Hlynur. Einn af jólabjórum Böls,
Svört jól, er náskyldur sigur-
bjórnum en þar er notast við súkku-
laði í stað snúða.
Böl brewing er flökkubrugghús
sem hefur starfað síðan í apríl 2020.
Böl sérhæfir sig framleiðslu á há-
gæðabjór fyrir fólk sem vill prófa
eitthvað nýtt og skemmtilegt, eins
og segir í kynningu á brugghúsinu.
„Við höfum stækkað framleiðsluna
um 300% frá því við byrjuðum.
Næsta skref hjá okkur er að klára
jólabjórana. Þeir eru þrír og verða
sennilega allir komnir í sölu í Vín-
búðunum fyrir lok næstu viku,“
segir Hlynur.
Bakkelsisbjórinn
frá Böli þótti best-
ur hjá Brewdog
- Íslenskt brugghús sigraði í keppni
75 brugghúsa - Hörð barátta við Svía
Sigurskál Hlynur Árnason frá Böli og Hjörvar Óli Sigurðsson frá Brewdog
Reykjavík voru ánægðir með sigurinn í alþjóðlegri keppni Brewdog.
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
BIRKENSTOCK ARIZONA
13.995.- / ST. 36-47
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS